Fréttablaðið - 26.04.2005, Side 39
ÞRIÐJUDAGUR 26. apríl 2005
!"
#
$ %%%$
! "#
$
%
& '(&
)## *
+) ##
#
' #
, $ &
' ($ ) ( $
*$ &
+,
- $ ./+ +' $ )0
' "$ 1
/2
"$ 3/
$
455
0 /2' /6 ' %%%$
$ $Líf og fjör og læti
Sögurnar um Kalla á þakinu eftir
Astrid Lindgren fjalla um fyrirbærið
börn sem eignast ímyndaða vini.
Börn með svo sterkt ímyndunarafl
að þau gefa sig hinum ímyndaða
heimi fullkomlega á vald og þar líður
þeim vel af því þau geta ýtt hvunn-
dagslegu amstri og lífsbaráttu til hlið-
ar um stund.
Litríkar persónur hins ástsæla
barnabókahöfundar höfða til allra
barna á öllum tímum, einkum vegna
þeirrar staðreyndar að þær falla ekki
að þeim ramma sem normið setur.
Þær þverbrjóta allar reglur, eru
skondnar, skemmtilegar, gefandi,
réttsýnar og umfram allt, þær hafa
góð og umbreytandi áhrif á aðra í
kringum sig.
Kalli á þakinu á ýmislegt skylt við
grallarann Línu langsokk eða í öllu
falli er á þeim sami gassagangurinn
og endalaust fjör í kringum þau. Eins
og Kalli segir sjálfur í leikritinu: „Ég vil
bara hafa líf og fjör og læti ... annars
er ég farinn.“
Sýningin í Borgarleikhúsinu tekur
mið af þeirri lífsspeki Kalla. Óskar
Jónasson hefur valið sýningunni
hefðbundið form þar sem tækni-
brellur, eltingaleikir, ærsl og loftfim-
leikar taka stórt pláss en hann miss-
ir þó aldrei sjónar á rás viðburðanna
og keyrir sýninguna áfram á mátu-
lega miklum hraða. Hringsviðið er
notað til hins ýtrasta þar sem Stígur
Steinþórsson hefur af útsjónarsemi
komið fyrir þremur leikmyndum sem
snúast inn og út. Allar skiptingar
renna ljúflega og það er virkilega
gaman að fylgjast með hugvitssöm-
um brellum til að láta Kalla hverfa og
birtast skyndilega á allt öðrum stað.
Ég verð að nota tækifærið hér og
hrósa Óskari fyrir leikaravalið. Það er
frábært hjá honum að velja leikara í
sýninguna sem ekki hafa sést á fjöl-
unum lengi og þá nefni ég einkum
Þröst Guðbjartsson sem fór á kost-
um í hlutverki miðaldra barnfóstru.
Margrét Pétursdóttir og Jakob Þór í
hlutverkum foreldranna voru svona
samnorrænir ábyrgðarfullir foreldrar
en Jakob átti einnig skemmtilegan
sprett í hlutverki Finna þjófs. Þar fór
saman góður samleikur hans og
Ladda, sem töfrar fram úr pússi sínu
enn einn karakterinn.
Nokkuð mæðir á börnum og ung-
lingum í þessari sýningu og ljóst að
Óskari hefur tekist að laða fram góð-
an leik hjá öllum, að maður tali nú
ekki um svona stóran bónus á borð
við dans og breiktilþrif hjá Ragnhildi
Steinunni og Leifi. Arnmundur Ernst
Björnsson er hreint frábær sem ung-
lingspilturinn Bobbi og vinir Bróa
litla; Edda Margrét og Rafn Kumar,
virkuðu bæði mjög yfirveguð.
Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson leik-
ur Bróa litla, strák sem þráir það heit-
ast í lífinu að eignast hund. Mitt í
raunum sínum hittir hann þennan
skrýtna Kalla og tekst með þeim sér-
stök vinátta. Drengurinn lék afskap-
lega vel og skilaði vel tilfinningum og
geðbrigðum. Textameðferð hans var
í stakasta lagi og svo söng hann eins
og engill.
Sveppi var Kalli á þakinu og fullur
salur af börnum tók honum opnum
örmum og víst er að þau eiga eftir að
elska hann.
Eini ljóðurinn á þessari annars
fjörugu og skemmtilegu sýningu var
sönglögin. Þau voru fremur slök og
tóntegundir voru yfirleitt allt of lágar
fyrir þá sem þurftu að syngja. Að
öðru leyti stingur Óskar hér enn
einni skrautfjöður í hattinn sinn.
Hann veit hvernig á að skemmta
fólki.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Kalli á þakinu
Borgarleikhúsið Stóra svið/Samvinnu-
verkefni
Höfundur: Astrid Lindgren. Þýðing og
aðlögun: Davíð Þór Jónsson. Tónlistar-
stjóri: Karl Olgeirsson. Leikmynd: Stígur
Steinþórsson. Búningar: Helga Rós V.
Hannam. Lýsing: Kári Gíslason. Danshöf-
undur: Birna Björnsdóttir og Guðfinna
Björnsdóttir. Leikstjóri: Óskar Jónasson.
Leikarar: Sverrir Þór Sverrisson, Jakob
Þór Einarsson, Margrét Pétursdóttir, Þór-
hallur (Laddi) Sigurðsson, Þröstur Guð-
bjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
Leifur Eiríksson, Arnmundur Ernst Björns-
son, Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, Edda
Margrét Erlingsdóttir, Rafn Kumar Boni-
facius o.fl.
Niðurstaða: Óskar stingur hér enn einni
skrautfjöður í hattinn sinn. Hann veit
hvernig á að skemmta fólki.
KALLI OG BRÓI LITLI „Sveppi var Kalli á þakinu og fullur salur af börnum tók hon-
um opnum örmum og víst er að þau eiga eftir að elska hann,“ segir Valgeir Skagfjörð
í gagnrýni sinni.
Samtök Rauða krossins í Úkraínu
ætla að dreifa ókeypis smokkum
vikuna sem Eurovision-
söngvakeppnin verður haldin í
höfuðborginni Kiev í næsta mán-
uði.
Meðal annars verður smokkun-
um dreift í Palats Sportu-höllinni
þar sem keppnin verður haldin.
Smokkadreifingin er hluti af átaki
Rauða krossins gegn útbreiðslu
HIV-veirunnar í Úkraínu. Munu
sjálfboðaliðar ganga um í bolum
þar sem varað er við smithættu. ■
PALATS SPORTU Smokkum verður dreift í höllinni þar sem Eurovision-keppnin verður
haldin.
■ EUROVISION
Ókeypis smokkum dreift