Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 10
7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Samfylkingin býður fram í Mosfellsbæ:
Sí›asti G-listinn hverfur brátt
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ákveðið var á
félagsfundi Samfylkingarinnar í
vikunni að bjóða fram S-lista í
bæjarstjórnarkosningunum eftir
eitt ár. Þar með hverfur síðasti G-
listinn í landinu bráðlega.
Lögð var fram tillaga á aðal-
fundi Samfylkingarfélagsins í
mars um að Samfylkingin byði
fram sérstakan S-lista í kosning-
unum og var þeirri tillögu vísað til
félagsfundar. Það var gert og
tillagan samþykkt einróma.
Jónas Sigurðsson bæjarfulltrúi
situr í bæjarstjórn Mosfellsbæjar
fyrir G-listann. Hann segir að á
bak við G-listann hafi verið bæj-
armálafélagið Mosfellingur, sam-
starfsvettvangur Samfylkingar-
innar og Vinstri grænna, og verð-
ur sá listi þá ekki boðinn fram
aftur, að minnsta kosti ekki með
Samfylkingunni innanborðs.
Jónas ætlar að gefa kost á sér
til að leiða S-listann næsta vor.
Hann segir að ekki hafi verið
neinn málefnaágreiningur milli
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna og Samfylkingin sjái
fyrir sér að menn geti starfað
saman að bæjarmálum þó að í
öðru formi sé. - ghs
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Þeim er að
einhverju leyti vorkunn vegna
þeirrar þenslu sem hér hefur
verið en það átti ekki að koma
þeim á óvart,“ segir Magni Krist-
jánsson, sem sæti á í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar. Allur minnihlut-
inn í bæjarstjórn sat hjá við af-
greiðslu ársreiknings í vikunni
vegna þess sem Magni kallar
óráðsíu og blekkingarleik.
Auk Magna sat hjá Hallfríður
Bjarnadóttir, einnig frá Sjálf-
stæðisflokknum, og Ásmundur
Páll Hjaltason frá Biðlistanum.
Segir Magni að ársreikningurinn
líti bærilega út enn eitt árið en
ástæða þess sé einfaldlega sú að
framkvæmdir sitji á hakanum og
frestað sé mánuðum saman að
ráða í lausar stöður innan bæjar-
félagsins. „Það segir sig sjálft að
spara má mikla fjármuni með því
að skjóta slíku á frest og það
hefur meirihlutinn gert ítrekað.
Hér má segja að fjölmargar
framkvæmdir sem staðið hafa
fyrir dyrum og beðið er eftir sé
slegið á frest sem veldur því að
verktakar og húsbyggjendur
geta ekki hafist handa á réttum
tíma. Það er mikið kvartað út af
því, sem er afar bagalegt hjá
sveitarfélagi þar sem vitað hefur
verið í langan tíma að með stór-
iðju yrði fyrirsjáanlegur mikill
uppgangur. Ýmis verk sem skipu-
leggja mátti með góðum fyrir-
vara sitja föst vegna skipulags-
leysis bæjarstjórnar.“
Smári Geirsson, forseti bæjar-
stjórnar, segir eðlilegt að áætlanir
taki breytingum og það gildi
einnig um Fjarðabyggð. „Fram-
kvæmdaáætlanir eru eðlilega
endurskoðaðar með jöfnu millibili
með tilliti til fjárhagsáætlana.
Þess utan getur forgangsröðun
verkefna tekið ófyrirséðum
breytingum og oft á tíðum ætla
menn sér meira en minna í sínum
áætlunum. Þetta á við um flestöll
sveitarfélög og er ekkert sem á að
koma bæjarfulltrúum á óvart og
því botna ég ekki í bókunum á
borð við þá sem minnihlutinn lét
frá sér fara. Slík bókun gefur það
í skyn að bæjarfulltrúar hafi eitt-
hvað með það að gera hvernig árs-
reikningur er gerður. Slíkur
reikningur er gerður af löggiltum
endurskoðendum eftir reiknings-
skilavenjum og þeir leggja þar
starfsheiður sinn að veði. Slík
bókun dæmir sig sjálf.“
albert@frettabladid.is
Krabbameinsvaldandi litarefni fundust í Old El Paso kryddum:
Komi› í veg fyrir dreifingu
NEYTENDUR Komið var í veg fyrir
dreifingu matvæla hér eftir að í
ljós kom að þær innihéldu krabba-
meinsvaldandi litarefni sem eru
stranglega bönnuð.
Um er að ræða krydd sem
fylgdu með svokölluðum „dinner
kits“ sem hafa verið seld hérlend-
is undir vörumerkinu Old El Paso.
Nathan & Olsen flutti talsvert
magn vörunnar hingað en viðvör-
un kom frá Bandaríkjunum í tæka
tíð og fóru því engar vörur í versl-
anir hérlendis að sögn Herdísar
Guðjónsdóttur hjá Umhverfis-
stofnun sem er eftirlitsaðili með
þessum málum hérlendis. Aðeins
er um ákveðnar framleiðsluein-
ingar að ræða og er fengin full
vissa fyrir að þær Old El Paso
vörur sem hér eru seldar inni-
halda ekki bönnuð efni.
Litarefnið sem um ræðir kallast
Para Red og er keimlíkt svoköll-
uðu Sudan 1 litarefni en rannsókn-
ir hafa sýnt að bæði litarefnin eru
krabbameinsvaldandi og eru bönn-
uð í flestum löndum. - aöe
HÆTTA Á FERÐ Litarefni sem talið er krabbameinsvaldandi hefur fundist erlendis í vörum
sem seldar eru hér. Aðvörun barst þó í tæka tíð. Tekið skal fram að myndin tengist ekki
efni greinarinnar.
Meirihlutinn saka›ur um
órá›síu og blekkingar
Skipulagsleysi meirihluta bæjarstjórnar Fjar›abygg›ar veldur flví a› fram-
kvæmdir sitja á hakanum svo mánu›um skiptir í a›draganda mesta uppgangs-
tímabils í héra›inu, a› mati minnihlutans í bæjarstjórn.
REYÐARFJÖRÐUR Fjölmörg brýn verkefni stranda að mati minnihlutans á skipulagsleysi meirihlutans í Fjarðabyggð og kvartanir verktaka
og húsbyggjenda eru algengar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
JÓNAS SIGURÐSSON Bæjarfulltrúi
G-listans í Mosfellsbæ.