Fréttablaðið - 26.04.2005, Síða 12
12 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Gefandi starf og lærdómsríkt
Einu sinni í viku stendur
börnum af erlendum upp-
runa til boða að mæta í
Alþjóðahús Rauða kross-
ins við Hverfisgötu og fá
aðstoð við heimalærdóm
og íslenskunám. Sjálf-
boðaliðar halda kennsl-
unni uppi.
„Við hittumst á mánudögum yfir
vetrarmánuðina, yfirleitt frá
klukkan þrjú til að ganga sex,“
segir Einar Tjörvi Elíasson,
verkfræðingur og sjálfboðaliði.
„Að jafnaði sækja hingað um tíu
börn á aldrinum níu til fimmtán
ára. Þau koma hvaðanæva að úr
heiminum, en flest eru þau frá
Asíu; Víetnam, Srí Lanka og
Taílandi. Færni þeirra er mis-
jöfn eins og gefur að skilja. Sum
þeirra tala sæmilega íslensku en
önnur nær enga og við reynum
að aðstoða þau eftir bestu getu.“
Einar segir sjálfboðaliðana
koma úr öllum áttum. Margir
séu fyrrum kennarar sem hafi
látið af störfum, háskólanemar
komi mikið að starfinu sem og
ungt menntað fólk. „Þetta er
ákaflega gefandi starf og maður
lærir sjálfur heilmikið af börn-
unum, ekki síður en þau læra
vonandi af okkur. Maður lærir
hverjar þarfir þeirra eru og
hverju þau hafa mestar áhyggj-
ur af, sem er oftar en ekki ís-
lenskan.“
Einar Tjörvi kom fyrst að
sjálboðaliðastarfi Rauða kross-
ins fyrir fjórum árum þegar
stoðkennslan var nýhafin. Hann
var þá nýlega sestur í helgan
stein. „Ég hef verið virkur í
skátastarfi um áratugaskeið og
alltaf haft gaman af félags-
starfi. Ég vann lengi hjá Orku-
stofnun og starfs míns vegna
ferðaðist ég víða erlendis og
umgekkst mikið af fólki frá Afr-
íku, Asíu og Mið-Evrópu. Þegar
ég heyrði af þessu verkefni vildi
ég bjóða fram krafta mína.“ Ein-
ar er líka giftur norskri konu og
þekkir það af hennar reynslu
hversu erfitt það getur verið að
ná tökum á málinu. „Svo býr
dóttir mín í Bandaríkjunum og
sonur minn er giftur írskri
konu. Þetta er afskaplega al-
þjóðleg fjölskylda,“ grínast
hann.
Þeir sem hafa áhuga á að taka
þátt í sjálfboðastarfi Rauða
krossins geta leitað sér upplýs-
inga á heimasíðu samtakanna,
redcross.is.
bergsteinn@frettabladid.is
ÁRIÐ 2002 voru tólf prósent kvenna og
þrettán prósent karla yfir kjörþyngd. Karl-
mönnum yfir kjörþyngd fjölgaði um sex
prósent frá árinu 1990 en konum um þrjú
prósent.
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
„Líf mitt snýst um að klára kjara-
samninginn sem gerður var milli
okkar og fjármálaráðherra 5. mars,“
segir Jens Andrésson, formaður SFR,
stéttarfélags í almannaþjónustu. Nú
er unnið með sjálfseignarstofnanir
segir Jens en ferlið er þannig að rík-
ið semur fyrst fyrir sína starfsmenn
og síðan gera sjálfseignarstofnanir
þann samning að sínum. Það þurfi
þó að gerast með sérstöku sam-
komulagi og um það snúist vinnan
þessa dagana. Stefnan er að ljúka
þeirri vinnu fyrir miðjan næsta mán-
uð, segir Jens svo að allt komi til út-
borgunar 1. júlí.
„Svo er maður að undirbúa 1. maí,
alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins,
þar sem gengið verður fylktu liði
með fánaborg niður á Ingólfstorg,“
segir Jens sem fer í kröfugönguna á
hverju ári. Hann segir daginn hafa
mikla þýðingu fyrir sig. Hann veki
til umhugsunar um það, hverju
samtakamátturinn hafi þokað en
um leið hve mikið sé ógert í hinum
stóra heimi í stéttarfélagsbarátt-
unni.
Þá er Jens að undirbúa ferðalag
með konunni sinni til Brussel í byrj-
un maí. Jens segir ferðina hefjast
sem afslöppunarferð en enda sem
vinnuferð. Hann ætlar á ráðstefnu
sem Evrópusamtök stéttarfélaga í
opinberri þjónustu halda um
ákveðna tegund af einkavæðingu
sem hefur verið að ryðja sér til
rúms innan Evrópusambandsins.
Lífið snýst um kjarasamninga
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JENS ANDRÉSSON, FORMAÐUR SFR
„Það er fáranlegt að ofbeldismenn sem
brjóta skilorð á jafn svívirðilegan hátt fái
að ganga lausir áfram,“ segir Guðlaug El-
ísabet Ólafsdóttir leikkona. Í síðustu viku
komst það í fréttir þegar handrukkarar á
Akureyri neyddu unglingspilt til að ber-
hátta sig á víðavangi og skutu hann
margsinnis með loftbyssu en fautarnir
voru á skilorði. „Ég hélt að skilorðsbundin
refsing væri til þess gerð að menn væru
teknir úr umferð ef þeir brytu af sér.“
Guðlaug segist vera uggandi yfir fréttum
af skipulögðum ofbeldisverkum, sem hún
heldur að fari vaxandi. „Ég held að það
hljóti allir að hafa áhyggjur af þessu. Ég
hef ekki heyrt af svona óhugnaði eins og
átti sér stað fyrir norðan.“ Guðlaug telur
að hugsanlega þurfi að endurskoða laga-
rammann með það að leiðarljósi að lög-
reglan eigi betra með að taka á hand-
rukkurum og öðrum ofbeldisseggjum.
„Það þarf að finna lausnir til að svona
fantar gangi ekki lausir.“
GUÐLAUG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
Beint í steininn
brjóti þeir skilorð
LAUSAGANGA OFBELDISSEGGJA
SJÓNARHÓLL
Glerfínar gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
R
V
20
39
Rekst
rarvö
rulist
inn
er ko
minn
út
EINAR TJÖRVI ELÍASSON Hefur lengi
verið virkur í ýmsu félagsstarfi og var fljót-
ur að bjóða fram krafta sína þegar hann
frétti af stoðkennslunni.
ÚR ALÞJÓÐAHÚSI Börnunum stendur til boða að mæta vikulega yfir vetrarmánuðina í
Alþjóðahúsið við Hverfisgötu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Landssamband kúabænda:
Dustar rykið af landsins stærsta grilli
„Við erum að græja þetta fyrir
sumarið og ætlum að grilla
slatta,“ segir Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands kúabænda, en sambandið á
landsins stærsta grill sem hægt er
að steikja heilt naut á.
„Við skellum því upp á kerru
þannig að það verður hægt að
festa það við hvaða fjölskyldubíl
sem er og aka þangað sem fólk
vill heilgrillað
naut.“ Snorri og
félagar heil-
grilluðu tvö
naut fyrir
Menningarnótt
í fyrra, en
Snorri vonast
til að geta gert
betur í ár. Einn
skrokkur ætti
að duga fyrir
um þúsund
manns.
Heimagrillinu leggur Snorri
hins vegar aldrei. „Ég bý í veður-
paradísinni Hvanneyri og get
grillað allan ársins hring,“ segir
hann og viðurkennir með semingi
að stundum fari nú annað en naut
á kolin.“Ég tek eitt og eitt lamba-
læri og slengi því á. En það er
ekkert sem toppar gott og vel
grillað naut. Það er líka lang auð-
veldast að elda það, það rýkur
ekkert úr því og svoleiðis vesen.“
-bs
FRÁ MENNINGARNÓTT Heilgrillaða nautið mæltist vel fyrir hjá þeim sem gæddu sér á
því á Menningarnótt í fyrra.
M
YN
D
: A
RT
-IC
EL
AN
D
.C
O
M
SNORRI SIGURÐS-
SON Viðurkennir að
hann grillar stundum
lamb.