Fréttablaðið - 07.05.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 07.05.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Æ›islegt a› vera á flottum bíl SÓLRÚN DRÖFN HELGADÓTTIR: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS FH eins og toppli› í Danmörku DENNIS SIIM: ▲ 40 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 ALÞINGI Allsherjarnefnd klofnaði í afstöðu sinni til fyrningarfrum- varps Ágústs Ólafs Ágústssonar í gær. Meirihluti nefndarinnar taldi rétt sem fyrsta skref að hækka aldurinn frá því að fyrning hefst, úr 14 ára aldri brotaþola í 18 ára. Þar með yrði fyrningar- fresturinn lengdur um fjögur ár. Jafnframt vill meirihluti nefndar- innar senda önnur atriði málsins til athugunar í dómsmálaráðu- neytinu. Að áliti þessa efnis stóðu alþingismenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins. Minnihluti nefndarinnar vildi að frumvarpið færi óbreytt í gegn en það gerir ráð fyrir afnámi fyrningarfrests vegna allra kyn- ferðisafbrota gegn börnum undir 14 ára aldri. Samkvæmt núgild- andi lögum eru fyrningarfrestir frá 5 árum upp í 15 ár eftir gróf- leika brota. Slík brot fyrnast því þegar sá sem fyrir ofbeldinu varð er 19 til 29 ára. „Ég stend að þessu nefndar- áliti með fyrirvara og hef áskilið mér að leggja fram breytingartil- lögu. Ég vil ganga lengra,“ sagði Jónína Bjartmarz alþingismaður. „Ég vil gera mismun á þessum brotum eftir grófleika þeirra, alvarleika og hámarksrefsing- unni sem lögð er við. Mér finnst horfa allt öðruvísi við með grófu brotin, kynferðislegt ofbeldi, samræði og önnur kynmök heldur en með kynferðislega áreitni. Ég hef ekki getað fallist á mál Ágústs Ólafs af þessum sökum, þó að ég hefði viljað mæta sérstöðu þess- ara brotaþola með því að breyta fyrningarreglunum.“ Jónína kvaðst hafa staðið að nefnarálitinu í trausti þess og trú að það væri almenn samstaða og vilji til þess að hefja endurskoðun á öllum kynferðisbrotakaflanum. Hægt væri að hugsa sem svo að rétt væri að lengja fyrningar- frestinn hvað grófustu brotin varðaði og hækka refsirammann í kjölfarið. „ Það er mikill sigur að ná mál- inu úr nefndinni, en vonbrigði að stjórnarmeirihlutinn treysti sér ekki til að viðurkenna sérstöðu þessara brota með því að gera þau ófyrnanleg,“ sagði Ágúst Ólafur. „En nú fer málið í þing- salinn. Þar verður það rætt og kosið um það. Ég mun berjast fyrir því áfram að kynferðisbrot gegn börnum verði ófyrnanleg. Það er grundvallaratriði.“ - jss Fyrning kynfer›isbrota kl‡fur allsherjarnefnd Allsherjarnefnd klofna›i í afstö›u sinni til fyrningarfrumvarpsins svonefnda í gær og mun skila tveimur álitsger›um. Jónína Bjartmarz studdi álit meiri- hlutans me› fyrirvara. Ágúst Ólafur Ágústsson segist ætla a› berjast áfram. GEGN OFBELDI Um fjögur hundruð manns komu saman á Ingólfstorgi í gær til að sýna samstöðu gegn ofbeldi. Þetta var gert á táknræn- an hátt þegar allir viðstaddir lyftu rauða spjaldinu á loft og þögðu í þrjár mínútur því til áherslu. Þónokkrir þingmenn tóku sér til að mynda hlé frá annars anna- sömum vinnudegi á þinginu til að sýna vilja sinn í verki. Einn við- mælandi Fréttablaðsins sagðist vona að samstaðan yrði til þess að vekja almenning til vitundar um alvarleika ofbeldis og mikilvægi þess að standa saman gegn því. Samkoman var þó síður en svo öll á alvarlegu nótunum því KK og Hjálmar stigu á stokk og skemmtu viðstöddum með spili og söng við góðar undirtektir. Edda Hermannsdóttir, einn skipuleggjenda samstöðunnar, sagðist ánægð með mætinguna þó að auðvitað hefði verið gaman að sjá enn fleiri. Markmiðið hefði verið að vekja fólk til vitundar og var hún sannfærð um að það hefði tekist og umræðan væri komin vel af stað. - oá ÍÞRÓTTIR Fimm fræknu koma til Íslands DURAN DURAN: ▲ 38 FÓLK 77% fólks í úthverfum lesa Fréttablaðið daglega.* Ekki missa af fólkinu í stærstu hverfunum. *Gallup febrúar 2005 BJART MEÐ KÖFLUM SYÐRA Sýnu bjartast allra syðst. Slydduél eða él norðan og austan til. Áfram svalt með hita á bilinu 0-8 stig, mildast syðst. VEÐUR 4 LAUGARDAGUR Risinn að vakna Handboltalið FH er búið að ráða nýja þjálfara og ætlar sér stóra hluti. ÍÞRÓTTIR 47 7. maí 2005 - 121. tölublað – 5. árgangur Selma fær styrk Selma Björnsdóttir fær styrk frá Landsbanka Íslands til að helga sig Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva. TÓNLIST 54 VEÐRIÐ Í DAG Snyrti dagar N‡jir sumarlitir, tilbo› og kaupaukar. Alla helgina Sjóferðalög: Sjóránum fækkar MALASÍA, AP Árásir sjóræningja eru ekki einungis bundnar við rómantískar gamanmyndir og sagnfræði Karíbahafsins. Í ár voru þriðjungi færri árásir á heimshöfunum fyrstu þrjá mán- uði ársins en á sama tímabili í fyrra. Sjóræningjar réðust á 56 skip í janúar til mars í ár en árás- irnar voru 79 talsins á fyrsta árs- fjórðungi síðasta árs. Árásir sjóræningja hafa ekki verið færri í fimm ár. Hættast er við árásum sjóræn- ingja nærri Indónesíu. Þar urðu sextán skip fyrir því að ráðist var á þau á fyrstu þremur mánuðum ársins. Næstflest voru sjóránin út af ströndum Indlands, ellefu talsins. ■ Gísli Marteinn Hættir í sjónvarp- inu og snýr sér að stjórnmálunum. Kveður í kvöld. SÍÐA 62 RAUÐA SPJALDIÐ Um 400 manns komu saman á Ingólfstorgi til að sýna ofbeldi rauða spjaldið. Fjöldi manns sýndi samstöðu gegn ofbeldi: fiingmenn s‡ndu rau›a spjaldi› FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. TVÆR ÁLITSGERÐIR Allsherjarnefnd mun skila tveimur álitsgerðum um fyrningar- frumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar.Óþreytandi baráttujaxl Ragnar Sverrisson kaupmaður vill efla miðbæ Akureyrar. Hann er orkubolti sem gengur á fjöll til að safna kröftum. MAÐUR VIKUNNAR 18 Tony Blair: Stokkar upp í stjórninni BRETLAND Tony Blair kynnti í gær- kvöld þriðja ráðuneyti sitt en hann gerði óverulegar breytingar á ráðherraliði sínu. Helst bar til tíðinda að David Blunkett, fyrr- verandi innanríkisráðherra, kem- ur aftur inn í stjórnina og tekur að sér ráðuneyti atvinnu- og lífeyris- mála. Geoff Hoon lætur af emb- ætti varnarmálaráðherra og í stól hans sest John Reid en hann gegndi áður embætti heilbrigðis- málaráðherra. Við því embætti tekur Patricia Hewitt sem var áður viðskipta- og iðnaðarráð- herra. Fjórir nýir menn koma inn í ríkisstjórnina, þeir David Mili- band, Douglas Alexander, Des Browne og John Hutton. Jack Straw verður áfram utan- ríkisráðherra og Gordon Brown verður enn um sinn fjármálaráð- herra. Þá heldur Charles Clarke sæti sínu í innanríkisráðuneytinu og John Prescott gegnir áfram embætti aðstoðarforsætisráð- herra. Sjá síður 4, 6 og 12/- shg

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.