Fréttablaðið - 02.04.2005, Page 40
Úrslitin í Hönnunarkeppni Henson voru kynnt í Ráðhúsinu miðvikudaginn 30.
mars. Alls bárust 2.783 tillögur í keppnina frá 694 einstaklingum. Halldóri
Einarssyni, eiganda Henson, fannst vera kominn tími til að halda alvöru hönn-
unarkeppni. Sér í lagi vegna velgengni Henson síðustu ára. Fyrirtækið var stofn-
að fyrir 36 árum og hefur alla sína tíð lagt áherslu á íþróttafatnað. Það náði
ákveðnum toppi á níunda áratugnum en var í hálfgerðum dvala um tíma. Fyrir
nokkrum árum vaknaði Henson aftur til lífsins þegar Henson-gallarnir komust
aftur í móð. „Ég fór frá fyrirtækinu í ákveðinn tíma og á meðan héldu konan
mín og dóttir fyrirtækinu gangandi. Þegar ég kom til baka settum við allt á fullt.
Það gekk eftir og nú gengur alveg prýðilega. Við höfum líka verið að leggja
meiri áherslu á að hanna sérstakan fatnað fyrir íþróttakonur,“ segir Halldór og
rifjar upp söguna um það þegar Henson
var við það að slá í gegn úti í hin-
um stóra heimi. „Í kringum 1990,
löngu áður en útrás Íslending-
anna hófst, var fyrirtækið Hen-
son’s Sport USA stofnað en það
var í eigu stórs fyrirtækis í Am-
eríku. Þeir voru við það að
koma Henson vörunum
inn í stórar verslunarkeðj-
ur í Ameríku þegar fyrir-
tækið var nappað af
skattalögreglunni og veld-
ið hrundi í einni andrá.
Merkið hefur aldrei verið
eins nálægt því að slá í
gegn og verða alþjóð-
legt íþróttamerki,“ segir
Halldór. Í dag segist
hann vera mjög afslapp-
aður og ekki finna fyrir
neinni þörf til að slá í gegn í
útlöndum.
„Ég er búinn að prófa, það
gekk ekki upp og ég get ekki
verið annað en sáttur. Í dag
framleiðum við allt hér á Ís-
landi. Gallarnir sem komust í
úrslit í hönnunarkeppninni eru
þegar komnir í framleiðslu og
væntanlegir í verslanir,“ segir
Halldór Einarsson í Henson.
Íris Auður Jónsdóttir, fata-
hönnunarnemi á Spáni, sigraði
í hönnunarkeppni Henson.
Hún hannaði nýstárlega út-
gáfu af Henson-galla sem
nýtist vel til daglegra nota. Í
verðlaun fékk hún ferð með
Iceland Express, 100 þúsund
krónur í peningum og far-
tölvu frá Tæknivali. Hún
segist ekki vera farin að spá í
hvert skuli halda eða
hvernig peningunum verði
varið. Efst á baugi hjá
henni er að klára skólann í
sumar og flytja aftur til Ís-
lands.
Hönnunarneminn Íris Auður Jóns-
dóttir hefur dvalið í Madríd síðastlið-
in fjögur ár þar sem hún hefur stund-
að nám í fatahönnun við Istituto
Europeo Di Design. Hún ber skólan-
um vel söguna og segir að hann hafi
orðið fyrir valinu því hún hafi fengið
svo góðar viðtökur þegar hún heim-
sótti skólann í fyrsta skipti. Istituto
Europeo Di Design er upprunalega
ítalskur skóli en hann er talinn vera
einn af bestu hönnunarskólum á Spáni.
Íris Auður er á síðasta ári og lýkur
námi í sumar. Hún segir Spánardvölina
hafa verið mjög ánægjulega, enda hafði
það verið draumur hennar lengi að
flytjast til Spánar. Íris Auður ætlar að
flytja til Íslands í sumar en hún og kær-
asti hennar segjast vera orðin svolítið
þreytt á því að vera „útlendingar“. Móð-
ir hennar lét hana vita af hönnunar-
keppni Hensons og ákvað hún strax að
taka þátt. „Mér fannst ég verða að vera með
í þessari keppni, enda sá ég fram á að
þetta væri góð kynning fyrir mig ef ég
myndi vinna. Ég ætla bara að vona að
þetta auðveldi mér að fá vinnu þegar
ég kem heim,“ sagði Íris þegar Frétta-
blaðið sló á þráðinn til hennar. Íris
Auður sendi alls fimm tillögur inn í
keppnina en sigurgallinn er fyrsta
hugmyndin sem kom upp í kollinn á
henni. „Ég hafði það að leiðarljósi að
gallinn væri til daglegra nota en ekki
til íþróttaiðkunar. Ég var búin að
kynna mér vel hvernig íþróttagallar
væru uppbyggðir varðandi sauma og
annað. Litavalið kom svo bara af
sjálfu sér, en ég valdi bara þá liti sem
mér finnst fallegir.“ Aðspurð um það,
hvort hún sé mikill Henson-aðdáandi
segist hún hafa fylgst með merkinu í
gegnum tíðina en hafi aldrei átt eigin
galla. „Áhuginn á fatahönnun kviknaði
þegar ég flutti til Spánar. Upphaflega
ætlaði ég að fara í meira listnám en ég er
mjög ánægð með að hafa valið fatahönn-
unina. Ég kunni ekki að sauma þegar ég
byrjaði í skólanum en ég er búin að læra
óskaplega margt. Í skólanum mínum er
námið mjög fjölbreytt. Ég hef lært allt
frá saumaskap og sníðagerð upp í ljós-
myndun og markaðsfræði,“ segir Íris
Auður. Eins og staðan er núna er hugur
hennar farinn að leita til Íslands og
hlakkar hana til að koma heim.
„Ég er frá Akureyri en við ætlum að
flytja til Reykjavíkur í sumar og svo
kemur bara í ljós hvaða möguleikar
eru í boði. Ég ætla bara að vona að ég
fái starf við hæfi þar sem ég fæ að
teikna og hanna. Ég er ekki farin að
hugsa mikið lengra,“ segir hún al-
sæl með sigurinn.
28 2. apríl 2005 LAUGARDAGUR
HENSON Í SÓKN
FERSK HÖNNUN Íris Auður var ekki
lengi að hrista teikningu af þessum
galla fram úr erminni. Röndunum
á buxunum var breytt áður en
gallinn fór í framleiðslu.
ÍRIS AUÐUR JÓNSDÓTTIR Stundar nám við hönnunarskólann Istituto Europeo Di Design á Spáni.
Markmiðið var
að sigra
VERÐLAUNAGALLAR Kristrún Guðmundsdóttir hafnaði í
þriðja sæti (t.v.) og Fanney Antonsdóttir varð í sæti númer tvö.