Fréttablaðið - 02.04.2005, Blaðsíða 24
Hreinir hjólbarðar
Það er nauðsynlegt að þrífa dekkin á bílnum reglulega – ekki síst nú þegar vorið er
komið og ekki von á meiri saltaustri í höfuðborginni. Það er hægt að kaupa dekkja-
hreinsi á bensínstöðvum sem er úðað á dekkin um leið og bíllinn er þveginn.[ ]
G. Tómasson ehf • Smiðjuvegi 8, Kópavogi
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
• hvellur@hvellur.com
NÝJASTA ÆÐIÐ!
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
Partur–Spyrnan–Lyftarar
Eldshöfða 10
s. 585 2500 og 567 8757
TRIO
G O L F H J Ó L
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Bíll fyrir fagurkera
Citroën C4 Saloon er nettur fjölskyldubíll með útlit sem sker sig úr fjöldanum.
Nýr Citroën C4 var kynntur
hjá Brimborg fyrir nokkrum
vikum. Hann kemur í fimm
dyra útfærslu, Saloon, og
þriggja dyra, Coupé. Í raun er
um nokkuð ólíka bíla að
ræða. Á meðan Saloon er fjöl-
skyldubíll í minna meðallagi
er Coupé afar sportlegur.
Citroën er þekkt fyrir flest annað
en að fara troðnar slóðir í hönnun
bíla. Hver man ekki eftir gömlu
bröggunum sem ekki áttu neina
sína líka á götunum eða fínu
drossíunum með glussakerfinu
sem lyfti bílnum tígulega upp um
leið og honum var startað. Þótt
Citroën-bílar dagsins í dag skeri
sig kannski ekki eins mikið úr og
þessir fyrirrennarar eru þetta þó
bílar sem tekið er eftir, reyndar
ekki síður þegar inn í bílinn er
komið.
Citroën C4 Saloon er þarna
engin undantekning. Þetta er bíll
sem sker sig úr þótt útlitið á
Coupé bílnum sé raunar enn sér-
stakara. Sérkenni innréttingar-
innar er kannski fyrst og fremst
fólgin í staðsetningu mælaborðs-
ins. Fyrir ofan stýrið er eingöngu
að finna snúningsmæli, allt annað
er í borði fyrir miðju þannig að
farþegar hafa að því jafngóðan
aðgang og bílstjórinn sjálfur. Af
skemmtilegum búnaði í þessum
bíl má nefna ljós í mælaborði sem
sýna hvort belti eru spennt, líka
belti í aftursæti, stýri með fastri
miðju og hraðastilli og stillan-
legan hraðatakmarkara sem er
staðalbúnaður. Bíllinn er ágæt-
lega búinn geymsluhólfum og
snögum og sætin eru þægileg.
Citroën C4 Saloon er aðgengi-
legur í allri umgengni og lipur og
þægilegur í akstri, ekki síst í inn-
anbæjarakstri þar sem nettleik-
inn kemur sér vel. Bíllin er búinn
öllum helsta öryggisbúnaði. Má
þar nefna hemlajöfnun og neyðar-
hemlunarbúnað og rétt er að geta
þess að C4 Saloon fékk hæstu ein-
kunn frá upphafi í sínum stærðar-
flokki í hinu þekkta öryggisprófi
EuroNCAP eða 35 stig.
Citroën C4 Saloon er bíll fyrir
fagurkera. Þeir sem hafa gaman
af frumlegri og fallegir hönnun
munu sannarlega njóta þess að
setjast inn í þennan bíl. Um leið er
C4 ljúfur og skemmmtilegur fjöl-
skyldubíll af minna meðallagi,
þægilegur í umgengni bæði fyrir
bílstjóra og farþega, lipur í akstri
og síðast en ekki síst öruggur.
steinunn@frettabladid.is
REYNSLUAKSTUR
CITROËN C4 SALOON
Verð frá 1.920.000 (1,6i 16V bensínbíll)
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Óhætt er að segja að haldið hafi verið
upp á aldarfjórðungsafmæli Quattro
með óvenjulegum hætti. Ákveðið var
að endurtaka 19 ára gamlan leik þegar
rallíökumaðurinn Harald Demuth ók
Audi 100 Quattro upp skíðastökkpall-
inn Pitkävuori í Finnlandi, 47 metra.
Þetta tókst á sínum tíma slysalaust.
Leikurinn var svo endurtekinn á dög-
unum og allt fór vel eftir nokkra byrj-
unarörðugleika. Að þessu sinni kom
það í hlut verkfræðings hjá Audi, Uwe
Bleck, að aka upp skíðastökkpallinn á
A6 4,2 Quattro með 335 hestafla V8
vél. Þrátt fyrir mikið afl náði Bleck ekki
nema upp í miðja brekku í fyrstu til-
raun. Það var ekki fyrr en búið var að
setja undir bílinn negld rallídekk að
bíllinn komst alla leið upp skíðastökk-
pallinn sem er með 37,5 gráðu halla.
Þá var líka fjandinn laus og Bleck ók
ellefu ferðir upp og niður Pitkävouri.
Engum brögðum var beitt að sögn for-
ráðamanna Audi en nokkrum vand-
kvæðum var bundið bæði að leggja
bílnum efst á stökkpallinum og hins
vegar að bakka honum niður aftur.
Hvort tveggja hafðist þó með nokkrum
tilfæringum.
Quattro í aldarfjórðung