Fréttablaðið - 02.04.2005, Page 1

Fréttablaðið - 02.04.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI LAUGARDAGUR H. C. ANDERSEN Sinfóníuhljómsveitin heldur fjölskyldutónleika í Háskólabíói klukkan þrjú til að minnast fæðingar H. C. Andersen fyrir 200 árum. Örn Árnason leik- ari verður kynnir og sögumaður. DAGURINN Í DAG 2. apríl 2005 – 87. tölublað – 5. árgangur BÍLAR ÁN ÁBYRGÐAR Bandarískir bíl- ar sem einstaklingar flytja hingað njóta ekki ábyrgðar hér og er bílaumboðunum ekki skylt að gera við þá. Milli 500 og 600 bílar eru fluttir inn í hverjum mánuði. Sjá síðu 2 SKATTURINN TIL SKOÐUNAR Samkeppnisstofnun skoðar gjaldskrá fast- eignasala í kjölfar kvartana um að sumir fasteignasalar kynni verð sín án virðisauka- skatts. Því hækki þóknun þeirra um fjórð- ung frá því sem gefið var upp þegar kemur að greiðslu. Sjá síðu 2 RÁÐIST Á KENNARA Líkamsárásir á kennara eru daglegt brauð í sumum grunn- skólum í Reykjavík. Þroskaþjálfi segir að með þjálfun og reynslu læri starfsmenn skólanna að finna þanþol barnanna svo draga megi úr þessum árásum. Sjá síðu 4 Kvikmyndir 38 Tónlist 36 Leikhús 36 Myndlist 36 Íþróttir 30 Sjónvarp 40 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 VEÐRIÐ Í DAG ÞAÐ MÁ BÚAST VIÐ VINDSTRENG MEÐ norðurströndinni en golu annars staðar. Rigning, slydda eða snjókoma sunnan- og austanlands. Sjá síðu 4 Kvótinn er í kollinum SÍÐA 20 ▲ Bjarni Haukur Þórsson fékk leiklistarverðlaun í Svíþjóð: Markmiðið var að sigra SÍÐA 28 ▲ Íris Auður Jónsdóttir fór með sigur úr býtum í hönnunarkeppni Henson: 67% landsmanna lesa Frétta- blaðið daglega að meðaltali.* Enginn annar fjölmiðill fyrir utan Ríkissjónvarpið nær til svo margra. *Gallup febrúar 2005 Væntanlegir í lang- þráða Íslandsheimsókn Hljómsveitin Trabant: ● bílar ● vilja ekki sjá sítt að aftan Hrifnust af smá- gerðum bílum Alma Guðmundsdóttir í Nylon: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Duran Duran: ▲ SÍÐA 42 4 dagar: 34.900 kr.Grænland www.arcticwonder.com BERLÍNARMÚRINN Ný viðhorfsrannsókn sýnir að margir Vestur- Þjóðverjar sakna tímans fyrir fall múrsins. Þýsk skoðanakönnun: Sjá eftir múrnum ÞÝSKALAND Fjórði hver Vestur- Þjóðverji telur að lífið hafi verið betra fyrir fall Berlínarmúrs- ins. Þetta kemur fram í niðurstöð- um viðhorfskönnunar sem gerð var á vegum háskólans Freie Universität í Berlín og þýsku skoðanakannanastofnunarinnar Forsa. Samkvæmt frásögn dagblaðs- ins Berliner Morgenpost sýna niðurstöðurnar að þekktar klisj- ur um viðhorf Þjóðverja til sam- einingar Austur- og Vestur- þýskalands eigi sér raunveru- lega stoð í mörgum tilvikum. Ein þessara klisja er að Vestur- Þjóðverjar sakni múrsins vegna þess að uppbyggingin í Austur- Þýskalandi kosti vestur-þýska skattgreiðendur svo mikla pen- inga og sé baggi á efnahagslífi sameinaðs Þýskalands. ■ Sviptingar á markaði: Nýtt met í Kauphöll VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan hækk- aði um rúmt prósent í gær og endaði í 3.957 stigum. Vísitalan, sem mælir gengi stærstu fyrir- tækja á markaði, hefur aldrei staðið hærra. Fyrra met var sett í byrjun október 2004 þegar Úrvalsvísi- talan fór hæst í 3.947 stig en í kjölfarið lækkuðu hlutabréf hratt. Hækkunina í gær má fyrst og fremst rekja til þess að fréttir bárust af formlegum viðræðum milli fulltrúa KB banka og stjórnar breska bankans Singer & Friedlander um kaup íslenska bankans á þeim breska. Búast má við að verð á breska bankan- um verði á milli 60 og 65 millj- arðar króna ef af samningi verð- ur. - þk Sjá síðu 16 RÍKISÚTVARPIÐ Auðun Georg Ólafs- son hætti í gær við að taka starfi fréttastjóra Útvarps, nokkrum klukkustundum eftir að hann sat fund þar sem hann óskaði eftir góðu samstarfi við fréttamenn en kvaðst skilja þá sem ekki vildu starfa með honum og ákvæðu að hætta. Fréttamenn hvöttu hann á móti til að taka ekki starfinu. Eitt af því sem reyndist Auðuni Georg erfitt er viðtal við Ingimar Karl Helgason, frétta- mann Útvarps, þar sem hann varð tvísaga um hvort hann hefði átt fund með Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, formanni út- varpsráðs. Auðun Georg telur Ingimar hafa lagt gildru fyrir sig í viðtalinu. „Í viðtali sem ég veitti frétta- manni Ríkisútvarpsins í dag í til- efni af því að ég hæfi störf var með lævíslegum hætti reynt að koma mér í vandræði. Það tókst, þar sem ég vildi ekki rjúfa trún- að. En fréttamaðurinn var ekki hlutlaus; hann var málsaðili og honum tókst ekki að gera greinar- mun þar á,“ sagði Auðun Georg í yfirlýsingu sinni í gær.“ Ekki náðist í Markús Örn Ant- onsson útvarpsstjóra í gærkvöld en hann sagði í viðtali á Stöð 2 að setja mætti spurningarmerki við hvort fréttamenn hafi staðið rétt að verkum. „Ég segi það sem mína skoðun og hef nú haft orð á því í útvarp- inu að það er furðu langt gengið í þessum fréttaflutningi og menn hafa notað sérhvert tækifæri sem þeir hafa. Þeir hafa mjög víðtækt umboð, fréttamenn og dagskrár- gerðarmenn Ríkisútvarpsins, til að koma að málflutningi sem er hagstæður þeirra málstað í þessu, inni í fréttum, inni í hinum og þessum dagskrárhornum, bæði í sjónvarpi og útvarpi,“ sagði Markús Örn. Jón Gunnar Grjetarsson, for- maður Félags fréttamanna, vildi ekki tjá sig efnislega um þá gagn- rýni sem Auðun Georg setti fram á fréttamenn í yfirlýsingu sinni. Hann fagnar þó þeirri ákvörðun Auðuns að taka ekki starfinu og telur hana mjög skynsamlega. „Hann er maður að meiri að hafa gert þetta.“ - bþg Sjá síður 6 og 8 AP M YN D PÁFAGARÐUR, AP Tugþúsundir komu saman á Péturstorgi í gærkvöld til að biðja fyrir Jóhannesi Páli páfa II þar sem hann lá fyrir dauðanum í íbúð sinni í Páfa- garði. Sumir héldu á kertum, aðr- ir héldu höndum saman í bæn og margir grétu. Fólkið leit upp af flóðlýstu Péturstorginu upp að íbúð páfa þaðan sem ljós skein út um gluggann til marks um að páf- inn væri enn á lífi. Fréttir birtust í ítölskum fjöl- miðlum síðla dags í gær um að páfi væri látinn. Talsmenn Páfa- garðs báru það hins vegar til baka. Þó var viðbúið að páfi yfir- gæfi jarðlífið hvað úr hverju og sögðu menn ekki ólíklegt að það gerðist í nótt. Talsmenn Páfagarðs sögðu ástand páfa alvarlegt, andar- dráttur hans væri veikur og hjarta hans og nýru við það að gefa eftir. „Ég vonast eftir kraftaverki,“ sagði Luciana Biella, ítölsk kona sem var viðstödd guðsþjónustu en sagði þó erfitt að ímynda sér kraftaverk á þessari stundu. ■ Banalega Jóhannesar Páls II: Tugþúsundir báðu fyrir páfa FJÖLMENNI Á PÉTURSTORGI Fjöldi fólks lagði leið sína á Péturstorgið og bað fyrir Jóhannesi Páli páfa II. Kaþólikkar söfnuðust saman víða um heim. Fjölmennar samkomur voru haldnar víða í Póllandi þar sem páfinn er fæddur og hefur löngum verið hafður í miklum metum. Sagði sig frá starfinu Auðun Georg Ólafsson tekur ekki við starfi fréttastjóra Útvarps. Hann segir fréttamenn hafa reynt að koma sér í vandræði með lævíslegum hætti. Útvarpsstjóri hefur efasemdir um framgöngu fréttamanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.