Fréttablaðið - 02.04.2005, Qupperneq 20
„Ég hef alltaf verið áhugasamur
um mannlegt eðli og finnst húmor
byggður á alvöru lífsins skemmti-
legri en hárkollur og eftirhermur í
trúðslátum,“ segir Bjarni Haukur
sem þessa dagana leikstýrir eigin
gamanþáttum fyrir TV4 í Svíþjóð.
Sagan er um Hannes sem hefur
nýtt ástarsamband og erfiðleikana
sem koma upp í sambúðinni.
„Þetta er ný útfærsla á sjón-
varpsþáttum sem ég skrifaði og
leikstýrði fyrir TV2 í Noregi og
heitir Hos Martin. Fyrsta serían
var í 26 þáttum sem teknir voru
upp vikulega fyrir framan 400
áhorfendur, og nú er byrjað að
taka upp næstu 26 þættina fyrir
haustið. Sænsku þættina, sem
heita Hon og Hannes, geri ég öðru-
vísi, meira í átt við comedy drama,
með tveimur myndavélum í stað
fjögurra, úti og inni á setti, og leik-
stýri tólf af þeim þáttum sjálfur.“
Fékk sænsku leiklistarverðlaunin
Bjarni Haukur hefur veðjað á
sjálfan sig í Svíþjóð og Noregi síð-
astliðin fjögur ár. Hann býr enn á
Íslandi en í uppvextinum átti hann
nokkur ár í Svíþjóð þegar foreldr-
ar hans voru í námi.
„Ég kann ofsalega vel við mig á
Norðurlöndunum því þau liggja
nálægt manni í menningu, tungu
og fólkinu sjálfu. Ég hef verið að
brölta þetta í útlöndum og fór með
tvær hendur tómar til að freista
gæfunnar. Það hefur kostað
ómælda vinnu, en er nú loks farið
að skila sér. Lykillinn reyndist að
vera með eitthvað í höndunum sem
maður trúir á og góðan sann-
færingarkraft. Með það veganesti
er allt mögulegt þótt þessi bransi
snúist í aðalatriðum um það að
þekkja rétta fólkið. Þetta er heim-
ur réttra sambanda og nú hefur
mér tekist að byggja upp mjög gott
net fagfólks, hvort sem það er
fólkið á sjónvarpsstöðvum Norður-
landa, framleiðendur eða bestu
leikararnir.“
Bjarni setti upp söngleikinn
Grease í einu virtasta leikhúsi
Svía, Göta Lejon á liðnu hausti.
Fremstu leikarar Svíþjóðar, sem
og dansarar og tónlistarmenn hafa
gert sýninguna að listaverki og í
mars fékk sýningin Sænsku leik-
listarverðlaunin.
„Grease fékk fern verðlaun:
fyrir besta söngleikinn, besta
dansinn, besta aðalleikarann og
bestu aukaleikkonuna. Grease hef-
ur oftsinnis verið settur á svið í
Svíþjóð en mig langaði að gera það
á ferskari hátt en áður. Það hefur
verið ánægjulegt að upplifa hve
vel hefur gengið, en sýningar eru
enn í gangi og verða áfram næsta
vetur.“
Mistök í lagi
Bjarni Haukur stimplaði sig inn í
þjóðarsál Íslendinga þegar hann
fór með hlutverk Hellisbúans 1998
til 2001. Sá einleikur hefur síðan
verið sýndur í leikstjórn Bjarna
Hauks í Noregi og Svíþjóð, og
verður settur upp í Japan á hausti
komanda.
„Ég var 26 ára þegar hundrað
þúsund manns komu að sjá Hellis-
búann. Slík velgengni er varasöm
og auðvelt að halda að eftirleikur-
inn verði auðveldur. Í upphafi von-
ar maður að hlutirnir gangi upp og
þegar slíkt gerist fær maður byr
undir báða vængi og meira sjálfs-
traust. Þá verður í lagi að eitthvað
mistakist. Eftir Hellisbúann skrif-
aði ég og setti upp einleikinn
Haukinn en þá kom enginn. Í
fyrstu var ég æðislega hissa, en
skildi svo að það var verkið sem
var ekki nógu gott og aðsóknar-
leysið ekki persónulegt. Ég tel
mikilvægt að lenda í mótlæti á
leiðinni, því maður lærir meira á
floppum en velgengni,“ segir
Bjarni hugsi og bætir við: „Þeir
sem standa af sér hrakningar
verða sterkari fyrir vikið. Haukur-
inn var það besta sem gat komið
fyrir mig.“
Bjarni Haukur hefur sýnt síðar
að hann er á réttri hillu sem hand-
ritshöfundur, framleiðandi, leik-
stjóri og leikari.
„Það á vel við mig að skrifa
fyrir sjónvarp, en ég er þó senni-
lega sterkari framleiðandi en rit-
höfundur, og eftir því sem ég leik-
stýri meira finnst mér sú vinna æ
skemmtilegri. Hún á ágætlega við
minn karakter; sameinar skipulag
og listir.“
Tíu ára leikhússtjóri
Bjarni Haukur var á barnsaldri
þegar leiklistargyðjan lagði fyrir
hann snörur sína.
„Það eru að vísu einhverjir
listamenn í familíunni, en ég er
einkasonur og hef trúlega fengið
of mikla athygli. Tíu ára hélt ég úti
leikhúsi í kjallaranum heima á
Lindargötu þar sem ég skrifaði,
leikstýrði og lék sjálfur, bæði ein-
leiki og stærri leikrit, allt eftir
hentugleik hvað náðist í marga.
Þetta lá því ljóst fyrir og seinna
hélt ég til New York í leiklistar-
nám. Það hafði mikil áhrif á mig,
enda hvetjandi að búa í borg sem
er svo rík af leikhúsi, bíói og sjón-
varpi. Ég drakk það allt í mig.“
Bjarni Haukur hefur ekki leikið
sjálfur á sviði í mörg ár, ekki síðan
í Þjóðleikhúsinu að hann lék í Bláa
hnettinum og Vilja Emmu.
„Það er gaman að leika en ég
sakna þess ekkert svakalega. Ég er
með sjö verkefni í undirbúningi og
mun ekki leika sjálfur í neinu
þeirra. Ég vil sem minnst segja um
verkefnin á þessu stigi, en get upp-
lýst að eitt þeirra er leikstjórn á
The Sunshine Boys eftir Neil
Simon í China Teatern í haust, með
tveimur af þekktustu leikurum
Svíþjóðar, þeim Brasse Bränn-
ström og Magnus Härenstam.“
Þrátt fyrir ört vaxandi vel-
gengni segist Bjarni Haukur ekki
orðinn veraldlega ríkur.
„Ég hef það ágætt, en andlegt
ríkidæmi skiptir mig meira máli
en beinharðir peningar. Mér hefur
alltaf fundist skrýtið þegar menn
fara út í þennan bransa í því
augnamiði að verða ríkir, en ekki
af hugsjón. Það er áhættusamt að
setja upp sýningar en maður verð-
ur alltaf betri og betri. Ég hef auð-
vitað margoft spurt mig hvurn
djöfulinn ég er að gera og hví í
ósköpunum ég uppsker ekki meira,
en það kemur. Á meðan ég get fætt
og klætt fjölskyldunna er ég glað-
ur og sáttur.“
Nýir kaflar
Bjarni Haukur átti hlut í fyrirtæk-
inu Lífsstíl ásamt sakborningunum
í Símamálinu, þeim Kristjáni Ra
Kristjánssyni, Árna Þóri Vigfús-
syni, en fyrirtækið varð áberandi í
þjóðfélagsumræðunni samhliða
Símamálinu.
„Þetta eru tvö aðskilin mál. Ég
tapaði peningum á Lífsstíl og það
kom mér illa fjárhagslega en
Símamálið er mér alls óviðkom-
andi, utan þess að flæktir eru í það
góðir vinir mínir og það hefur mér
fundist skelfilegast af öllu. Þegar
maður á vini sem lenda í vondu
klandri er eðlilegt að maður taki
slíkt inn á sig og finni til. Lífsstíll
var dýrt námskeið, en það er að
baki og þeim kafla lokið.“
Bjarni Haukur eignaðist son í
fyrra sem hann í viðtali sagði vera
eins og Guð.
„Drengurinn er enn meiri Guð
núna, alveg yndislegur. Það er frá-
bært að vera pabbi. Konan mín
segist vera hálfgerð sjómannsfrú
og ég reyni að vera með þeim eins
mikið og ég get þegar ég er í landi,
eftir útgerðina ytra. Kvótinn er
hvort eð er í kollinum,“ segir
Bjarni Haukur hlæjandi, sáttur að
sjómannasið. ■
20 2. apríl 2005 LAUGARDAGUR
Frábært úrval af
góðum vörum
Barna og fullorðins
fatnaður.
50-90% afslætti .
Golffatnaður,
útivistarfatnaður, skíða
og snjóbrettafatnaður,
einnig mikið úrval
af skóm.
Verðdæmi:
Útivistarjakki: Áður 29.990- Nú : 6.900-
Úlpur: Áður 19.900- Nú: 6.900-
Fótboltaskór Áður 12.990- Nú: 3.990-
Brettajakar: Áður: 17.990- Nú: 3.990-
Opið eingöngu:
Föstudag 1. Apríl. 14:00 til 20:00
Laugardag 2. Apríl. 10:00 til 18:00
Sunnudag 3. Apríl. 11:00 til 18:00
ATH. Nýtt heimilisfang,
Nýbýlavegi 18 (Dalbrekku megin) Kópavogi
HEILDSÖLU LAGERSALA
ÞÚSUNDÞJALASMIÐUR Bjarni Haukur Þórsson útskrifaðist sem leikari úr virtum leiklistarskólum New York-borgar en hefur gert minnst
af því að leika undanfarin ár. Hann fékk ríkulegar vöggugjafir og stendur jafnfætis í handritsgerð, leikstjórn, leik og framleiðslu leikins efn-
is á sviði sem í sjónvarpi.
Leikstjórinn Bjarni Haukur Þórsson fær stundum
óstöðvandi hláturskast yfir hversdagslegum aðstæð-
um vina og vandamanna. Hann á auðvelt með að sjá
hið skondna við daglegt líf, eftir því sem hann segir
sjálfur, en þessar sömu gamanlinsur hafa gert lifi-
brauð hans æ vænna og ævintýralegra. Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir leyfði Bjarna Hauki að hlæja að sér.
Kvótinn er í kollinum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
ÚR SMIÐJU BJARNA HAUKS Hér má sjá verk Bjarna Hauks í sænskum og
norskum leikhúsum og sjónvarpi.