Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 24
Púað á Sturlu í eigin kjördæmi Akurnesingar fóru ekki leynt með vonbrigði sín í garð Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á borgarafundi um samgöngumál á Skaganum á dögunum, þrátt fyrir að hann ætti að vera á heimavelli, enda Akranes í hans kjördæmi. Helstu umræðuefnin á fundinum voru veg- gjald í Hvalfjarðargöngin og Sundabraut. Fullt hús var á fundinum, þrátt fyrir að á sama tíma færi fram bein útsending á leik Chelsea og Liverpool enda mikið kappsmál fyrir Skaga- menn að þrýsta á að veggjald um Hvalfjarðar- göng verði afnumið. Sturla mætti harðri gagnrýni Skagamanna fyrir áætlun sína í samgöngumálum og var púað á hann úr salnum hvað eftir annað. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkur- listans, virðist hins vegar í miklu uppáhaldi hjá Skagamönnum og var nánast klappað fyrir honum í hvert sinn sem hann opnaði munn- inn. Enda ekki skrítið, því hann er meðal þeirra sem á heiðurinn af því að koma á fyrirhuguð- um strætisvagnasamgöngum milli höfuðborg- arinnar og Akraness – sem Skagamenn eru að sjálfsögðu í skýjunum yfir. Rútubílstjórar ánægðir Ekki eru allir jafnóánægðir með samgönguráð- herra og Skagamenn því félag hópbifreiða- leyfishafa sendi á dögunum frá sér ályktun þar sem lýst var ánægju yfir „því lofsverða framtaki samgönguráðherra Hr. Sturlu Böðvarssonar að bjóða út öll sérleyfi á Íslandi nú á árinu 2005“. Hópbifreiðaleyfishafar segja að með þessu sé samgönguráðherra að „brjóta blað í sam- göngusögu í okkar Íslendinga“. Framtak hans gefi tilefni til að virk samkeppni myndist á þessum markaði. 2-1 fyrir Ingibjörgu Fyrrverandi ráðherrar eru nú farnir að blanda sér í kosningaslag Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur og Össurar Skarphéðinssonar. Sig- hvatur Björgvinsson reið á vaðið með langri og ítarlegri stuðnings- yfirlýsingu við Össur. Henni svaraði Jón Bald- vin Hannibalsson með því að lýsa yfir stuðn- ingi sínum við Ingibjörgu Sólrúnu. Jón Sigurðsson fetaði í fótspor fyrrverandi samstarfsmanna sinna fyrr í vikunni og sendi frá sér lofsamlega grein um Ingibjörgu Sólrúnu þar sem hann segir meðal annars: „Í Njálu er tveimur kvenskörungum sögunnar, þeim Berg- þóru og Hildigunni, lýst svo að þær hafi verið drengir góðir. Það er efasamt að jafnrétti karla og kvenna verði betur viðurkennt. Ingibjörg Sólrún hefur sýnt í verki að hún er drengur góður.“ Staðan er því 2-1 fyrir Ingibjörgu. 24 7. maí 2005 LAUGARDAGUR Í hönd fara samningaum- leitanir stjórnarliða og stjórnarandstöðu um af- greiðslu nokkurra stjórn- arfrumvarpa. Ljóst er að óskalistinn verður ekki allur afgreiddur sem lög. Frumvörp um samkeppn- ismál, Ríkisútvarpið og vatnalög eru meðal þeirra sem rætt er um að fái afgreiðslu áður en þinghaldi lýkur. Stjórnarliðar þurfa í dag og næstu daga að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna á Alþingi um afgreiðslu mála áður en þinghaldi lýkur. Halldór Blöndal, forseti Al- þingis, hefur sagt að þinghaldi ljúki á miðvikudag í næstu viku. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru forgangskröfur stjórnarliða ekki fyllilega ljósar þegar nefnda- og þingfundir hefj- ast í dag. Fáein mál eru engu að síður nefnd öðrum fremur. Í fyrsta lagi er nefnt stjórnar- frumvarp um sam- keppnismál. Bú- ast má við langri og strangri umræðu um samkeppnismálin, en að minnsta kosti tvö nefndarálit og breyt- ingatillögur við frumvarpið frá meirihluta efnahags- og við- skiptanefndar hafa borist inn á borð þingmanna á síðustu dögum. Málið er til annarrar umræðu og ræðutími óheftur nema um annað verði samið. Þingmenn stjórnarandstöðunn- ar geta hæglega rætt samkeppnis- málin klukkustundum eða dögum saman semjist ekki um hömlur á ræðutíma. Í öðru lagi er rætt um að af- greiða frumvarp um Ríkisútvarp- ið sem lög á þessum síðustu dög- um þingsins. Fundir hafa verið tíðir í menntamálanefnd og unnið er að breytingum á frumvarpinu. Gunnar I. Birgisson, formaður menntamálanefndar, hefur engan bilbug látið á sér finna, kallar álitsgjafa fyrir nefndina og gefur fyrirheit um að nauðsyn- legar breytingar verði gerðar á frumvarpinu nú um helgina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snúa þær ekki síst að rétt- indamálum starfsmanna Ríkisútvarpsins þar sem ætlun- in er að breyta rekstrarformi þess. Þá blasir við að segja þarf starfsmönnum upp og endurráða þá. Slíkt getur falið í sér flækjur varðandi áunnin réttindi þeirra. Benda má á alvarlegar athuga- semdir lögfræðings BSRB við frumvarpið nú í vikunni. Þá er ekki víst að eining sé um frum- varpið meðal stjórnarliða að óbreyttu en það þarf þó ekki að tefja afgreiðslu þess. Frumvarpið um Ríkisútvarpið og samkeppnis- málin eru bæði til annarrar um- ræðu og ræðutíminn þá ótak- markaður nema um annað semj- ist. Frumvarp um endurskoðun vatnalaga er á óskalista stjórnar- liða og vilji þeirra stendur til þess að afgreiða það á yfirstandandi þingi. Lögin taka á eignarhaldi á vatni, vatnsnýtingu og vatnsrétt- indum og geta meðal annars snert álitamál varðandi vatnsaflsvirkj- anir í landinu. Ef frá eru talin frumvörp sem lengra eru á veg komin og minni ágreiningur er um er á þessari stundu varla við því að búast að áðurgreind frumvörp verði öll af- greidd sem lög á því þingi sem lýkur að óbreyttu á miðvikudag. johannh@frettabladid.is stjornmal@frettabladid.is Úr bakherberginu... Óvíst hvaða frumvörp á óskalistanum verða afgreidd nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, „Stuðningsmenn mínir eru auðvitað að reka skítblanka kosningabaráttu.“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, á heimasíðu sinni 3. maí. „Hvort [er] í raun áhrifameira að stjórna Garðabæ eða Byko?“ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á heimasíðu sinni 30. apríl. Niðurstöður kosninganna í Bretlandi komu engum á óvart. Þótt Verkamannaflokkurinn sigli mikinn ólgusjó um þessar mundir og Tony Blair sé óvinsælli en nokkru sinni fyrr gat ekk- ert komið í veg fyrir sigur. Þetta er sögulegur áfangi í breskum stjórnmálum og jafnvel þótt flokkssystkin Blairs vilji nú losna við hann er ljóst að sagan mun minnast Blairs sem mikils krafta- verkamanns. Staðan í Bretlandi nú er ekki ósvipuð því sem hún var undir lok valdatíma Margrétar Thatcher. Þá virtist sem ekkert fengi nokkru sinni stöðvað sigurgöngu íhaldsmanna og hver leiðtogi stjórnarandstöðunnar á fætur öðrum lá í valnum. Baráttan virtist vonlaus. Nú hefur taflinu hins vegar verið snúið við og einhvern veginn hefur íhaldsmönnum tekist að grafa algjörlega undan ímynd sinni. Áður fyrr var Íhaldsflokkurinn tákn um stöðugleika, ábyrgð og stjórnfestu. Verkamanna- flokkurinn þótti hafa ágætar hugmyndir en almenningi datt ekki í hug að máta leiðtoga hans við Downing-stræti 10. Þeir einfaldega pössuðu ekki. Nú er það hins vegar Michael Howard sem passar ekki í forsætisráðherra- stólinn. Á Íslandi er Sjálfstæðisflokkurinn í viðlíka stöðu og Verkamannaflokkur- inn. Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins, einkum þeir Davíð, Geir og Björn, hafa yfir sér valdmannsbrag og jafnvel þótt kjósendur séu ekki alltaf sammála þeim teljast þeir passa betur í ríkisstjórnarstólana en til dæmis Össur, Steingrímur og Jóhanna. En þessi staða getur skolast til á nokkrum árum. Með pólitískum sigrum breytist yfirbragð og ára stjórnmálamanna. Embættið skapar manninn í pólitík – og embættisleysið líka. Þetta er hluti af ótta sjálfstæðismanna við öfluga leiðtoga í Samfylkingunni. Sjálfstæðis- menn hafa séð hvernig veran í minnihluta í Reykjavík hefur grafið undan sjálfstrausti flokksmanna. Fólk sem hefði orðið að pólitískum risum í meirihluta virðist koðna niður í minnihlutanum í Reykjavík á sama hátt og frambærilegir stjórnmálamenn í stjórnarandstöðu virka máttlitlir í sínu sí- fellda kvabbi og slag um athygli á Alþingi. Risarnir í Verkamannaflokknum barma sér nú yfir árangri sem þeir hefðu hoppað hæð sína yfir fyrir nokkrum árum og íhaldsmenn fagna sigri yfir því sem fyrir áratug hefði þótt afhroð. Á meðan íhaldsmenn finna ekki foringja sem almenningi finnst passa á Downing-stræti mun þetta halda áfram. Hið sama gildir vitaskuld í pólitískri baráttu á Íslandi. Undanhald íhaldsins VIKA Í PÓLITÍK SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR MENNTAMÁLA- RÁÐHERRA Frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið er eitt þeirra mála sem rætt er um að afgreiða á þessu þingi. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTA- RÁÐHERRA Stefnt er að því að afgreiða tvö af frumvörpum við- skiptaráðherra fyrir þinglok, samkeppnismálafrumvarpið og vatna- lögin. ANNIR FYRIR ÞINGLOK Frumvarp um samkeppnismál, Ríkisútvarpið og endurskoðun vatnalaga er meðal þess sem á að reyna að klára fyrir þinglok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.