Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 26.04.2005, Qupperneq 2
2 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR Undirheimar Akureyrar: Foreldrar óttaslegnir FÍKNIEFNI Margir foreldrar á Akur- eyri hafa undanfarna daga hringt í Foreldrahúsið í Reykjavík og fengið ráðgjöf í kjölfar þess að 17 ára piltur á Akureyri var fyrir rúmri viku skotinn ellefu skotum með loftbyssu. Elísa Wíum, starfsmaður Foreldrahússins, segir ótta hafa gripið um sig á meðal þeirra foreldra á Akureyri sem eiga börn sem nota fíkniefni og fólk viti ekki hvernig það eigi að bregðast við. „Við gefum ekki upp nöfn eða tölur en ég get þó sagt að svo virðist sem mikil fíkniefnaneysla sé á Akureyri núna og hafi verið í nokkurn tíma. Foreldrar eru hræddir um að börn sín verði fyrir barðinu á hand- rukkurum og skuldin þarf ekki alltaf að vera há,“ segir Elísa. Starfsmenn Foreldrahússins ráðleggja foreldrum eindregið að greiða ekki fíkniefnaskuldir barna sinna heldur leggja fram kæru verði þau fyrir áreiti. „Þeir eru samt margir sem ekki þora að kæra og borga frekar. Hættan er þá að fíkniefnasalarnir gangi á lagið og láni börnunum meiri fíkniefni og ég veit dæmi þess að fólk hafi misst íbúðir sínar að lok- um,“ segir Elísa. Umboðsmaður Alþingis: Uppsögn á röngum forsendum UMBOÐSMAÐUR Kona, sem vann hjá Tollstjóranum í Reykjavík, var látin skrifa undir uppsagn- arbréf á röngum forsendum, samkvæmt nýframkomnu áliti Umboðsmanns Alþingis. Tveir yfirmenn konunnar höfðu gefið henni kost á að segja upp starfi sínu í ljósi ávirðinga sem á hana voru bornar. Færi hún ekki að því íhugaði embættið að veita henni lausn frá starfi án áminn- ingar. Umboðsmaður segir í áliti sínu, að sér virðist sem það hefði verið forsenda þess að ákveðið var að gefa konunni kost á því að segja upp starfi sínu að heimilt hefði verið að segja henni upp án áminningar. Hann telji hins vegar ótvírætt að ekki hafi verið skilyrði í máli konunnar til að víkja frá almennri reglu laga um opin- bera starfsmenn, en þar er kveðið á um skyldu til að áminna ríkisstarfsmann og gefa honum kost á að bæta ráð sitt áður en honum er sagt upp. Umboðsmaður telur því að ætla megi, að konan hafi ritað undir uppsagnarbréfið á röngum for- sendum. Hann beinir þeim til- mælum til tollstjórans að mál konunnar verði tekið til athug- unar á ný með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem rakin eru í álitinu og að afstaða verði jafn- framt tekin til þess hvernig rétta megi hlut hennar. -jss Eignir og hagsmunatengsl: Kristinn fyrstur STJÓRNMÁL Kristinn H. Gunnarsson varð fyrstur þingmanna Fram- sóknarflokksins til að birta opin- berlega upplýsingar um eignir og hagsmunatengsl í samræmi við reglur sem þingflokkurinn setti sér í gær. Upplýsingarnar birti Kristinn á vef sínum, kristinn.is. Þar kemur fram að hann eigi engin hlutabréf, stofnsjóðsinneignir eða húsnæði annað en til eigin búsetu. Þá segist hann hvorki stunda atvinnustarf- semi aðra en þingstörf né hafa þeg- ið boðsferðir eða gjafir. Kristinn tiltekur að hann sé formaður stjórnar Tryggingastofnunar. - bþg Stefnuræða Pútíns: Reyndi að róa fjárfesta MOSKVA, AP Vladimír Pútín, forseti Rússlands, flutti í gær sjöttu s t e f n u r æ ð u sína. Hann eyddi mestu púðri í að full- vissa fjárfesta um að gráðugir e m b æ t t i s - menn, óstöðugt e f n a h a g s á - stand og um- f a n g s m i k l a r skattrannsókn- ir heyrðu sög- unni til. Hann lagði áherslu á að helsta verkefni sitt væri að byggja upp frjálst lýðræðisþjóð- félag byggt á evrópskum hug- myndum. Stjórnmálaskýrendur tóku ræðunni með fyrirvara enda eru einungis tveir dagar þar til dómur verður kveðinn upp yfir Mikhaíl Khodorkovsky, aðaleiganda Yu- kos-olíufélagsins. Margir telja rannsókn stjórnvalda vera af póli- tískum rótum runna. ■ Runólfur Ágústsson: Tvær þjóðir í einu landi FJARSKIPTI Íslendingar verða tvær þjóðir í einu landi ef ekki verður gerður skurkur í að byggja upp fjarskiptamöguleika á lands- byggðinni, sagði Runólfur Ágústsson, rektor við Viðskipta- háskólann á Bifröst, við útskrift kvenna í atvinnurekstri á lands- byggðinni. Runólfur gagnrýndi hvort tveggja slakar nettengingar á landsbyggðinni og hugmynd um að byggja upp marga háskóla og rannsóknarstofnanir á einum stað. „Þekkingarsamfélagið Ís- land verður að taka yfir allt Ís- land en ekki einstaka hunda- þúfu, hvort sem hún heitir Vatnsmýri eða eitthvað annað.“ - bþg Meintir hryðju- verkamenn: Neita öllum sakargiftum MADRÍD, AP Réttarhöldin yfir 24 meintum al-Kaída-liðum á Spáni sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 standa nú sem hæst. Í gær bar Sýrlending- urinn Imad Yarkas vitni en hon- um er gefið að sök að hafa sett á fót sellu öfgamanna þar sem lagt var á ráðin um illvirkin. Hann harðneitaði öllum sakar- giftum. Eini Spánverjinn í hópnum, Luis Jose Galas, bar einnig vitni í gær en hann kvaðst vera frið- elskandi múslimi sem mótmælti árásunum á sínum tíma. Hann þvertók fyrir að hafa dvalið í þjálfunarbúðum al-Kaída í Indónesíu. Krafist er 75.000 ára fangels- dóms yfir mönnunum. ■ SPURNING DAGSINS Stefán, kom nafnið Ragnheiður Erla til greina? „Þótt við dómarar séum sjálfhverfir er þetta ekki tengingin, heldur heitir dóttir mín eftir langömmu sinni.“ Stefán Pálsson, dómari í Gettu betur, eignaðist dóttur á dögunum og var henni gefið nafnið Ólína. Ólína Þorvarðardóttir skólameistari er einn af forverum Stefáns í dómarasæti. VLADIMIR PÚTÍN Viðskiptaháskólinn á Bifröst mun frá og með næsta hausti bjóða þeim nemendum sem það kjósa að ljúka námi til BS eða BA gráðu á tveimur árum í stað þriggja með því að leggja stund á nám allt árið. TÓL TIL FÍKNIEFNANEYSLU Gosdrykkjaflöskur og toppar úr topplykla- settum eru algeng tól til neyslu fíkniefna. Stúdentaráð: Skortir aukið fjármagn HÁSKÓLI ÍSLANDS Stúdentaráð Há- skóla Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem skýrslu Ríkis- endurskoðunar um úttekt á Há- skóla Íslands er fagnað. Í skýrsl- unni kemur fram að skólinn hafi staðið sig vel miðað við það fjár- magn sem hann hafi haft úr að spila en skorti aukið fjármagn. „Auk þess kemur fram að hann fái ekki greitt fyrir kennslu mörg hundruð virkra nemenda. Á þetta hefur forysta stúdenta og Há- skólayfirvöld bent ítrekað undan- farin ár en mætt litlum skilningi yfirvalda.“ ■ UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS Tryggvi Gunarsson beinir þeim tilmælum til tollstjórans að mál konunnar verði tek- ið til athugunar á ný. Djúp gjá milli sjónarmiða Hrygningarstofn þorsksins nær sér ekki á strik. Það veldur því að illa gengur að auka afrakstursgetu stofnsins, segja talsmenn Hafrannsókna- stofnunarinnar. Þingmaður segir þá víkja sér undan ábyrgð. SJÁVARÚTVEGUR „Þetta eru sömu gömlu lummurnar“, sagði Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður Frjálslynda flokksins eftir fund sjávarútvegsnefndar Alþingis með fulltrúum Hafrannsókna- stofnunar í gær. „Talsmenn Stofn- unarinnar kenna öðrum um hvernig komið er eins og venju- lega. Þeir virðast ekki reiðubúnir til þess að taka upp nýja starfs- hætti, nálgast viðfangsefnið á nýj- an hátt. Hvað til dæmis með loðn- una? Mætti takmarka veiðar á henni og auka hugsanlega fæðu- framboð fyrir aðrar tegundir?“ Magnús ítrekar þá skoðun sína að forsvarsmenn stofnunarinnar ættu að segja af sér. „Fullreynt er að ráðgjöf þeirra skilar engum ávinningi í auknum veiðiheimild- um eða bættu ástandi þorsk- stofnsins.“ Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar mótmæl- ir orðum Magnúsar. „Við segjum aðeins að hrygningarstofninn sé of lítill vegna of þungrar sóknar. Ekki þarf annað en að líta á ald- urssamsetninguna í stofninum. Á 30 árum hafa verið veidd um 1,3 milljónir tonna úr þorskstofninum umfram ráðgjöf okkar. Við erum vitanlega hugsi yfir því líka hvers vegna viðsnúningur til hins betra er ekki hraðari í þorskstofninum en raun ber vitni.“ Guðjón Hjörleifsson þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins og for- maður Sjávarútvegsnefndar seg- ir að fundurinn með talsmönnum Hafrannsóknastofnunarinnar hafi verið upplýsandi. „Þeir áætla að stofnvísitala þorsksins verði svipuð og í fyrra. Ýsan sé hins vegar á góðri uppleið. Enn er eftir að vinna úr upplýsingum sem togararallið gefur. Hvað sem þessu líður er gott að hafa um- ræður opnar um þetta en engin lausn að hrópa á götuhornum líkt og Magnús Þór Hafsteinsson full- trúi Frjálslynda flokksins í sjáv- arútvegsnefnd hefur gert.“ Undir þetta tekur Hjálmar Árnason fulltrúi Framsóknarflokksins í sjávarútvegsnefnd og bendir á afar lélegan árgang 2001 og aftur í fyrra. johannh@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGSNEFND VIÐ UPPHAF FUNDAR Skiptar skoðanir eru innan sjávarútvegsnefndar Alþingis um stöðu þorsksins. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, krefst afsagnar þeirra sem stjórnað hafa fiskveiðum en stjórnarliðar segja enga þörf á því.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.