Fréttablaðið - 02.04.2005, Page 2

Fréttablaðið - 02.04.2005, Page 2
2 2. apríl 2005 LAUGARDAGUR Samkeppnisstofnun: Skoðar skattinn hjá fasteignasölum FASTEIGNAMARKAÐURINN Samkeppn- isstofnun er að skoða gjaldskrá fasteignasala með tilliti til þess hvort þeir gefi upp verð á þjón- ustu sinni með virðisaukaskatti eða ekki. Sigurjón Heiðarsson, lögfræðingur hjá Samkeppnis- stofnun, telur að vanhöld séu á því. „Reglan er sú að uppgefið verð skal vera endanlegt verð til kaup- anda. Þetta gildir um alla. Það er óheimilt að gefa upp verð án þess að virðisaukaskattur sé innifal- inn,“ segir hann. „Við höfum fengið athuga- semdir og kvartanir yfir því að þetta sé ekki gert í öllum tilvik- um, fólk fær allt í einu viðbót, 24,5%, sem það á ekki von á. Rætt er um hvort rétt sé að koma upp einhverjum reglum sem fasteignasalar þyrftu að fara eft- ir. Þetta er í skoðun,“ segir hann. Starfsmenn Samkeppnisstofn- unar eru einnig að skoða heimild fasteignasala fyrir umsýslu- gjaldi. Björn Þorri Viktorsson, for- maður Félags fasteignasala, vildi ekki ræða þetta mál þegar leitað var eftir viðbrögðum hans. - ghs Ábyrgðin fellur úr gildi við innflutning Hægt er að hagnast um stórar upphæðir á því að kaupa bíla frá Bandaríkjun- um en sumir kaupa líka köttinn í sekknum. Milli fimm- og sexhundruð bílar eru fluttir inn í hverjum mánuði. Stórir pallbílar vinsælastir. BIFREIÐAINNFLUTNINGUR Hægt er að hagnast verulega á bifreiðainn- flutningi frá Bandaríkjunum, en það er líka hægt að tapa. Þannig eru dæmi um að innfluttir bílar hafi komið bilaðir til landsins eða bilað skömmu eftir komuna og þá getur reynst erfitt fyrir fólk að fá leiðréttingu sinna mála frá seljanda. Engu skiptir þótt viðkomandi bíll sé í ábyrgð því sú ábyrgð gildir aðeins í Bandaríkjunum og eru íslensku umboðin ekki skyldug til að ganga inn í ábyrgðina. Talsverð áhætta fylgir því innflutningi sem þessum, en miðað við þá miklu aukningu sem orðið hefur setja menn það greinilega ekki fyrir sig þegar hagnaðarvonin er annars vegar. Reikna má með að milli fimm- og sexhundruð bílar séu nú fluttir inn frá Bandaríkjun- um í hverjum mánuði og hefur innflutningurinn margfaldast frá fyrri árum. Til dæmis jókst innflutningur á pallbílum til Ís- lands í janúar og febrúar á þessu ári um 400 prósent miðað við sömu mánuði í fyrra. Aðal- lega eru þetta stórir pallbílar sem fluttir eru inn, bílar sem eru yfir fimm tonn að þyngd og bera því ekkert vörugjald. Lágt gengi dollars gagnvart íslensku krónunni er megin- ástæða þessarar miklu aukning- ar á innflutningi bíla frá Banda- ríkjunum. Mesta breytingin er að bílainnflutningur einstak- linga hefur margfaldast en í mörgum tilfellum kaupa menn sér bíla gegnum netið og anna skipafélögin varla spurn eftir flutningum til landsins. Dæmi eru um að menn hafi hagnast dável á innflutningi með þessum hætti. Þannig ræddi Fréttablaðið við mann sem keypti tvo Cheerokee jeppa árgerð 2000 á uppboðsvefnum E-Bay í fyrra og flutti til lands- ins. Hann greiddi um ellefu þús- und dollara fyrir hvorn bíl fyrir sig eða nálægt 1,7 milljónum króna á þáverandi gengi. Miðað við gengi dagsins í dag væru þetta um 1,3 milljónir króna. Maðurinn seldi síðan annan bíl- inn á 2,4 milljónir króna og hagnaðist þannig um 700 þúsund krónur. Sá hagnaður væri kom- inn yfir eina milljón króna á gengi dagsins í dag. ssal@frettabladid.is SEKT VEGNA FÍKNIEFNA Hér- aðsdómur Austurlands dæmdi mann til greiðslu 56 þúsunda króna sektar ellegar tólf daga fangelsis vegna tveggja brota á fíkniefnalögum. Varð maður- inn tvívegis uppvís að því að geyma fíkniefni í íbúðarskála sínum að Kárahnjúkum. FANGELSI FYRIR HRAÐAN AKSTUR Manni, sem ákærður var fyrir að aka réttindalaus 30 kílómetra yfir hámarks- hraða, var engin linkind sýnd þegar mál hans var tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands. Hann fékk þriggja mánaða fangelsisdóm en maðurinn hefur margoft komist áður í kast við lögin af svipuðu til- efni. Líkfundarmál: Súdani eftirlýstur DANMÖRK, AP Danska lögreglan greindi frá því í gær að hún hefði gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur tuttugu og sjö ára gömlum manni frá Súdan í tengslum við rannsóknina á morði á dönskum leigubílstjóra. Lík hans fannst sund- urhlutað í miðborg Kaupmanna- hafnar um páskana. Ove Dahl, yfirmaður morðrann- sóknardeildar lögreglunnar í Kaup- mannahöfn, vildi ekki gefa upp hvort hinn eftirlýsti væri grunaður um verknaðinn, en sagði að hann væri „lykilmaður“ í rannsókninni, hann kvað vel þekktur í undirheim- um Kaupmannahafnar undir viður- nefninu „Jagúarinn“. ■ FISCHER FÉKK RÍKISFANGSBRÉFIÐ Meðlimir stuðningsnefndarinnar og eigin- konur þeirra buðu Fischer og Miyoko Watai, unnustu hans, í kvöldverðarhóf. Stuðningsnefndin: Hóf Fischer til heiðurs FISCHER-MÁLIÐ Stuðningsmenn Bobby Fischer, sem börðust fyrir lausn hans úr varðhaldi í Japan, héldu hóf honum til heiðurs í gær- kvöld. Þar afhentu þeir honum rík- isfangsbréfið sem dómsmálaráðu- neytið gaf út til staðfestingar því að Fischer væri orðinn íslenskur ríkis- borgari. „Þetta var fagnaðarhóf stuðn- ingsnefndarinnar til að halda upp á sigurinn í þessari frelsisbaráttu Bobby Fischer og fagna komu hans hingað til lands og því að hann skuli orðinn frjáls maður, Íslendingur. Við afhentum honum staðfestingu á því, sem fórst fyrir við komuna, af sérstökum ástæðum,“ segir Einar S. Einarsson í stuðningshópi Fischers. - bþg ■ LÖGREGLUMÁL ÞRÍR LETTAR ÁKÆRÐIR Lögreglu- stjórinn á Selfossi hefur gefið út ákæru á hendur þremur Lettum sem talið er að hafi starfað hér án tilskilinna atvinnuleyfa. Ját- uðu þeir brot sín og voru dæmdir hver um sig til eins mánaðar skil- orðsbundins fangelsis. KYNFERÐISBROTAMÁL Í RANN- SÓKN Lögregla og sýslumaðurinn á Patreksfirði hafa nú til rann- sóknar nýtt kynferðisbrotamál þar í bæ. Karlmaður er grunaður um misnotkun á unglingsstúlku og mun málið að lokinni rannsókn verða sent ríkissaksóknara. Ökutækjaskráning: Öll met að falla BIFREIÐAINNFLUTINGUR „Við erum að slá öll met í skráningum bíla,“ segir Kristján Rúriksson, verkefnisstjóri hjá Umferðarstofu, en einn anginn af vaxandi bílainnflutningi frá Bandaríkjunum er álag á starfsfólk ökutækjaskráningar. Sem dæmi um þá miklu aukningu sem átt hefur sér stað þá voru nýskráningar öku- tækja á tímabilinu janúar til mars á síðasta ári 3.740, en samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa 9.545 öku- tæki verið skráð hjá Umferðar- stofu. „Þetta er aukning um 66 pró- sent og það segir sína sögu um hvað er að gerast,“ segir Kristján Rúriks- son. ■ AMERÍSKIR BÍLAR STREYMA TIL LANDSINS Stórir amerískir pallbílar eru nýjustu leikföng Íslendinga. ■ APRÍLGABB ■ DÓMSMÁL FOSSVOGUR Starfsmenn Samkeppnisstofnunar skoða hvort fasteignasala gefi upp verð með virð- isaukaskatti eða ekki. Lögfræðingur stofnun- arinnar telur vanhöld á því. Kvartanir og at- hugasemdir þar um hafa borist stofnuninni. EKKERT FJÖLTEFLI Ekkert varð af því að Bobby Fischer tefldi fjöltefli við almenning í Vetrargarði Smára- lindar í gær. Frétt um fyrirhugað fjöltefli var aprílgabb. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L SKATTAR Skattayfirvöld á Íslandi hafa aukið eftirlit með eignum Íslendinga erlendis á síðustu árum í kjölfar þess að æ fleiri Íslendingar fjárfesta í útlöndum og eiga þar eignir af ýmsu tagi, svo sem fasteignir, hlutabréf eða bankainnistæður. Þannig sagði Fréttablaðið frá því í gær að skákmeistarinn Bobby Fischer ætti um 200 milljónir króna á bankareikningi í Sviss, sem hann yrði að telja fram til skatts hérlendis og greiða fjár- magnstekjuskatt af vöxtum. Að sögn Indriða Þorlákssonar ríkisskattstjóra hafa skattayfir- völd hér á landi aukið eftirlit sitt með málum af þessu tagi með samningum við skattayfir- völd annarra landa. Slíkir samn- ingar eru ekki í gildi milli Sviss og Íslands en Indriði er þess fullviss að svissnesk yfirvöld myndu veita slíkar upplýsingar ef grunur væri um undanskot undan skatti. Hann segir al- mennt ekki erfitt að fá upplýs- ingar frá Vestur-Evrópulöndum eða Bandaríkjunum; það eru skattaparadísir á borð við Cayman-eyjar sem eru stóri vandinn. „Það er verið að vinna í þeim málum innan OECD en það byggist allt á því að þessi lönd séu reiðubúin að gera gagn- kvæma samninga við önnur lönd um upplýsingaskyldu,“ segir Indriði. - sþs Ríkisskattstjóri um fjárfestingar í útlöndum: Skattaparadísir vandamál RÍKISSKATTSTJÓRI Fylgist betur með eignum Íslendinga erlendis. SPURNING DAGSINS Ólafur, hvert var nú besta aprílgabb fjölmiðlanna í gær? Mér fannst Coldplay-aprílgabb Morgun- blaðsins best því þeir beittu „tálbeitu- gabbi“ við hlið þess. Ef fréttin um Cold- play var ekki gabb þá allavega náðu þeir að láta mig halda að svo væri. Segir Ólafur Teitur Guðnason, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, sem fylgist grannt með umfjöll- un fjölmiðla í landinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.