Fréttablaðið - 07.05.2005, Síða 32
Nýliðinn aprílmánuður varannasamur hjá KristínuIngvarsdóttur og sam-
starfsfólki hennar í Norræna sýn-
ingarskálanum á Expó 2005.
Þjóðadagar Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar voru haldnir í apríl
og af því tilefni heimsóttu ríkis-
arfar ríkjanna þriggja Japan
heim.
„Þetta er allt mjög geðþekkt
fólk,“ segir Kristín um hina eðal-
bornu og maka þeirra. Fulltrúi
Svíþjóðar var Viktoría prinsessa,
Hákon prins kom frá Noregi og
Friðrik prins og María Elísabet
frá Danmörku.
Þótt Kristín sé vitaskuld Ís-
lendingur er hún fulltrúi Norður-
landanna í Japan og þegar hún
notar orðið „við“ á hún við
Norðurlöndin öll.
„Ég verð að viðurkenna að ég
var mjög stolt af norrænu ríkis-
örfunum okkar. Þau eru öll mjög
frambærileg, tala mörg tungumál
og svara vel fyrir sig.“
Japanskir fjölmiðlar sýndu
kóngafólkinu mikinn áhuga og
framkoma þess kom blaðamönn-
um á óvart. Alþýðlegheitin voru
meiri en japanska pressan á að
venjast af fólki í slíkum stöðum,
þau heilsuðu almenningi með
handabandi og spjölluðu við börn-
in sem stóðu með þjóðfánana.
Þá var öllum spurningum svar-
að blátt áfram. „Norski krónprins-
inn er nýgiftur og ungur faðir og
fékk margar persónulegar spurn-
ingar um stöðu sína, verkaskipt-
inguna á heimilinu og lífið al-
mennt. Öllu þessu svaraði hann
eftir bestu samvisku,“ segir
Kristín og bætir við að heimsókn-
ir þessara tignu gesta hafi verið
afar ánægjulegar.
Íslendingadagur 15. júlí
Finnski þjóðadagurinn verður
haldinn á fimmtudag og þessa
dagana beinast kraftar Kristínar
að undirbúningi hans. Íslandsdag-
urinn verður svo 15. júlí og vita-
skuld mikið um dýrðir. Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra
verður heiðursgestur og Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra fer fyrir fjölmennri
sendinefnd listamanna.
„Menningin verður í forgrunni
en þó blöndum við henni saman
við annað, líkt og við höfum gert á
öðrum þjóðadögum,“ segir
Kristín.
Í hinum sameiginlega sýning-
arskála Norðurlandanna er lögð
áhersla á kynningu þess sem nor-
rænt er en síður á sérkenni hverr-
ar þjóðar fyrir sig. Það er aðeins í
fordyrinu að sagt er frá löndunum
í máli og myndum en þegar komið
er inn í skálann sjálfan er allt
samnorrænt. Og meðal íslenskra
muna á sýningunni eru íþróttasíð-
ur Morgunblaðsins, handprjónað
teppi og munir af íslenskum heim-
ilum.
Að auki eru einstaklingar frá
öllum Norðurlöndunum kynntir
og frá Íslandi varð Ingi Jóhann
Guðmundsson útgerðarmaður
fyrir valinu. Sagt er frá daglegu
lífi hans í stuttri mynd og ljós-
myndir úr fjölskyldualbúminu
sýndar.
„Umhverfisþemað sem var
valið fyrir Expo í ár er líka und-
irliggjandi þema hjá okkur. Við
kynnum það nýjasta á sviði orku-
nýtingar og þar er til dæmis
vindorkunotkun Dana kynnt,
vatnsorkunotkun Norðmanna og
jarðvarmanotkun Íslendinga.“
Allt innanstokks er flutt inn
beint frá Norðurlöndunum þannig
að skálinn er að sögn Kristínar
mjög sannur sem slíkur. „Allt frá
parkettinu að gjafapappírnum
sem er notaður í minjagripaversl-
uninni var sérstaklega flutt hing-
að fyrir sýninguna.“
Daglegt líf vekur forvitni
Það er sérstakt við Expo í ár að
gestgjafarnir, Japanir, kosta alla
skálana, ólíkt því sem áður hefur
tíðkast. Það var svo í höndum
hverrar þjóðar fyrir sig að inn-
rétta og nýta skálana eins og fólk
hafði ráð og hugmyndaflug til.
Að sögn Kristínar hefur Nor-
ræni skálinn vakið mikla athygli
meðal gesta og á dögunum var
sett met í gestakomu, 12.500
komu þangað á einum degi. Á
þeim rúma mánuði sem sýningin
hefur staðið hafa rúmlega 250
þúsund gestir komið í skálann.
Hún segir Norðurlöndin hafa
jákvæða ímynd í Japan og flest-
ir þekki eitthvað til landanna.
„Litla hafmeyjan í Kaupmanna-
höfn er til dæmis vel þekkt en
gestum finnst hvað mest spenn-
andi að sjá hvernig umhorfs er á
heimilum Norðurlandabúa. Fólk
vill sjá og vita hvernig fjölskyld-
urnar hegða sér heima fyrir og
hvernig daglega lífið gengur
fyrir sig.“
Kristín segist hafa fengið
mjög jákvæð viðbrögð við skál-
anum frá fjölda gesta og fjöl-
miðlafólks. Hann þyki afar
norrænn og andrúmsloftið hlý-
legt. „Fjölmargir staldra lengi
við hjá okkur og svo eru margir
sem koma aftur og aftur. Okkur
hefur tekist að búa til þægilega
stemningu sem fólk sækist í.“
bjorn@frettabladid.is
32 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Viska náttúrunnar er meginflema Heimss‡ningarinn-
ar Expo 2005 sem nú stendur yfir í Japan. Í fyrsta
sinn í 35 ár kynna Nor›urlöndin sig saman og hefur
Kristín Ingvarsdóttir umsjón me› norræna skálan-
um. Búist er vi› tólf milljón gestum á s‡ninguna fla›
hálfa ár sem hún stendur.
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
Dekkjalagerinn er nú á 11 stöðum um land allt!
...einfaldlega betri!
Sólbakka 8
310 Borgarnesi
Miðási 23
700 Egilsstöðum
Víkurbraut 4
780 Höfn
Gagnheiði 13
800 Selfossi
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
Flugumýri 16
270 Mosfellsbæ
Skeifunni 3c
108 Reykjavík
Viðarhöfða 6
110 Reykjavík
Melabraut 24
220 Hafnarfirði
Iðavöllum 8
230 Keflavík
Smiðjuvegur 6
200 Kópavogi
Nor›ri› kynnt
í austri
FJÖLBREYTTUR HÓPUR LISTAFÓLKS
skipar íslensku menningarsendi-
nefndina sem tekur þátt í Íslandsdeg-
inum 15. júlí: Caput tónlistarhópur-
inn, myndlistarmaðurinn Halldór Ás-
geirsson, Kvartett Sigurðar Flosasonar
ásamt Kristjönu Stefánsdóttur og
popphljómsveitin Bang Gang. Þá
verður flutt nýtt viðamikið verk, Berg-
mál, eftir Ragnhildi Gísladóttur og
Sjón í samvinnu við þekktasta slag-
verksleikara Japans, Stomu Yama-
shíta. Flytjendur auk þeirra þriggja
verða Sigtryggur Baldursson, Barna-
kór Biskupstungna og Skólakór Kárs-
ness en stjórnendur verða Þórunn
Björnsdóttir kórstjóri og Hilmar Örn
Agnarsson organisti.
NORRÆNAR STAÐREYNDIR SKOÐAÐ-
AR Sameiginlegur skáli Norðurlandanna á
Heimssýningunni í Japan hefur vakið at-
hygli gesta og fjölmiðlafólks, að sögn Krist-
ínar Ingvarsdóttur.
„Ég verð búin að vera hér í sjö ár þegar Expó
lýkur í haust,“ segir Kristín, sem líkar vistin í
þessu framandi landi mjög vel. Eftir að hafa lokið
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
langaði hana að læra eitthvað um Japan og önnur
Asíulönd og hélt til Danmerkur. Þar vann hún í eitt
ár en fór svo í fjögurra ára nám til Kaupmanna-
hafnar sem var blanda af alþjóðlegu viðskipta-
námi og Japansfræðum.
„Þegar ég hafði fengið smjörþefinn af Japan og
var búin að læra um toppinn á ísjakanum þurfti ég
auðvitað að fara á staðinn. Ég fékk styrk frá jap-
anska menntamálaráðuneytinu til að setjast á
skólabekk í Japan og kom hingað haustið 1998.“
Kristín fékk í fyrstu styrk til eins og hálfs árs
dvalar en hann hefur verið framlengdur í tvígang,
fyrst til náms til meistaraprófs í japanskri sam-
tímasögu og svo til doktorsprófs.
Meðfram námi var Kristín fréttaritari Ríkis-
útvarpsins í Japan og leiðsagði japönskum ferða-
mönnum um Ísland.
Og hún lætur vel af landi og þjóð. „Þetta er
spennandi og góður staður og að mörgu leyti mjög
þægilegur, þótt Tókýó geti stundum verið svolítið
yfirþyrmandi. Ég hef margar ástæður til að vera
hér áfram,“ segir hún himinsæl með lífið og tilver-
una.
KRISTIN INGVARSDÓTTIR Fyrir framan Norræna skálann á
Expo-sýningunni.
Japan er gó›ur og spennandi sta›ur
Kristínu Ingvarsdóttur hefur li›i› vel í Japan í flau tæpu sjö ár sem hún hefur
búi› flar. Áhuginn á landi og fljó› greip hana strax eftir stúdentspróf.