Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 18
Lýðræði gölluð útflutningsvara?
Það er óneitanlega töluverð þversögn
fólgin í því að ríki sem ráða yfir tugþús-
undum kjarnaodda skuli geta réttlætt
stríð með tilvísun í ógn sem stafi af ríki
sem ekki reyndist ráða yfir gereyðingar-
vopnum af neinu tagi. Ekki er þó minni
þversögn fólgin í hinu að þau ríki telji sig
umkomin að breiða út lýðræði í heimin-
um, sem búa við svo meingallað, rang-
látt og ólýðræðislegt kosningakerfi að
þingmeirihluti starfar ekki í umboði
nema 20-30% kjósenda. [...]
En heimsbyggðin situr áfram uppi með
glæpamanninn Tony Blair sem forsætis-
ráðherra í Bretlandi. Í skjóli 36,2% þeirra
sem nenntu að kjósa í þingkosningum.
Meira að segja Hitler hafði meiri stuðn-
ing á bak við sig en þetta.
Sverrir Jakobsson – murinn.is
Frí í þágu hagkvæmni
Séu frídagarnir fluttir næðist meiri sam-
fella í vinnuvikunni og aukin hagkvæmni
á vinnustöðum. Framleiðni og afköst
ættu að aukast ásamt hagræði og skil-
virkni í atvinnulífinu. Launþegar gætu
einnig nýtt umrædda frídaga mun betur
þar sem þeir væru þá hluti af helgarfríi.
Breytt fyrirkomulag gæti því ýtt undir
ferðalög, tómstundir og afþreyingu al-
mennings ásamt því að auðga samveru-
stundir fjölskyldunnar. Í raun má segja
að hagsmunir launþega, atvinnulífs og
fjölskyldna fari saman að þessu leyti.
Ágúst Ólafur Ágústsson – agustolafur.is
Áhugalausir lesendur
Rót vandans, hvort tveggja bókmennt-
anna og umfjöllunarinnar, gæti falist í
settlegheitunum og hræðslunni við hið
persónulega (sem skýrist að hluta til af
nálægð og fólksfæð). Það er mikilvægt
að stíga varlega til jarðar, veðja á örugg-
an hest og mest um vert er að styggja
ekki þá sem einhvern daginn gætu sjálf-
ir sest í dómarastól og/eða kastað stein-
um. Dragbíturinn gæti líka skýrst afÝ al-
mennu áhuga- og hefðarleysi íslenskra
lesenda eða af markleysi menningarum-
ræðunnar.
Kristrún Heiða Hauksdóttir – kistan.is
7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Afhjúpar
morðingja
dóttur
sinnar
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 97. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2005
Böddi bíður
eftir Duran
Hér & nú bls. 50
Bls. 32–33
Baksíða
Sæta stelpan sem sigraði heiminnl i i i i
MARTRÖÐIN
Í VÖGGUNNI
Mæður sem missabörnin sín án skýringa
Ættleidd og ástfangin
Loksins ólétt eftir að hafamisst tvær dætur
Anna Gréta og Daníel Þór kynntust fyrir tilviljun
ÁSTU
ÁTAKASAGA
Svívirt og hrintfram af svölum á Engihjalla
Jón
Ársæll
fær nýtt
hné
Linda Pé Kasólétt og hlakkar tilað verða einstæð móðir
Bls. 20–21
Bls. 34
Bls. 22–23
Um þetta leyti eru fimm ár síðan ÁslaugPerla, dóttir Gerðar Berndsen, var myrt íEngihjalla. Gerður hefur aldrei verið sáttvið dóminn yfir morðingja dóttursinnar og hefur aflað gagna semhún segir sýna fram á að ódæðis-maðurinn hafi svívirt ÁslauguPerlu og nauðgað henni áðuren hann myrti hana.
Bls. 26–28
VÖGGUDAUÐIMæður segja sögu sína
Ragnar Sverrisson kaupmaður í
herrafataversluninni JMJ á Akur-
eyri er maður vikunnar að þessu
sinni. Hann hefur drifið áfram
verkefnið Akureyri í öndvegi sem
lýtur að eflingu miðbæjarins en í
dag verða verðlaunatillögur um
nýtt skipulag opinberaðar og
kynntar.
Ragnar er Akureyring-
ur eins og þeir gerast
mestir, hann fæddist í
bænum og hefur búið þar
alla sína tíð. Æskuheimili
hans var í Ránargötunni
og þar var líf og fjör
enda systkinin átta. Í
næstu húsum bjuggu
líka miklir og litríkir
fjörkálfar, Kennedy-
bræðurnir, Samherja-
frændurnir og fleiri.
Þessi hópur fyllti Rán-
argötuliðið sem svo
var kalllað.
Ragnar var þægt og
ljúft barn og það kann
að þykja einhverjum
tíðindi að í æsku bar
hann ljóst, hrokkið og
mikið hár. Til marks um
hve ljúfur hann var má
nefna að eldri bræðrum
hans varð stundum á að
gleyma honum þegar þeir
fóru út á tún í fótbolta. Sat
hann hinn rólegasti í
kerrunni sinni þegar móðir
þeirra sendi þá eftir honum.
Ragnar er kvæntur Guð-
nýju Jónsdóttur og eiga þau
fimm börn. Fjölskyldan er
samheldin og hafa börnin
flest unnið í verslun föður
síns til lengri eða skemmri
tíma.
Það var reyndar tengda-
faðir Ragnars, Jón M. Jóns-
son, sem stofnaði og rak JMJ
og réði tengdasoninn í vinnu.
Ragnar hafði þá numið bókband
og vann við þá iðn áður en Jón
taldi sig geta brúkað piltinn í búð-
inni. Síðar keypti Ragnar rekstur-
inn.
Hann hefur nú staðið vaktina í
versluninni um árabil og er annál-
aður fyrir góða þjónustulund.
Honum er það hjartans mál að
viðskiptavinirnir gangi ánægðir
út frá honum enda veit hann sem
er að ánægður viðskiptavinur
kemur aftur. Fyrir vikið þykir
hann feiknagóður kaupmaður en
einum viðmælenda blaðsins varð
þó að orði að söluhæfileikar Ragn-
ars væru slíkir að það heyrði til
undantekninga að menn færu
tómhentir út úr búðinni.
Lengst af einbeitti Ragnar sér
að rekstri JMJ og hafði sig lítið í
frammi á öðrum vettvangi. Fyrir
nokkrum árum tók hann að sér
formennsku í félagsskap kaup-
manna á Akureyri og hefur staðið
vörð um hagsmuni verslunar í
bænum. Í þeim störfum sem öðr-
um hefur dugnaður hans nýst vel
en Ragnari fellur víst sjaldan
verk úr hendi.
Viðmælendum bar ekki saman
um hvort rétt væri að segja Ragn-
ar frekan. Á meðan sumir fullyrtu
það vildu aðrir nota hófstemmd-
ari lýsingar á borð við fylginn sér
eða ákveðinn. Menn voru á hinn
bóginn sammála um að Ragnar
Sverrisson væri ofvirkur. Hann
tók upp hollari lífshætti fyrir
nokkrum árum og við það leyst-
ist orka úr læðingi sem bætt-
ist við þá sem fyrir var.
Orkunni finnur hann svo
farveg í störfum sínum í
búðinni, fyrir Kaup-
mannafélagið og í verk-
efninu Akureyri í önd-
vegi. Og eins og það sé
ekki nóg gengur hann á
fjöll til að tæma hugann
og hlaða batteríin upp á
nýtt.
Ragnar er sagður
afar hreinskiptinn í
samskiptum við fólk
og segir jafnan skoð-
un sína umbúðalaust.
Honum er vel kunnugt
um þennan eiginleika,
sem sumir telja kost en
aðrir galla, og til að fyrir-
byggja misskilning er hann
gjarn á að taka fram að
hann sé nú bara að segja
sína skoðun og meini ekk-
ert illt með orðum sínum.
Það er völlur á Ragnari.
Hann er jafnan flottur í tauinu
og gengur gjarnan með barða-
stóran hatt sem er annað
tveggja einkennismerkja
hans. Hitt er brosið. Ragn-
ar er nefnilega oftast
skælbrosandi og maður
sem hefur unnið náið með
honum segist helst halda
að brosið sé fast á honum.
Ragnar er ötull og ein-
arður stuðningsmaður
íþróttafélagsins Þórs og eins
og gengur finnst Þórsurum
það mikill kostur en stuðnings-
mönnum KA finnst það ljóður á
ráði hans. Hér í eina tíð hefðu ein-
hverjir KA-menn sjálfsagt sneitt
framhjá verslun hans enda rangt
að eiga viðskipti við andstæðing
en slíku er ekki til að dreifa í dag
og ganga KA-menn jafnt sem
Þórsarar í fötum frá JMJ.
Og Ragnar lætur ekki duga að
styðja við bakið á félaginu af
áhorfendapöllunum, hann hefur
styrkt það fjárhagslega og stend-
ur til að mynda að árlegri sam-
komu þar sem íþróttamaður Þórs
er kjörinn.
Skælbrosandi
baráttujaxl
MAÐUR VIKUNNAR
RAGNAR SVERRISSON KAUPMAÐUR Í JMJ
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
. –
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
AF NETINU
LEIÐRÉTTING
Hinn 5. maí urðu þau leiðu mis-
tök að Sigurjóns Sæmundssonar
var getið í dálknum afmælis-
börn dagsins. Sigurjón lést fyrir
skemmstu. Aðstandendur hans
og lesendur eru beðnir af-
sökunar.
Rangt var farið með nafn Hösk-
uldar Jónssonar, forstjóra
Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins, í blaðinu í gær. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.