Fréttablaðið - 07.05.2005, Síða 6
6 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Öryggisástandið í Írak slæmt sem endranær:
Líkfundur á öskuhaugunum
BAGDAD, AP Á annan tug líka fannst
á ruslahaugum í útjaðri Bagdad í
gær en auk þess týndu í það
minnsta 26 lífi í hryðjuverkaárás-
um gærdagsins. Fjöldi þeirra sem
hafa fallið síðan ríkisstjórn al-
Jaafari tók við völdum nálgast nú
þriðja hundraðið.
Menn í leit að brotajárni og
öðru nýtilegu fundu líkin á ösku-
haugum á borgarmörkum Bagdad
í gærmorgun. Þau eru sögð tólf
talsins og var greinilegt að fólkið
hafði verið tekið af lífi. Bundið
hafði verið fyrir augu sumra fórn-
arlambanna og þau skotin í höfuð-
ið. Líkin eru talin vera af bændum
sem hurfu á dögunum er þeir voru
á leið á markað með afurðir sínar.
Í borginni Tikrit fórust átta
lögreglumenn í bílsprengjuárás í
gær en sjö særðust illa. Sunnar í
landinu, í bænum Suwayrah, var
enn einu sinni ráðist gegn um-
sækjendum um lögreglustörf en
þá gekk sjálfsmorðssprengjumað-
ur inn í mannþröng, drap fjórtán
manns og særði tuttugu.
Ríkisstjórn al-Jaafari fundaði í
dag um versnandi öryggisástand í
landinu en síðan hún tók við völd-
um hafa um 270 manns látið lífið í
árásum. Talsmaður forsætisráð-
herrans sagði að búið yrði að
skipa í öll ráðherraembættin á
sunnudag. ■
Tveir frambjóðendur Verkamannaflokksins:
Töpu›u fyrir fyrrverandi samflokksmanni
BRETLAND Tvær konur í framboði
fyrir Verkamannaflokkinn þurftu
í gær að lúta í lægra haldi fyrir
fyrrverandi samflokksmönnum
sínum í kjördæmum þar sem
flokkurinn fékk meira en helming
greiddra atkvæða í síðustu þing-
kosningum.
Oona King missti þingsæti sitt
fyrir Bethnal Green til George
Galloway, fyrrum þingmanns
Verkamannaflokksins, sem bauð
sig fram fyrir framboðslistann
Respect. Helsta baráttumál
Galloways var að mótmæla Íraks-
stríðinu, en stór hluti íbúa
kjördæmisins er múslimar.
Oona er ung svört kona sem
kom inn á þing 1997 og þótti eiga
mikla framtíð innan flokksins. Á
síðasta kjörtímabili hafði hún all
oft komið fram í fjölmiðlum,
meðal annars til að sýna fjöl-
breytileika þingmanna flokksins.
Í Blaenau Gwent kjördæmi í
Wales tókst Maggie Jones ekki að
komast inn á þing fyrir hönd
Verkamannaflokksins, en fylgi
flokksins í kjördæminu var yfir 70
prósent í kosningunum 2001.
Blaenau Gwent var talið eitt ör-
uggasta þingsæti Verkamanna-
flokksins og voru úrslitin því
nokkuð áfall fyrir flokkinn.
Heimamenn voru ekki sáttir við
að höfuðstöðvar Verkamanna-
flokkisins buðu heimamönnum
einungis upp á kvenkyns fram-
bjóðendur. Til að mótmæla þessari
tilhögun höfuðstöðvanna kaus
meirihluti kjósenda Peter Law.
Hann er fyrrverandi meðlimur
Verkamannaflokksins, en gekk úr
flokknum eftir deilur um fram-
boðslistann. - ss
Akralandsló›ir
gætu slegi› met
Hafin er sala fyrstu ló›anna á Akralandi í Gar›abæ og búast fasteignasalar
almennt vi› a› metver› fáist fyrir flær vænlegustu. fiegar hefur mikils áhuga
or›i› vart enda sta›setningin gó›.
FASTEIGNIR „Miðað við þann slag
sem verið hefur um lóðir mjög
víða á suðvesturhorni landsins
undanfarnar vikur og mánuði tel
ég ekki ólíklegt að bestu lóðirnar
fari um og yfir 20 milljónir króna,
„ segir Þorleifur St. Guðmunds-
son, fasteignasali hjá Eignamiðl-
uninni, en það fyrirtæki er annað
tveggja sem auglýst hafa til sölu
einbýlishúsalóðir í Akrahverfi í
Garðabæ.
Fasteignasalar sem Fréttablað-
ið náði tali af eru flestir sammála
um að met verði slegin með sölu
lóðanna enda um stórar lóðir mið-
svæðis á höfuðborgarsvæðinu að
ræða. Hingað til hafa svipaðar
lóðir hæst farið í 16 til 17 milljón-
ir króna.
Sigurður Hjaltested, sölustjóri
Kletts fasteignasölu, er meðal
þeirra sem telja að með útboðinu
gætu lóðamet verið slegin. „Miðað
við lóðaverð í Garðabæ og hátt
fasteignaverð þar gæti ég séð fyr-
ir mér að lóðir færu á bilinu 12-17
milljónir. Lóðir með gott útsýni
eru eflaust dýrari,“ segir Sigurður.
Þorleifur Guðmundsson segist
þegar hafa fundið fyrir miklum
áhuga þó stutt sé síðan lóðirnar
voru auglýstar og er hann ekki í
neinum vafa um að barist verði
um hverja lóð. „Það er eitt sem
hefur gleymst í umræðunni um
hækkandi fasteignaverð og það
er að lóðaverð hefur hækkað mun
meira en húsnæðisverðið. Á með-
an byggingarkostnaður hefur að
miklu leyti staðið í stað hefur
verð á landi mjög víða rokið upp.
Að því leytinu til eru þessar lóðir
ekki ýkja dýrar miðað við stað-
setningu.“
Ágúst Kr. Björnsson, fram-
kvæmdastjóri eignarhaldsfélags-
ins Akralands, sem er sameign
Þyrpingar og Keflavíkurverktaka
og var sérstaklega stofnað utan
um verkefni í Garðabæ, segir
engar kröfur gerðar af þess hálfu
um lágmarks- eða hámarksboð í
viðkomandi lóðir. „Það er mjög á
reiki hversu mikið er hægt að fá
fyrir umræddar lóðir og það er að
hluta til ástæða þess að við setj-
um ekkert lágmark. Þetta eru
afar góðar eignir á eftirsóttum
stað og ég fullyrði að ekki hafa
komið jafngóðar lóðir til sölu á
höfuðborgarsvæðinu í langan
tíma.“
Alls verða 49 lóðir seldar en í
þessari atrennu eru 26 lóðir í boði
og rennur frestur til að skila inn
tilboðum út eftir tvær vikur.
albert@frettabladid.is
Eltingaleikur:
Tekinn
á 160
HRAÐAKSTUR Bifhjólamaður gerði
tilraun til að stinga lögregluna af
þegar hún reyndi að stöðva hann
þar sem hann ók á 118 kílómetra
hraða eftir Reykjanesbrautinni. Ók
hann á meira en 160 kílometra
hraða þegar eltingaleikurinn stóð
sem hæst. Eltingaleiknum lauk svo í
iðnaðarhverfi í Hafnarfirði þegar
maðurinn datt og var tekinn hönd-
um. Lögreglan segir viðbrögð bif-
hjólamannsins afar óhyggileg þar
sem hann hefði sloppið með 20 þús-
und króna sekt hefði hann stöðvað
strax. Þess í stað má hann nú búast
við hárri sekt og ökuleyfissviptingu
auk þess sem hjólið er illa farið. – jse
www.bluelagoon.is • 420 8800
Verð 6.200 kr.
Orkumeðferðin er fáanleg í verslunum
Bláa Lónsins í heilsulind, að Aðalstræti 2
í Reykjavík, í versluninni Lyf & heilsa í Kringlunni
og í netverslun á www.bluelagoon.is
Mæðradaginn
Hugsaðu vel um mömmu og færðu henni nýju BLUE LAGOON
orkumeðferðina sem hreinsar húðina, kemur á hana jafnvægi
og fær húðina til að geisla af orku.
Orkumeðferð
fyrir andlit á
Fáanlegt í versluninni
Lyf & heilsa í Kringlunni
Veistu hva› Mannréttinda-
skrifstofa gerir?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Lastu Bla›i› í gær?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
56%
44%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
ÚTFÖR UNDIRBÚIN Lögreglumenn í Tikrit
útbúa líkkistur sem félagar þeirra verða
lagðir í.
SIGRI GALLOWAYS FAGNAÐ Galloway
var einn fyrrverandi flokksmanna Verka-
mannaflokksins sem komust á þing
með sérframboði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EFTIRSÓTT LANDSPILDA Komnar eru í sölu fyrstu 26 eignalóðir að Akralandi í Garðabæ
og eru fasteignasalar almennt sammála um að lóðaverð gætu slegið öll met.