Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 62
46 7. maí 2005 LAUGARDAGUR HANDBOLTI Eftirsóttasti handknatt- leiksmaður þjóðarinnar, Árni Þór Sigtryggsson, hefur ekki enn ákveðið hvar hann muni leika handknattleik næsta vetur en fjöl- mörg félög hafa slegist um þjón- ustu hans síðustu vikur. Hann er í samningaviðræðum við þýska stórliðið Flensburg þessa dagana en honum stendur til boða að leika hér heima eitt ár í viðbót áður en hann gengur í rað- ir félagsins. Gengur hægt Árni Þór sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að ekkert væri komið á hreint fyrir utan að hann myndi væntanlega ekki leika áfram með Þór á Akureyri. Skipti þá engu hvort Rúnar bróðir hans tæki við liðinu sem samkvæmt heimildum blaðsins er mjög lík- legt. „Þetta gengur frekar hægt. Ég er í viðræðum við Flensburg þessa dagana og á von á samn- ingstilboði frá þeim hvað úr hverju. Sá samningur tekur gildi eftir eitt ár og ég geri frekar ráð fyrir að taka því tilboði,“ sagði Árni Þór sem stefnir þá á að leika með félagi á höfuðborgarsvæðinu enda ætlar hann sér í háskólanám í höfuðborginni. Það hefur tekið Árna Þór lengri tíma að ganga frá sínum málum en hann áætlaði í fyrstu og hann játaði að vera ekki alveg viss um hvað hann langaði helst að gera. Vil vita að hverju ég geng „Það gæti vel farið svo að ég taki tvö ár hér heima áður en ég fer út. Ég vil ekki skrifa undir hjá ein- hverju félagi bara til þess að skrifa undir. Maður vill vita að hverju maður gengur. Ég get far- ið út núna, eftir ár eða tvö ár. Svo ef Flensburg semur við einhvern annan, en það eru sögu- sagnir um að þeir vilji kaupa landsliðsmanninn Holger Gland- orf, þá er ég kominn aftarlega í goggunarröðinni og þá er ekkert víst að ég vilji semja við félagið. Ég verð bara að sjá til hvað gerist. Svo er líka áhugi liða frá Spáni sem væri gaman að skoða þannig að ég gæti endað hvar sem er,“ sagði Árni Þór Sigtryggsson sem neitaði því ekki að hann væri orðinn örlítið þreyttur á að hafa þessa hluti hangandi yfir sér. Hann vonast til að klára sín mál í næstu viku. henry@frettabladid.is Árni Þór á leið í bæinn en er ekki búinn að finna sér félag BESTUR Í APRÍL Frank Lampard tryggði Chelsea sigurinn í deildinni með tveimur mörkum sínum gegn Bolton. FÓTBOLTI. Frank Lampard hjá Chel- sea og Stuart Pearce, knatt- spyrnustjóri Manchester City, voru í gær útnefndir leikmaður og þjálfari ársins í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Lampard var að venju lykilmaður í sterku liði Chelsea, sem vann enska meistaratitilinn á dögunum, en það var einmitt Lampard sem skoraði bæði mörk liðsins í leikn- um sem tryggði titilinn endan- lega. Lampard var nýlega kosinn leikmaður ársins af blaðamönnum á Englandi. Stuart Pearce hefur staðið sig með prýði síðan hann tók við stjórn Manchester City af Kevin Keegan í mars og bindur hann miklar vonir við að fá að halda starfi sínu áfram í haust, en hann var upphaflega aðeins ráðinn sem afleysingaþjálfari þangað til ann- ar maður yrði fenginn í starfið. Undir stjórn Pearce var lið City taplaust í deildinni í apríl og hefur raunar aðeins tapað einum deild- arleik síðan hann tók við starfinu. - BB Ekki er enn ljóst hvar stórskyttan Árni fiór Sigtryggsson leikur á næstu leiktí› en fjöldi li›a vill semja vi› hann. Árni gerir fló ekki rá› fyrir flví a› vera áfram á Akureyri. EFTIRSÓTTUR STRÁKUR Árni Þór Sigtryggsspn er ákaflega eftirsóttur þessa dagana en hefur þrátt fyrir það ekki enn gert upp hug sinn með framtíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LEIKIR GÆRDAGSINS NM í körfubolta 16 ÁRA STRÁKAR: ÍSLAND–DANMÖRK 68–66 Stig Íslands: Hjörtur Hrafn Einarsson 25 (11 fráköst, 6 stoðsendingar), Þröstur Jó- hannsson 16 (16 fráköst), Rúnar Ingi Er- lingsson 12 (7 stoðsendingar), Páll Fann- ar Helgason 8, Arnar Freyr Lárusson 4, El- ías Kristjánsson 2 og Helgi Björn Einars- son 1. 16 ÁRA STRÁKAR: ÍSLAND–NOREGUR 92–70 Stig Íslands: Hjörtur Hrafn Einarsson 28 (13 fráköst, 5 varin skot), Þröstur Jó- hannsson 21 (12 fráköst, 6 varin skot), Rúnar Ingi Erlingsson 12 (7 stoðsending- ar, 6 fráköst), Arnar Freyr Lárusson 10, Hjalti Friðriksson 7, Páll Fannar Helgason 5, Helgi Einarsson 4, Elías Kristjánsson 3 (5 stoðsendingar), Friðrik Guðni Óskars- son 2. 18 ÁRA STELPUR: ÍSLAND–FINNLAND 99–95 Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir 29 (16 fráköst, 12 stoðsendingar, 4 varin skot), Bryndís Guðmundsdóttir 23 (12 fráköst), Pálína Gunnlaugsdóttir 21 (6 stolnir, 5 stoðsendingar), María Ben Erlingsdóttir 17, Sigrún Ámundadóttir 5, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 4. 18 ÁRA STRÁKAR: ÍSLAND–DANMÖRK 85–51 Stig Íslands: Brynjar Þór Björnsson 25 (19 mínútur, hitti úr 9 af 14 skotum), Árni Ragnarsson 10, Árni Þór Jónsson 9, Ellert Arnarson 8, Hörður Axel Vilhjálms- son 8 (5 stoðsendingar), Emil Jóhanns- son 6, Sigurður Þorsteinsson 6 (6 fráköst, 6 varin skot), Vésteinn Sveinsson 5, Haf- þór Björnsson 4, Ólafur Torfason 2 (11 fráköst), Darri Hilmarsson 2. 16 ÁRA STELPUR: ÍSLAND–SVÍÞJÓÐ 39–79 Stig Islands: Unnur Tara Jónsdóttir 7 (7 fráköst, 6 stolnir), Berglind Anna Magnús- dóttir 7, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6 (11 fráköst), Íris Sverrisdóttir 5, Margrét Kara Sturludóttir 5, Hafrún Hálfdánardótt- ir 5, Fanney Lind Gudmundsdóttir 2 og Alma Rut Garðarsdóttir 2. Menn aprílmánaðar: Lampard og Pearce bestir Gott gengi íslensku landsliðanna á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fer fram í Svíþjóð: Fjórir sigrar í fyrsta sinn í sögunni KÖRFUBOLTI Íslensku unglingalið- in eru að standa sig á Norður- landamótinu í Svíþjóð og þriðji dagurinn á mótinu var sögulegur því þá unnu íslensku liðin fjóra sigra í fyrsta sinn. Íslensku liðin léku fimm leiki og strákarnir í 16 ára liðinu unnu þar af báða sína leiki. Eldri liðin hafa unnið fimm af sex leikjum sínum, stelpuliðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með fjögurra stiga sigri á sterku liði Finna, 95-91, eftir að hafa lent mest níu stigum undir í seinni hálfleik, og strákaliðið stendur vel að vígi fyrir síðasta leikinn gegn Finnum en strák- arnir hafa unnið alla sína leiki. Helena Sverrisdóttir var með þrefalda tvennu í sigrinum á Finnum; skoraði 29 stig, tók 16 fráköst og gaf 12 stoðsendingar, en þrír leikmenn liðsins skoruðu á þriðja tug stiga því Bryndís Guðmundsdóttir (23) og Pálína Gunnlaugsdóttir (21) skoruðu báðar yfir 20 stig. Brynjar góður Brynjar Þór Björnsson skoraði 25 stig á 19 mínútum fyrir strákaliðið þar sem allir fengu að spreyta sig. Strákarnir í 16 ára liðinu gerðu sér lítið fyrir og unnu báða leiki sína í dag; fyrst tveggja stiga sigur á Dönum, 68-66, í spennuleik og svo með öruggum 22 stiga sigri á Norðmönnum, 92- 70. Strákarnir hafa unnið alla þrjá leiki sína en þurfa engu að síður að vinna Finna á morgun til þess að vera öruggir í úrslitaleik- inn. Miklar framfarir Yngra stelpnaliðið sýndi miklar framfarir í tapi gegn Svíum sem eru með sterkasta liðið en hafa engu að síður tapað öllum þrem- ur leikjum sínum. Stelpurnar eiga möguleika á að leika um þriðja sætið vinnist síðasti leik- urinn gegn Noregi í dag. Hjörtur Hrafn Einarsson skoraði samtals 53 stig og tók 24 fráköst í leikjum dagsins, Þröst- ur Jóhannsson bætti við 37 stig- um og 28 fráköstum og Rúnar Ingi Erlingsson lét veikindi ekki hafa áhrif á sig og var með 12 stig og 7 stoðsendingar í báðum leikjunum. ooj@frettabladid.is KOMNAR Í ÚRSLITALEIKINN Stelpurnar í 18 ára landsliðinu fögnuðu vel eftir sigur á Finnum í gær því með honum tryggðu þær sér sæti í úrslitaleiknum á sunnudag fyrst íslenskra liða en bæði strákaliðin eiga góða möguleika á að bætast í hópinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/BJARNI GAUKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.