Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 72
56 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Fyrir fólk með liðkvilla
vegna slitgigtar eða
yfirálags
Fæst í apótekum
Áhrifamikil jaðarsveit í heimsókn
Hljómsveitin Sonic Youthhefur löngum verið talin einmerkasta jaðarrokksveit
heimsins. Vafalítið gladdust því
margir íslenskir rokkgrúskarar
þegar þeir fréttu að þessi sveit væri
loksins á leiðinni hingað til lands.
Sonic Youth var stofnuð árið
1981 í New York-borg af söngvar-
anum og gítarleikanum Thurston
Moore, bassaleikaranum og söng-
konunni Kim Gordon og Lee Ran-
aldo gítarleikara. Þau höfðu fyrst
byrjað að spila saman nokkrum
árum áður, þegar framsækin tón-
list var mikið í tísku þar sem bland-
að var saman rokki, djassi og nú-
tímatónlist. Þau glömruðu á ódýra
gítara, prófuðu sig áfram með hin
ýmsu bjögunartæki og fljótt kom í
ljós að eitthvað nýtt var þarna á
ferðinni. Þótti hljómurinn óvenju-
legur en ákaflega ferskur.
Fyrsta EP-plata Sonic Youth
kom út árið 1982 og var hún sam-
nefnd henni. Smám saman fór
hljómur sveitarinnar að verða
þróaðri með auknum poppáhrif-
um. Trommuleikarinn Steve
Shalley gekk til liðs við sveitina
1984 og jók enn á gæði hennar.
Eftir að hafa gefið út tvær plöt-
ur, Bad Moon Rising og Evol, gaf
Sonic Youth út sína þriðju plötu
árið 1987 sem bar heitið Sister. Sú
átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á
yngri tónlistarmenn úr hljóm-
sveitum á borð við Pavement og
Sebadoh. Ári síðar var komið að
tvöföldu plötunni Daydream
Nation sem einnig fékk feikigóðar
viðtökur.
Um þetta leyti skipti Sonic
Youth um útgáfufyrirtæki og
gerði samning við risann Geffen.
Þótti þetta tíðindum sæta því
fram að þessum tíma hafði það
ekki tíðkast að sjálfstæðar jaðar-
sveitir gerðu slíka samninga. Ótt-
uðust aðdáendur hennar mjög að
listrænt frelsi Sonic Youth fyki
þarna út í veður og vind, en Thur-
ston Moore og félagar létu engan
bilbug á sér finna. Platan Goo kom
út 1990 og Dirty tveimur árum
síðar, báðar ákaflega vel heppnað-
ar að flestra mati.
Á þessu tímabili var grunge-
rokkið að koma fram á sjónarsvið-
ið og þegar Nirvana sló í gegn
með plötunni Nevermind opnaðist
leiðin fyrir jaðarrokkið upp á yfir-
borðið. Sonic Youth fékk meiri at-
hygli en áður, sérstaklega eftir að
Kurt Cobain, forsprakki Nirvana,
lýsti því yfir að sveitin hefði löng-
um verið í uppáhaldi hjá sér.
Aldrei hefur sveitin þó fyllilega
slegið í gegn, heldur ávallt haldið
sig við jaðarinn.
Á meðal fleiri hljómsveita og
listamanna sem hafa sótt í brunn
Sonic Youth í gegnum árin eru
stór nöfn á borð við Pearl Jam,
Neil Young, My Bloody Valentine,
Pixies og Blonde Redhead. Ótal ís-
lenskar sveitir hafa einnig opin-
berað ást sína á sveitinni, þar á
meðal Úlpa, Slowblow, Fidel og
Curver.
Tónleikar Sonic Youth verða á
Nasa og hefst miðasala föstudag-
inn 27. maí í verslunum 12 Tóna
og á midi.is. Þeir sem kaupa sér
miða á tónleika tónlistarmannsins
sérstæða Antony and The John-
sons eiga forgang að miðum á
Sonic Youth. Miðasala á Antony
hefst 20. maí og fer fram á sama
stað.
Síðasta plata Sonic Youth, Son-
ic Nurse, kom út í fyrra og var
gríðarlega vel tekið af gagn-
rýnendum og tónlistaráhuga-
mönnum. Íslandsförin er hluti af
tónleikaferð sveitarinnar um
heiminn til að kynna plötuna og
kemur hún hingað til lands eftir
tónleika í Frakklandi. Eftir gítar-
rokk hennar á Nasa er síðan ferð-
inni heitið til Bretlandseyja þar
sem stuðið heldur áfram. ■
K‡s bíla fram yfir konur
Jay Kay hefur upplýst af hverju
hann er á lausu. Hann er mun
hrifnari af hraðskreiðum bílum
en konum. Þessi söngvari
Jamiroquai hefur verið með
nokkrum af fallegustu konum
heims, þar á meðal Winonu Ryder
og Denise Van Outen en honum
finnst langskemmtilegast að
gamna sér með bílaflotanum sín-
um sem telur yfir tuttugu glæsi-
kerrur. Þar af eru þrír Mercedes
Benz, einn Aston Martin, einn
Bentley og þrír Ferrari-bílar auk
Lamborghini-bifreiðar.
Jay Kay er þekktur fyrir ást
sína á bílum og hefur margoft
komist í kast við lögin vegna
hraðaksturs. Hann segir enn
fremur að bílar séu mun auðveld-
ari í umgengni en konur. „Þú get-
ur treyst bílum, þeir rífast ekki
við þig og síðast en ekki síst, þeir
fara ekki og versla.“ ■
EinkaþotaP.Diddys
þurfti að
grípa til
neyðarlend-
ingar eftir
að eldingu
sló skyndi-
lega niður í
hana.
P.Diddy var
á leið til Mi-
ami á við-
skiptafund
þegar þetta
var og slas-
aðist sem betur fer enginn. Rappar-
inn náði þó fundinum í tíma og hélt
ræðu um fatalínuna sína, Sean Jean.
Peter Jackson, leikstjóri Lord ofthe Rings-myndanna, hefur verið
nefndur valdamesta manneskja
Hollywood. Framleiðandinn og leik-
stjórinn Steven Spielberg er í öðru
sæti og þá koma þeir Steve Jobs og
John Lasseter, höfuðpaurar Pixar
teiknimyndafyrirtækisins, en þeir
voru í fyrsta sæti í fyrra. Star Wars-
leikstjórinn George Lucas lenti í ell-
efta sæti. Á meðal þeirra leikara
sem voru á listanum eru þeir Tom
Cruise, Mel Gibson, Tom Hanks,
Will Smith og Johnny Depp.
Nicole Kidman ogRussell Crowe
eru í viðræðum um
að leika saman í
nýrri mynd. Ætlunin
var að þau lékju
saman í myndinni
Eucalyptus en því verk-
efni hefur verið
frestað. Nú á leik-
stjórinn Baz
Luhrmann í samn-
ingaviðræðum við
leikarana um að
gera rómantíska
mynd. Luhrmann
sem leikstýrði Kid-
man í myndinni
Moulin Rouge segir
nýja verkefnið vera
eins konar ástralska
útgáfu af myndinni
Gone with the Wind.
Hljómsveitin Sonic Youth, sem heldur tvenna tón-
leika hér á landi 16. og 17. ágúst, er ein flekktasta
ne›anjar›arrokksveit Bandaríkjanna. Freyr Bjarna-
son forvitna›ist um sögu sveitarinnar.
SONIC YOUTH Jaðarrokksveitin Sonic Youth er á leiðinni hingað til lands í ágúst. Hún heldur tvenna tónleika á Nasa.
JAY KAY Í KAPPAKSTURSBÍL
Jay Kay, söngvari Jamiroquai,
segist kjósa bíla fram yfir konur.
FRÉTTIR AF FÓLKI