Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 8
1Hverja unnu Íslandsmeistarar FH íAtlantic-bikarnum?
2Hvaða íslensku bækur urðu hlut-skarpastar í kosningu barna um vin-
sælustu barnabókina?
3Hvaða prestur sendi kaþólsku kirkj-unni tóninn í predikun sinni?
SVÖRIN ERU Á BLS. 34
VEISTU SVARIÐ?
8 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Forstjóri Fangelsismálastofnunar:
Bíður niðurstöðu ráðuneytis
FANGELSISMÁL Framkvæmdaáætl-
un Fangelsismálastofnunar er enn
til athugunar í Dómsmálaráðu-
neytinu, að sögn Valtýs Sigurðs-
sonar forstjóra stofnunarinnar.
Hann segist telja biðina eftir nið-
urstöðum í dögum en ekki vikum.
„Þetta er framkvæmdaáætlun
upp á 1,8 - 2 milljarða króna,“
sagði hann. „Hluta verður varið í
verulegar endurbætur á fangels-
unum á Akureyri, Litla - Hrauni
og Kvíabryggju. Þá er áætlað að
bygging nýs fangelsis á Hólms-
heiði kosti 1,2 milljarða.“
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu er gert ráð fyrir að
á Hólmsheiði verði reist öryggis-
og vinnufangelsi. Þar verði afeitr-
unar- og meðferðardeild, sjúkra-
deild og gæsluvarðhaldsdeild. Þar
verði hægt að gera menn hæfa til
að fara í meðferð í upphafi afplán-
unar og ljúka henni án vímuefna.
Valtýr sagði að allt væri undir
fangelsismálunum nú. Frumvarp-
ið sem lægi fyrir Alþingi gerði ráð
fyrir breyttri stefnu og áherslum.
Vonandi færi að skýrast hvernig
því reiddi af, en það væri nú í alls-
herjarnefnd. -jss
Þorp Alcoa Fjarðaáls:
Kallað FTV
REYÐARFJÖRÐUR Þorp starfs-
manna Alcoa Fjarðaáls í Reyð-
arfirði gengur í daglegu tali
undir nafninu FTV upp á enskan
máta, sem stendur fyrir Fjarda-
ál Team Village. Ragna Hreins-
dóttir, tengiliður verkalýðs-
hreyfingarinnar milli starfs-
mannanna og fyrirtækisins, tel-
ur að finna þurfi íslenskt heiti
fyrir þorpið.
Ragna sagði í Hádegisútvarpi
Fréttablaðsins í gær að talað
væri um staðinn þar sem þorpið
rís sem „úti í Haga“, þannig að
kannski kæmi til greina að kalla
þorpið Haga. Í það minnsta sé
ljóst að finna þurfi íslenskt
heiti.
- ghs
– hefur þú séð DV í dag?
Prestur barði
fermingarbarn
í höfuðið
með kústi
FORELDRAR ÆFIR YFIR PRESTI SEM SPURÐI
FERMINGARBÖRNIN HVORT ÞAU FRÓUÐU SÉR
Faðirinn vill ekki ferma
aftur hjá prestinum
AMAGASKI, AP Í það minnsta 57 fór-
ust og 440 slösuðust í miklu lestar-
slysi í Japan í gærmorgun. Talið
er að óreyndur lestarstjórinn hafi
ekið lestinni allt of hratt með
þeim afleiðingum að hún þeyttist
út af sporinu.
Sneisafull lestin var á ferðinni
í nánd við Amagasaki, um 400
kílómetra vestur af Tókýó, en 580
farþegar eru sagðir hafa verið um
borð. Á augabragði tókst hún nán-
ast á loft og flaug út af sporinu og
hafnaði á níu hæða fjölbýlishúsi.
Tveir af sjö vögnum lestarinnar
krömdust upp við húsvegginn og
flöttust nánast út.
Sjúkralið kom þegar á vettvang
og reyndi að bjarga því sem bjarg-
að varð en svo virðist sem að
minnsta kosti 57 manns hafi látist
og 440 slasast, margir alvarlega.
Flest bendir til að 23 ára gamall
lestarstjórinn hafi ekið lestinni á
ofsahraða en aðeins nokkrir mán-
uðir eru liðnir síðan hann fékk rétt-
indi til að stjórna slíku farartæki.
Allt bendir til að lestin hafi hrein-
lega þeyst út af sporinu en til þess
þurfti hún að vera á í það minnsta
133 kílómetra hraða á klukkustund.
Þetta er mannskæðasta lestar-
slys í Japan síðan 1961. ■
FRÁ MINNINGARATHÖFNINNI
Karl Bretaprins ræðir við Helen Clark, for-
sætisráðherra Nýja-Sjálands. John Howard,
forsætisráðherra Ástralíu, sat hins vegar
þögull með konu sinni.
Gallipoli:
Harmsögu
minnst
TYRKLAND, AP Í gær voru liðin níu-
tíu ár síðan einn mannskæðasti
bardagi heimsstyrjaldarinnar
fyrri hófst, orrustan á Gallipoli-
skaga í Tyrklandi. Þúsundir
manna minntust atburðarins í
Canakkale í Tyrklandi í gær.
Á sínum tíma freistuðu herir
bandamanna þess að leggja skag-
ann undir sig og þar með ná yfir-
ráðum yfir siglingaleiðinni í gegn-
um Dardanellasund og að lokum
Istanbul. Stór hluti hermannanna
sem sendur var á vettvang var frá
Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Að-
gerðin misheppnaðist gjörsam-
lega og áður en yfir lauk lágu ríf-
lega 300.000 manns í valnum,
flestir þeirra Tyrkir. ■
LESTIN HAFNAÐI Á ÍBÚÐARHÚSI
Grunur leikur á að óreyndur lestarstjórinn hafi ekið lestinni á ofsahraða.
Að minnsta kosti 57 manns farast í lestarslysi í Japan og 440 slasast:
Lestarvagnarnir flöttust nánast út
ENDURBÆTUR
Fangelsið á Akureyri verður endur-
bætt fyrir um 170 miljónir króna sam-
kvæmt áætlun Fangelsismálastofnun-
ar. Myndin er úr einum klefa þess.