Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 2
2 7. maí 2005 LAUGARDAGUR UMFERÐARSLYS Ökumaður lést eftir að hafa fengið hjartaáfall þegar hann ók um Breiðholtsbraut í Víðidal í gærmorgun. Þrír ungir vegfarendur sáu bílinn aka út af veginum og fóru að athuga með ökumanninn. Hann var meðvit- undarlaus þegar þeir komu að. „Við ætluðum fyrst ekki að hreyfa við honum fyrr en sjúkra- bíll kæmi,“ sagði Magnús Krist- inn Magnússon, einn þeirra sem kom að manninum, en félagi hans hringdi strax í Neyðarlínuna. „Svo byrjaði eldur að loga í bíln- um og þá drógum við hann út og svo kom annar maður að sem hjálpaði okkur við að reyna að koma honum til lífs en það gekk bara ósköp lítið.“ Maðurinn var fluttur á sjúkra- hús og lést skömmu eftir komuna þangað. Bíllinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang og varð allnokkur sinubruni á svæðinu en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Slysið varð skammt frá hest- húsunum í Víðidal en þremenn- ingarnir höfðu farið þangað til að slaka á eftir vorpróf. Að sögn lög- reglu voru viðbrögð þeirra rétt á slysstað. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. – jse SAMKEPPNISMÁL Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í gær varakröfu Skjás eins um lög- bann á að Helgi Steinar Her- mannsson ráði sig til starfa hjá 365 miðlum, utan verkefna á er- lendri grundu. Einnig er sett lögbann á að Helgi nýti sér trúnaðarupplýsingar úr fyrra starfi hjá Skjá einum í núverandi starfi. Helgi er fyrrverandi dag- skrárstjóri Skjás eins og í samn- ingi hans þar var ákvæði um að hann mætti ekki starfa fyrir fyrirtæki í samkeppni við Skjá einn í eitt ár frá starfslokum þar. Samkvæmt samkeppnis- lögum gildir þetta ákvæði einungis á Íslandi. Magnús Ragnarsson, sjón- varpssjóri Skjás eins, sagðist fagna þessari niðurstöðu og sagði staðreyndirnar tala sínu máli. „Við töldum ástæðu til að fara fram á þetta lögbann bæði vegna brots á ráðningarsamn- ingi og 27. grein samkeppn- islaga.“ „Þessi úrskurður kemur á óvart,“ segir Guðmundur B. Ólafsson, lögmaður Helga. Hann segir að Helgi muni samt sem áður mæta til vinnu á morg- un, þar sem lögbannið nái ekki til núverandi starfs hans. Hann er starfar sem þróunarstjóri er- lendra verkefna hjá 365. Skjár einn hefur nú viku til að vísa málinu til héraðsdóms til staðfestingar. - oá/ss GRUNAÐUR UM AÐ RÆNA ÓPINU Lögreglan í Osló hefur farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um aðild að ráninu í fyrra á hinu fræga málverki Munchs, Ópinu. Þar með eru grunaðir ræningjar orðnir fjórir en hinir þrír eru eftirlýstir. Ópið hefur ekki fund- ist enn og er óttast að búið sé að farga því. SPURNING DAGSINS Birkir, eru fletta ekki landrá›? „Nei, nei, það var sætt að vinna gömlu félagana.“ Eyjamaðurinn Birkir Ívar Guðmundsson, mark- vörður Hauka, varði vel í síðasta úrslitaleiknum gegn ÍBV á Íslandsmótinu í handbolta. PÓLLAND AFSÖGN EKKI TEKIN GILD Aleks- ander Kwasniewski, forseti Pól- lands, lýsti því yfir í gær að hann tæki ekki afsögn Marek Belka forsætisráðherra gilda. Trausts- yfirlýsing forsetans þýðir að hin óvinsæla ríkisstjórn Belka verð- ur við völd fram að kosningum sem verða síðar á þessu ári. Banaslys á Breiðholtsbraut: Stúlkan sem lést ANDLÁT Stúlkan sem lést í um- ferðarslysinu á B r e i ð h o l t s - braut í fyrra- dag hét Lovísa Rut Bjarg- mundsdóttir og var hún búsett að Hraunbæ 84 í Reykjavík. Hún var fædd árið 1985. – jse LOVÍSA RUT BJARGMUNDSDÓTTIR Ferðamálaáætlun: Landvernd ánæg› FERÐAMÁL Á aðalfundi Landvernd- ar nýverið var fjallað nokkuð um ferðamálaáætlun samgönguráð- herra til næstu 10 ára. Lýsti fund- urinn yfir mikilli ánægju með áætlunina. Sérstaklega var tekið fram að mikil ánægja ríkir með áherslur á náttúru Íslands, menn- ingu þjóðarinnar og að stefnt skuli að umhverfisvænni ferða- þjónustu. Tryggvi Felixson, fram- kvæmdastjóri Landverndar, segir áætlunina undirstrika að mikil verðmæti búi í náttúru landsins fyrir ferðaþjónustuna og mikil- vægi þess að ganga vel um þessi verðmæti. Álag geti orðið svo mikið á vissum stöðum að það þurfi að bregðast við. -oá BÍLFLAKIÐ OG SINUBRUNI Bíllinn var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang og all- nokkur sinubruni varð eins og sjá má á myndinni en greiðlega gekk að slökkva. Þetta er annað banaslysið á Breiðholtsbrautinni á tveimur dögum. Ökumaður lést eftir hjartaáfall: Dreginn út úr logandi bíl NOREGUR Forstö›uma›ur í vasa pólitískrar stjórnar Ögmundur Jónasson skilar séráliti í efnahags- og vi›skiptanefnd um frumvarp um breytingar á samkeppnislögum. Hann segir n‡tt samkeppniseftirlit ver›a ósjálfstæ›ara en Samkeppnisstofnun nú nái breytingarnar fram a› ganga. ALÞINGI Þingmenn Samfylk- ingarinnar í minnihluta efnahags- og viðskipta- nefndar leggjast gegn samþykkt frumvarps um breytingar á samkeppnis- lögum. Í nýju nefndaráliti lýsa þeir andstöðu við að gildandi samkeppnislög séu milduð og stjórnsýsl- unni breytt, enda séu ekki forsendur fyrir því. Sam- keppniseftirlitið sem ætl- unin er að koma á fót njóti ekki sama sjálfstæðis í daglegum störfum sínum og Samkeppnisstofnun gerir nú, því nái breyting- arnar fram að ganga verði að bera allar meiri háttar aðgerðir undir þriggja manna stjórn, sem við- skiptaráðherra skipar án tilnefningar, áður en ráðist sé í þær. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri- grænna, skilar séráliti og segir að nýtt samkeppnis- eftirlit komi ekki til með að njóta sama sjálfstæðis og Samkeppnisstofnun gerir nú. Forstöðumaður- inn verði settur í vasa póli- tískt skipaðrar stjórnar og stofnunin þurfi að bera all- ar meiri háttar ákvarðanir undir stjórnina. „Stjórn- inni er síðan ætlað að gæta þess að meðalhófs verði gætt, en það sé nokkuð sem forstjórar olíufélag- anna og neytendur hefðu án efa skilgreint með mis- munandi hætti þegar sam- ráðssvindlið kom upp nú nýlega,“ segir í álitsgerð Ögmundar. Hann spyr um ástæðuna fyrir því að nú vilji ríkisstjórn og stjórn- armeirihluti festa ákvæði þessa efnis í lög. Spyr hvort dæmin hræði. Einnig er bent á að vera kunni að ákvæði í frum- varpinu feli hugsanlega í sér framsal dómsvalds að svo miklu leyti sem sam- keppnismál falli undir er- lendar stofnanir. Það geti höggvið nærri stjórnar- skrá. Ögmundur lætur við það sitja að benda á mikil- vægi þess að álitaefnið verði gaumgæfilega íhug- að í meðferð þingsins. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar telur aft- ur á móti að með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu sé verið að efla hlut samkeppnis- mála og neytendaverndar bæði með bættum reglum og eflingu stofnana. Því beri að samþykkja frum- varpið með þeim breyting- um sem það hefur tekið í meðförum þingsins. Frumvarpið um sam- keppnismálin er eitt þeirra frumvarpa sem stjórnar- liðar og þingmenn stjórn- arandstöðunnar þurfa að semja um á lokadögum þingsins, eigi það að verða að lögum nú. johannh@frettabladid.is ÖGMUNDUR JÓNASSON Stjórnarandstaðan leggst gegn samþykkt nýrra samkeppnislaga en stjórnarliðar vilja að frumvarpið verði að lögum á yfirstandi þingi. HELGI STEINAR HERMANNSSON Lögmaður Helga segir lögbannið ekki taka til núverandi starfs hans. Sýslumaðurinn í Reykjavík: Samflykkir lögbann á rá›ningu HAMAS GEKK VEL Sveitarstjórn- arkosningar voru haldnar í fjöl- mörgum samfélögum á Vestur- bakkanum og Gaza-ströndinni í fyrradag. Fatah-hreyfing Ma- hmoud Abbas fékk um 56 prósent atkvæða en Hamas-hreyfingin þriðjung. Þingkosningar verða haldnar í Palestínu í sumar og þá ætti Hamas að ganga vel líka. PALESTÍNA Danska óperuhúsið: Gryfjan of lítil DANMÖRK Aðeins nokkrum mánuð- um eftir að hið glæsilega óperu- hús Kaupmannahafnar var opnað, er komið á daginn að hljómsveit- argryfjan er of lítil. Gryfjan þarf að rúma 110 hljóð- færaleikara en hún tekur einungis 90. Forsvarsmenn hússins hyggj- ast bregðast við þessu með því að leggja nærliggjandi herbergi und- ir hljómsveitina eða skapa rými undir óperusviðinu. Ekki er þó ljóst hver á að greiða kostnaðinn við þessar framkvæmdir en húsið er gjöf til danska ríkisins frá skipafélaginu Mærsk Mc-Kinney Møller og kostaði litla 30 milljarða íslenskra króna. ■ ÓPERUHÚS KAUPMANNAHAFNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.