Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. apríl 2005 11
Samvinnuverkefni fimm fyrirtækja:
Rafræn viðskipti í sjávarútvegi
UPPLÝSINGATÆKNI Maritech, Brim,
SH, Eimskip og Síminn hafa í sam-
starfi þróað hugbúnaðarlausn sem
byggir á rafrænum samskiptum á
milli upplýsingakerfa sjávarútvegs-
fyrirtækja, flutningsaðila og selj-
enda. Tilgangurinn er að auka ör-
yggi og hraða í samskiptum, koma í
veg fyrir tvíverknað og lækka
kostnað.
Lausnin byggir á að upplýsingar
eru slegnar aðeins einu sinni inn í
tölvu og fluttar á milli upplýsinga-
kerfa en móttakandinn bætir við
nýjum upplýsingum eftir því sem
við á og sendir áfram á næsta fyrir-
tæki.
Fulltrúar fyrirtækjanna fimm
kynntu hugbúnaðarlausnina á Akur-
eyri fyrir helgi og í máli Kristjáns
Hjaltasonar, framkvæmdastjóra
SH þjónustu, dótturfélags SH, kom
fram að með þessari nýjung væri
sjávarútvegurinn kominn í fremstu
röð hvað varðar rafræn viðskipti.
„Þetta er mikil einföldun og mikil
breyting frá þeim vinnubrögðum
sem tíðkast hafa. Samstarf fyrir-
tækjanna fimm hefur skapað lausn
sem aðrir aðilar í viðskiptum og í
upplýsingatækni geta byggt á,“
sagði Kristján. - kk
Framkvæmdirnar
á Reyðarfirði:
Hæg mann-
fjölgun
REYÐARFJÖRÐUR Mannfjölgunin á
Reyðarfirði fer hægar af stað en
búist var við. Búist var við að
straumurinn hæfist í apríl til maí
en nú er ljóst að aðeins 20 til 30
starfsmenn fluttust til landsins í
apríl. Talið er að straumurinn
liggi til landsins í maí og júní.
Í þorpinu FTV, eða Fjardarál
Team Village, skammt utan við
Reyðarfjörð búa nú um 300 manns
en gert er ráð fyrir að íbúar þar
verði um 800 í lok ársins. Á næsta
ári verður svo enn meiri fjölgun
en þá komast framkvæmdirnar á
fullan skrið. - ghs
VOTTORÐIÐ AFHENT
Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarna-
skóla sjómanna, og Kjartan J. Kárason,
framkvæmdastjóri Vottunar hf.
Slysavarnaskóli
sjómanna:
Vottorð fyrir
gæðastjórnun
SKÓLAMÁL Slysavarnaskóli sjó-
manna hefur fyrstur skóla á Ís-
landi fengið vottorð því til stað-
festingar að skólinn starfræki
gæðakerfi sem sæmræmist kröf-
um gæðastaðalsins ÍST EN ISO
9001:2000.
Vottorðið tekur til reksturs
skólans til að annast fræðslu um
öryggis- og björgunarmál sjófar-
enda. Vinna við gerð gæðastjórn-
unarkerfisins hefur staðið yfir
síðastliðin 3 ár.
Slysavarnaskóli sjómanna er í
eigu Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og er hann staðsettur í
skólaskipinu Sæbjörgu. - th
Fasteignaverð
í Kaupmannahöfn:
Svipað og í
Reykjavík
HÚSNÆÐISMÁL Fasteignaverð í Dan-
mörku er á stöðugri uppleið ekki
síður en á Íslandi. Verðlag hefur
tvöfaldast síðan 1995 og talið að
það hafi hækkað um 11-12 af
hundraði síðasta árið.
Mest er hækkunin á Kaup-
mannahafnarsvæðinu þar sem
fermetraverð íbúðarhúsnæðis er
komið í um 180 þúsund krónur, en
það er svipað og meðalverðið í
Reykjavík.
Sérfræðingar telja allar líkur á
að fasteignaverð haldi áfram að
hækka í Danmörku, þrátt fyrir
spár um hið gagnstæða. ■
■ DANMÖRK
DANSKIR UNGLINGAR SOFA OF
LÍTIÐ Ný rannsókn leiðir í ljós að
um helmingur danskra unglinga
á aldrinum 14-15 ára sefur að há-
marki sjö og hálfa klukkustund á
nóttu. Ástæðurnar eru meðal
annars sjónvarpsgláp, tölvuleikir
og mikil símanotkun. Afleiðing-
arnar geta verið þyngdaraukning,
streita og námserfiðleikar.
■ KASAKSTAN
GEIMFAR SNÝR HEILU OG
HÖLDNU HEIM Rússneskt geim-
far lenti heilu og höldnu nærri
Arkalyk í Kasakstan í gær. Um
borð voru þrír geimfarar frá
Rússlandi, Bandaríkjunum og
Ítalíu en þeir fyrstnefndu höfðu
dvalið í alþjóðlegu geimstöðinni
síðan í október.
SAMHUGA HÓPUR
Með nýrri samskiptalausn sem kynnt var á
Akureyri fyrir helgi eru samskipti fyrirtækja
færð til nútímalegs horfs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K