Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 26.04.2005, Blaðsíða 46
34 26. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR Margir hafa farið fram á að þátt-urinn Strákarnir verði færður aftar á dagskrá Stöðvar 2 þar sem mörg uppátæki þeirra Sveppa, Audda og Péturs séu ekki til eftirbreytni en þar sem strákarnir séu vin- sælar fyrirmyndir sé hætt við að krakkar api eftir þeim fíflaganginn. Fjöl- miðlarýnirinn vaski Ólafur Teitur Guðna- son hefur bæst í hóp þeirra sem vara við Strákunum og vill fá þá flutta aftur fyrir háttatíma unga fólksins. Málið snertir Ólaf Teit beint en hann upplýsti það í Sunnu- dagsþættinum á Skjá einum að hann hefði komið að fimm ára syni sínum inni í þvottavél þar sem hann var að taka svokallaðri „áskorun“ sem á ræt- ur sínar að rekja til Strákanna. Þar sem það vill svo til að Ólafur Teitur býr í sama húsinu í Vesturbænum og félagi hans Gísli Marteinn Bald- ursson létu glöggir áhorfendur Sunnudagsþáttarins það hvarfla að sér að afkomendur Gísla Marteins hefðu staðið fyrir áskoruninni. Gísli Marteinn kannast ekkert við þvotta- hússuppákomuna og spillingaráhrif Strákanna á Stöð 2 koma því sjálf- sagt ekki frá heimili eins vinsælasta þáttastjórnanda Sjónvarpsins. Ýmsar og mislitskrúðugur kenn-ingar ganga nú á milli fólks um hvað olli því að frumsýningu á nýu leikriti Birgis Sigurðssonar, Dínamít, var frestað en til stóð að frumsýna verkið á sumardaginn fyrsta. Stefán Baldurs- son, leikstýrir verkinu en Hilmir Snær Guðnason fer með aðalhlutverkið og leik- ur skáldheimspeking- inn Friedrich Nietzsche sem verkið fjallar um. Veikindi leikara hafa verið nefnd sem skýring á seinkuninni en skemmtilegasta sagan af töfinni er sú að Nietzsche-sérfræðingur hafi fylgst með æfingu og í framhaldinu bent leikstjóranum á að eitthvað vantaði upp á skilning á verkum heimspekingsins. Það er svo sem ekkert nýtt að Nietzsche vefjist fyrir fólki. 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 Konan stakk mig í bakið Hlýt að hafa móðgað hana Hjón á Kleppsvegi leidd nauðug fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur – hefur þú séð DV í dag? Sumar gjafir skipta öll börn máli! Gefum börnum góða sumargjöf Það virðist vera hlaupin einhver hjátrú í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrir um ári kom hingað fulltrúi Úkraínu, Ruslana, til að kynna lagið sitt Wild Dances sællar minningar. Þessi ferð virtist hafa góð áhrif því hún vann síðan keppnina. Ang- elica Agurbash, sem syngur fyrir hönd Hvíta Rússlands, fetar því fótspor Ruslönu en hún kom hing- að til lands í gær með einkaþotu og 25 manna fylgdarliði. Væntan- lega í von um að endurtaka leik- inn. Angelica Agurbash er búin að vera á miklu ferðalagi við að kynna lag sitt og greinilegt að þjóðirnar frá gömlu Sovétríkjun- um nýta sér þessa keppni til þess að kynna land og þjóð betur en margar aðrar. Hún hefur haft við- komu í Póllandi, Ísrael, Hollandi, Rússlandi og Litháen og kynnt lagið sitt, Love Me Tonight. Angelica Agurbash er 35 ára, þriggja barna móðir sem býr í út- hverfi Moskvu. Hún er feikilega vinsæl í heimalandi sínu og á að baki fimmtán ára feril í skemmt- anabransanum. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1988 þeg- ar hún varð Ungfrú Hvíta Rúss- land og var síðan valin ljósmynda- fyrirsæta Sovétríkjanna árið 1991. Í kjölfarið á þeim titli hóf Angelica feril sem söngkona og gaf út þrjár breiðskífur sem allar nutu mikillar hylli. Hvort Ang- elica hefur stigið einu skrefinu nær sigrinum með því að koma hingað til lands skal ósagt látið en ef hjátrúin reynist rétt á hún sig- urinn vísan í Kiev þann 21.maí. freyrgigja@frettabladid.is Angelica í fótspor Ruslönu ANGELICA AGURBASH Kom hingað til lands í gær með einkaþotu og 25 manna fylgdarliði Það er ekki bara Dagur Kári sem verður fulltrúi Íslendinga á Cann- es. Grímur Hákonarson kvik- myndagerðamaður mun nefnilega einnig frumsýna nýja stuttmynd, Slavek the Shit, sem var lokaverk- efni hans í kvikmyndaskólanum í Prag. Tveir flokkar stuttmynda eru á Cannes, annars vegar opinn flokkur og hins vegar flokkur skólamynda. Grímur mun keppa í þeim síðarnefnda en sama dóm- nefnd er yfir þeim báðum. Slavek the Shit er ástarsaga um klósettvörðinn Slavek, sem verður ástfanginn af kvenkyns klósett- verði og þarf að beita ýmsum brögðum til þess að fanga athygli hennar. „Þetta er rómantísk mynd í mjög órómantísku umhverfi,“ segir hann en myndin er sam- starfsverkefni hans og eistnesks tökumanns. „Slavek er byggður á persónu sem ég heyrði um og er hugsjónaklósettvörður,“ bætir Grímur við þegar talið berst að hugmyndinni. „Þetta er svona mín upplifun af Tékklandi eftir tveggja ára dvöl,“ segir hann. Hann setti sér strax það mark- mið að myndin skyldi á Cannes enda hefur hann lengi dreymt um að fara þangað. „Ég veit ekki hvort ég á eft- ir að vera í sömu kokkteilboðum og Brad Pitt, en ég verð þarna með mína eigin mynd en ekki að sleikja upp einhverjar stjörnur,“ segir Grímur og bætir við að hann hafi ekki enn gert upp við sig hvort hann ætli að kaupa sér hvít jakkaföt til þess að vera í stíl. „Ætli ég láti ekki bara fara lítið fyrir mér og hangi með Íslendingunum.“ Grímur hefur þó farið á aðrar kvikmyndahátíðir og reynslu sinnar vegna ætlar hann bara að vera seinni vikuna. „Líkaminn þolir ekki meira en sjö daga af kokkteilboð- um. Ég var einu sinni á kvikmynda- hátíð í tíu daga og það var ekki hollt,“ segir Grímur og hlær. Myndin verður frumsýnd 17. maí á Cannes en um leið og hátíð- inni lýkur kemur Grímur heim með afurðina og sýnir hana á Reykjavík Shorts and Docs. „Hún verður frumsýnd í lok maí í Tjarnarbíói,“ segir Grímur, sem er þó spenntast- ur fyrir Cannes. „Cannes-stimpill- inn hjálpar til við alla dreifingu.“ freyrgigja@frettabladid.is SKAFTI SKÍTUR: FER Á CANNES Rómantísk mynd í órómantísku umhverfi Dótið? My Pop Up Room Sem er? Ferðamátunarklefi sem er einstaklega hentugur í tjaldferðalagið, á sundlaugarbakkann, ströndina, fyrir ljósmyndara, fyrirsætur, tískusýn- ingar og svo mætti lengi telja. My Pop Up Room er ferðamátunarklefi sem er afar einfaldur í notkun. Klefinn er í raun lítið tjald sem hægt er að setja upp á örfáum sek- úndum. Pokinn utan um mátunarklefann er opnaður og viti menn – klefinn hoppar nán- ast út af sjálfu sér. Margir þekkja það að þurfa að skipta um föt og mátunarklefar, klósett eða önnur hentug herbergi eru ekki til staðar. Fyrir vik- ið var þessi stórkostlegi mátunarklefi hann- aður svo nú geta allir skipt um föt á ein- faldan hátt án þess að eiga það á hættu að forvitin augu fylgist með. Upphaflega var reynt að hafa klefann eins einfaldan og kostur gafst. Þá var aðeins hægt að fá hann í bláum lit en nú eru hönnuðirnir heldur betur búnir að út- færa hann. Klef- inn fæst nú í nokkrum litum, þar á meðal hvítur, svartur og gulllitaður. Þannig geta ljósmyndarar notað hliðarnar á klefan- um til að spegla sólina og fá sérstaka lýsingu á fyrir- sætuna eða hvert sem við- fangsefnið er Aukahlutir Klefinn er eins einfaldur og hugsast getur og því lítið um aukahluti ef undan er skilin hin þægi- lega taska sem fylgir utan um hann. Kostir Klefinn er afar hentugur og einfaldur í notkun. Gallar Klefinn er ekkert sérstaklega stór og hann dugir líklega skammt í íslensku ofsaveðri. Verð? Nýi klefinn kostar um 130 dollara, um átta þúsund krónur, en þá er flutningskostnaður ekki innifalinn. Nánari upplýsingar um klefann má finna á vefsíðunni www.mypopuproom.com DÓTAKASSINN ...fær Valdís Jónsdóttir, sem ætlar ásamt félögum sínum úr Menntaskólanum á Akureyri að standa fyrir mótmælum gegn ofbeldi á Ráðhústorginu á Akureyri á föstudaginn kemur. HRÓSIÐ Lárétt: 1 refsing í knattleik, 5 hestur, 6 drykkur, 7 sólguð, 8 mjúk, 9 langdregið hljóð, 10 á fæti, 12 svar, 13 áfengisáhrif, 15 keyr, 16 tuddi, 18 mjúkur. Lóðrétt: 1 ástsýki, 2 klaka, 3 öfug röð, 4 mannlegur, 6 steintegund, 8 fugl, 11 þreytu, 14 nokkur, 17 drykkur. Lausn Lárétt: 1víti,5ess,6te,7ra,8lin,9 sónn,10il,12ans,13rús,15ak,16 naut,18meir. Lóðrétt: 1vergirni, 2ísa,3ts,4mennsk- ur, 6tinna,8lóa,11lúa,14sum,17te. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 HB. Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur og 100% Nylon eftir Mörtu Maríu Jónasdóttur. Hjörtur Magni Jóhannsson. FRÉTTIR AF FÓLKI SLAVEK THE SHIT Stuttmynd sem fjallar um klósettvörðinn Slavek sem verður ást- fanginn af kvenkyns klósettverði. GRÍMUR HÁKONARSON Segist efast um að hann kaupi sér hvít jakkaföt fyrir Cannes. Láti frekar fara lítið fyrir sér

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.