Fréttablaðið - 31.03.2005, Síða 54
34 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
O
L
26
34
2
0
3/
20
05
Þegar ég sá ...
...hvað hann var með í
hendi vissi ég að þetta
var maður með
óaðfinnanlegan smekk
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
O
L
26
34
2
0
3/
20
05
Óttar Felix Hauksson, útgefandi
hjá Zonet, var nýverið kjörinn
formaður Taflfélags Reykja-
víkur, TR.
Óttar hefur mikla reynslu úr
taflheiminum því hann hefur
undanfarin ár verið í stjórn TR
og var á árum áður í stjórn Skák-
sambands Íslands.
Mikill skákáhugi hefur jafn-
framt verið í föðurætt Óttars.
Hann varð sjálfur Íslandsmeist-
ari í opnum flokki árið 1979, auk
þess sem faðir hans, Haukur
Sveinsson, tefldi í landsliðsflokki
frá 1958 til 1963. Sveinn Rúnar,
eldri bróðir Óttars, varð einnig
fyrsti unglingameistari Íslands í
skák árið 1962 og afi þeirra,
Sveinn, var þekktur skákdæma-
höfundur.
„Ég er mjög spenntur fyrir
þessu og það er ýmislegt á döf-
inni, þar á meðal Evrópukepppni
skáksveita seinna á árinu á
Ítalíu,“ segir Óttar um formanns-
starfið. „TR er elsta og virðuleg-
asta taflfélag landsins og þarna
er mikið unglingastarf og upp-
byggingarstarf í gangi.“
Óttar hitti Bobby Fischer á
Hótel Loftleiðum eftir að hann
var búinn í viðtali á Stöð 2. „Við
hinkruðum á meðan þessi vit-
leysa stóð yfir. Sæmi kynnti mig
sem formann TR og ég tók í
höndina á honum og sagði að það
væri heiður að fá hann í heim-
sókn og bauð hann hjartanlega
velkominn,“ segir Óttar. „Hann
var órakaður og óklipptur en
virtist vera í fínu jafnvægi og
ekkert þreytilegur eins og maður
hélt. Hann var mjög skýrlegur til
augnanna og greindarlegur en
ívið lægri heldur en í minning-
unni. Ég hafði séð hann á sviðinu
1972 í Laugardalshöll og hann
virkaði hávaxinn í minningunni
en er það ekki. Göngulagið er
samt alveg það sama. Hann er
stórstígur eins og bóndi sem er
að ganga yfir þúfur á móti
vindi.“ ■
Fisher eins og stórstígur bóndi
STJÓRN TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Sitjandi frá vinstri: Ríkharður Sveinsson ritari,
Torfi Leósson varaformaður, Óttar Felix
Hauksson formaður og Gunnlaugur Karlsson
gjaldkeri. Efri röð frá vinstri: Ólafur Kjartans-
son, Sigurlaug Friðþjófsdóttir,
Ólafur Ásgrímsson, Benedikt Jónasson og
Þorfinnur Björnsson. Á myndina vantar Krist-
ínu Sigurðardóttur og Ásgeir Tryggvason.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Ragnhildur Gísladóttir.
Kojo.
Sigrún Guðjónsdóttir.
Mannanafnanefnd samþykkti
nýverið að millinafnið Gnarr
uppfyllti ákvæði laga um manna-
nöfn. Grínistinn og listamaður-
inn Jón Gnarr sótti um að fá
nafnið samþykkt og varð að ósk
sinni í fyrstu atrennu.
„Þetta er fín viðurkenning af
því að þetta er sniðugt nafn,“
segir Jón. „Það á sér reyndar for-
dæmi og er til forníslensku. Mig
minnir að það þýði stormur á
hafi úti. Það er líka þekkt úr
fornensku og þýsku. Á ensku
þýðir það að urra og á þýsku þýð-
ir það marr í hurð.“
Á meðal fleiri nafna sem voru
samþykkt af mannanafnanefnd
voru eiginnöfnin Tímoteus,
Estefan og Andrá og millinafnið
Hofland. Aftur á móti var nöfn-
unum Anndrá, Hávarr, Sven,
Blær (kvenmannsnafn) og
Tímótheus hafnað.
Jón var skírður Jón Gunnar
en sem unglingur felldi hann nið-
ur millinafnið Gunnar og tók
upphafsstafinn G. Síðan þá hefur
hann alltaf skráð sig sem Gnarr,
einn Íslendinga. Hann segist
vera mjög þakklátur manna-
nafnanefnd fyrir að hafa komist
að þessari niðurstöðu og vonast
til að með tíð og tíma verði Gnarr
að ættarnafni og að eftir 500 ár
muni afkomendur hans hafa
mynd af sér uppi á vegg.
Þrátt fyrir að hafa fengið
samþykki fyrir nafninu Gnarr
segir Jón að mannanafnalögin á
Íslandi hafi alltaf verið í hálf-
gerðum ólestri.
Eitt hefur mátt og síðan sé það
bannað á morgun. „Nöfn sem
voru harðbönnuð fyrir nokkrum
árum eru leyfð í dag. Það er mín
persónulega skoðun að fólk eigi
að fá að ráða þessu sjálft,“ segir
hann. „Mér finnst að þú eigir að
geta skírt son þinn Hótel
Volkswagen ef þú vilt en kannski
ekki ef þú ætlar að skíra hann
Adolf Hitler, það verða að vera
einhver mörk. En mér finnst
þetta mannanafnarugl vera hlut-
ur sem smátt og smátt muni
fjara út og deyja.“
freyr@frettabladid.is
JÓN GNARR Jón fékk nafnið sitt Gnarr samþykkt hjá mannanafnanefnd í fyrstu atrennu.
JÓN GNARR: FÉKK NAFNIÐ SITT SAMÞYKKT
Gnarr var skírður Gunnar
FRÉTTIR AF FÓLKI
...fær Ragnhildur Gísladóttir, sem
hefur skemmt okkur með Stuð-
mönnum um áratugaskeið.
Ragga ætlar nú að róa á ný mið
og kveður Stuðmenn í bili.
HRÓSIÐ
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.
Lárétt: 2 ílát, 6 sláturfélag, 8 flýtir, 9
fiskifæða, 11 tveir eins, 12 beisku, 14
sára, 16 listamaður, 17 eins um d, 18 lík-
amshluta, 20 tónn, 21 óhrædd.
Lóðrétt: 1 heil, 3 íþr. fél., 4 iðka, 5
farfa, 7 brothættir, 10 leiða, 13 grip, 15
svara, 16 nögl, 19 dýramál.
Lausn.
Lárétt:2skál,6ss,8asi,9áta,11tt,
12römmu,14kauna, 16 kk, 17ndn,18
lim,20as,21órög.
Lóðrétt:1ósár, 3ka,4ástunda,5lit,7
stökkir, 10ama,13mun,15ansa,16kló,
19mö.
AÐ MÍNU SKAPI
DAGBJÖRT ÁSBJÖRNSDÓTTIR, VERKEFNISSTJÓRI HJÁ ÍTR OG LISTAKONA Í LJÓSBERAHÓPNUM
TÓNLISTIN Safndiskurinn American
Music Club og svo Music for the
Patriot -diskurinn þar sem saman-
komnir eru margir af mínum uppá-
haldstónlistarmönnum eftir dágóða
pásu. Mark Eitzel er í sínu besta formi
og yljar manni um hjartarætur með
kaldhæðnislegri sjálfsvorkunn sinni og
sterkum pólitískum skoðunum.
BÓKIN Conversation with God eftir
Neale Donald Walsch. Mér finnst þessi
bók mjög skemmtileg, hún er stútfull
af heilbrigðri skynsemi en fær mann
líka til að hugsa út fyrir rammann um
tilgang lífsins og hvar maður finnur
svörin.
BÍÓMYNDIN Sideways. Ég sá hana
um páskana og var yfir mig hrifin.
Þetta er heilnæm mynd með boð-
skapinn um að lífið er akkúrat núna
og einu hindranir sem eru til staðar
eru þær sem bærast innra með okkur
sjálfum.
BORGIN Trinidad á Kúbu. Ég flakkaði
um Kúbu árið 2000 með tveimur vin-
um og við enduðum í þessari litlu,
sætu borg sem algjörlega heillaði mig
upp úr skónum. Við bjuggum heima
hjá skemmtilegu fólki sem gaf manni
góða innsýn í kúbverskt samfélag. Ég
sé hana enn í hyllingum, þessa litlu
strangkaþólsku borg.
BÚÐIN Gust á Laugaveginum. Ég fíla
þessa búð, hún er með ákveðinn stíl og
ég kann vel við að þarna fær maður
sérhönnuð föt.
VERKEFNIÐ Helst er að nefna nýjasta af-
rekið okkar í Ljósberahópnum; Hratt og
hömlulaust: raunveruleiki íslensku fjöl-
skyldunnar? sem er verið að sýna í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Ljós-
berahópurinn er eitt þeim verkefnum
sem gerir svo frábært að vinna í grasrót-
inni, hópur áhugasamra kvenna sem
hristir upp í fólki með sínum hugsjónum.
Af öðru er það endurreisn Kynfræðifélags
Íslands sem vill standa fyrir faglegri um-
ræðu um kynlíf og kynheilbrigði fólks.
Samræður við Guð, Trinidad og Mark Eitzel
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Eins og Fréttablaðið greindi frá ígær ætlar Ragnhildur Gísladóttir
ekki að syngja með Stuðmönnum á
næstunni og ekki er vitað hvenær
hún snýr aftur. Mikil dulúð hvílir hins
vegar yfir því hver muni fylla skarð
hennar. Margar eru tilkallaðar en fáar
útvaldar en nokkur nöfn hafa þó
heyrst í þessu samhengi. Andrea
Gylfadóttir þykir koma mjög sterk inn
enda hefur hún allt til þess að bera
að geta komið í stað
Ragnhildar. Þá hætti
Ragnheiður Gröndal
í Ske vegna anna en
spurning er hvort
þær annir séu ekki
hreinlega Stuð-
menn. Þá gæti
dóttir Jakobs og
Ragnhildar,
Bryndís Jakobs-
dóttir, farið létt
með þetta ábyrgðarfulla hlutverk og
fengið dýrmæta reynslu áður en
stökkið stóra yrði tekið út í hinn stóra
heim. Þá er líka spurning hvort ein-
hver þessara söngkvenna sé tilbúin
að hella sér út í það að vera ein-
göngu Stuðmaður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sjónvarpsmaðurinn eldhressiSveppi mun leika Kalla á þakinu í
samnefndu fjölskylduleikriti sem verð-
ur sýnt í Borgarleikhúsinu í sumar.
Frumsýningardagur-
inn færist óðum nær
og æfingar verða að
sama skapi tíðari og
stífari. Það má því
gera ráð fyrir að
Sveppi verði önnum
kafinn næstu vikur
og mánuði
og að Kalli
muni óhjá-
kvæmilega koma
niður á þátttöku
hans í hinum vin-
sælu þáttum Strák-
arnir á Stöð 2. Þættirnir eru
sendir út alla virka daga og taka sinn
tíma í framleiðslu en aðdáendur
Strákanna bíða nú spenntir eftir því
að það skýrist hvort Sveppi muni
standa vaktina áfram eða fara í frí.
Fari Sveppi í frí þurfa þeir Auðunn
Blöndal og Pétur Jóhann Sigfússon
að gera upp við sig hvort þeir treysti
sér til að halda þættinum úti Sveppa-
lausir eða hvort leitað verði að afleys-
ingu en það er líklega á fárra færi að
fylla skarð Sveppa.