Fréttablaðið - 07.05.2005, Qupperneq 49
SPURNING: ER HÆGT AÐ
EYÐILEGGJA JÖRÐINA MEÐ
MENGUN?
Svar: Þessa spurningu má skilja á
ýmsa vegu en áhugaverðast er að
skoða eftirfarandi tvær spurning-
ar, nánar tiltekið:
1. Getur mannkynið eyðilagt allt
líf á jörðinni með mengun eða
öðrum ráðum?
2. Getur mannkynið gert jörðina
óbyggilega mönnum?
Eins og við er að búast þekkir
enginn svarið við fyrri spurning-
unni fyrir víst; þessi tilraun hefur
aldrei verið gerð og verður von-
andi aldrei! Svarið við spurning-
unni er þó líklega: „Já, nokkurn
veginn“. Þetta svar er hins vegar
ekki alveg augljóst; það er hvorki
sjálfgefið að mannkynið geti eyði-
lagt lífið á jörðinni né heldur
hvaða merkingu eigi að gefa
þeirri fullyrðingu.
Ósonlagið
Í umræðum um eyðingu ósonlags-
ins á undanförnum árum hefur
komið fram að þessi eyðing hefði
haldið áfram að aukast hröðum
skrefum ár frá ári ef menn hefðu
ekki tekið í taumana í iðnríkjum
jarðarinnar. Með öðrum orðum
hefði verið „hægt“ að eyða óson-
laginu ef menn hefðu ekki spyrnt
við fótum, og það hefði að minnsta
kosti valdið miklu tjóni í lífríki
jarðar. Svipaða sögu er að segja
um gróðurhúsaáhrifin, að þau
geta valdið miklu tjóni ef ekkert
er að gert. Hæpið er þó líklega að
tala um að þessi tvenns konar
áhrif geti valdið algerri „eyði-
leggingu“ lífsins hér á jörð.
Kjarnorkuvetur
Hættan á eyðileggingu jarðarinn-
ar á stuttum tíma af völdum
manna er líklega mest af svoköll-
uðum kjarnorkuvetri. Ef veruleg
kjarnorkustyrjöld blossaði upp á
jörðinni mundi geislavirkt ryk
þyrlast upp í háloftin, breiðast út
um alla jörð og draga úr sólarljósi
sem næði til jarðar. Engin sumur
mundu koma nokkur ár í röð og
dýr og jurtir mundu deyja í
hrönnum. Lífið sem eftir stæði ef
eða þegar hildarleiknum lyki
kynni að verða gerólíkt því sem
nú er, þannig að það væri alls
engin fásinna að tala um eyðilegg-
ingu. Þetta mundi þó fara eftir því
hversu mikið af kjarnavopnum
yrði sprengt og á hve löngum
tíma.
Hamfarir fyrir 65 milljón árum
Ein ástæðan til þess að menn geta
gert sér sæmilega glögga mynd af
þessu er sú að svipaðar hamfarir
hafa átt sér stað nokkrum sinnum
í jarðsögunni, til dæmis fyrir 65
milljón árum þegar risaeðlurnar
dóu út og einnig talsvert fyrr.
Meginorsakirnar í þessum tilvik-
um hafa verið annaðhvort stór
loftsteinn sem þyrlar upp miklu
ryki eða verulegar og langvinnar
eldgosahrinur, nema hvorttveggja
sé.
Lífríkið getur aðlagað sig að
breyttum aðstæðum
Vert er að staldra við það hvernig
við getum hugsað okkur að hluti
lífsins á jörðinni geti lifað af
kjarnorkuvetur eða kuldaskeið af
öðrum ástæðum. Við þurfum þá
að hafa hugfast að lífverurnar
geta flutt sig til á jörðinni. Þegar
kólnar geta þær sem lifa í fjöllum
fært sig neðar og þær sem búa
fjarri miðbaug til norðurs eða
suðurs geta fært sig nær honum.
Lífríki jarðar sem heild er afar
fjölskrúðugt og lífsskilyrði þess
eru mjög mismunandi eftir stöð-
um. Þess vegna býr það yfir
mikilli hæfni til að laga sig að
breyttum aðstæðum, en að vísu í
þeim skilningi einum að eitthvað
verður eftir af lífríkinu þegar
hamfarir verða, en það er þá
kannski varla svipur hjá sjón.
Dæmisaga um rottur
Seinni spurningin hér á undan,
hvort við getum gert jörðina
óbyggilega mönnum, er auðveld-
ari viðfangs, en vitaskuld má þó
líka kalla slíkt eyðileggingu, að
minnsta kosti frá sjónarmiði
mannanna. Enginn vafi er á því að
mannkynið getur útrýmt sjálfu
sér með ýmsum ráðum, til dæmis
með styrjöldum, kjarnorkuvopn-
um, eyðingu ósonlagsins, gróður-
húsaáhrifum, eitrun lofts eða
neysluvatns og svo framvegis.
Kannski getur dæmisaga um rott-
ur á Nýja-Sjálandi skýrt þetta
svolítið betur:
Þegar maðurinn (Homo sapi-
ens) kom fyrst til Nýja-Sjálands
fyrir um það bil 1000 árum voru
þar engin spendýr á landi nema
leðurblökur. Eitt af þeim dýrum
sem kom með mönnunum var
rottan. Menn hafa síðan oft reynt
að útrýma henni með ýmsum ráð-
um hvers tíma, en það hefur
lengst af gengið illa. Þegar lagt er
til dæmis út eitur verða einhver
dýr fyrst til að éta það og deyja en
hin dýrin sjá það og læra að var-
ast eitrið, þannig að stofninn lifir
þó að einstaklingar úr honum láti
lífið.
En í seinni tíð hafa menn fund-
ið ráð við þessu til að eyða rottum
á afmörkuðum svæðum. Sein-
virku eitri er þá dreift um allt
svæðið í senn þannig að fyrstu
dýrin deyja ekki fyrr en öll dýrin
hafa fengið eitrið í sig og bíða
dauðans.
Seinvirkt eitur
Ef við höfum í huga fjölbreytnina
og hugkvæmnina í verkum mann-
anna bendir ekkert til þess að
mannkyninu ætti að vera ofvaxið
að búa til svo seinvirkt „eitur“ að
menn hafi allir meðtekið það áður
en skaðleg áhrif þess koma fram
fyrir alvöru.
Endalok mannkyns
Breski stjarnvísindamaðurinn
Martin Rees, sem nú er forseti
Breska vísindafélagsins (Royal
Society), hefur nýlega skrifað bók
þar sem hann rökstyður að enda-
lok mannkynsins hér á jörð kunni
að vera skammt undan ef ekkert
er að gert. Bókin heitir í banda-
rískri útgáfu Our Final Hour: A
Scientist’s Warning en í breskri
útgáfu nefnist hún Our Final
Century?: Will the Human Race
Survive the Twenty-first Cent-
ury? Hægt er að lesa um bókina
og kenningar Rees á veraldar-
vefnum með því að smella á tengl-
ana í þessari efnisgrein.
Þorsteinn Vilhjálmsson, pró-
fessor í eðlisfræði og vísindasögu
við HÍ.
Höfundur þakkar Sigurði
Steinþórssyni og Tómasi Jóhann-
essyni góðar athugasemdir við
fyrri gerð
Jör›in ey›ilög›
Á Vísindavef Háskóla Íslands er til mikið efni um mengun, ósonlagið, gróðurhúsaáhrif
og fleira tengt svarinu hér fyrir ofan, meðal annars svör við þessum spurningum: Af
hverju er ekki hægt að búa til óson og setja upp í gufuhvolfið, hvað veldur gróður-
húsaáhrifum, hvaða vatn er það mengaðasta í heimi og hvar er það, hvernig lifir
kakkalakki af kjarnorkusprengju og í hvað er kjarnorka aðallega notuð?
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
LAUGARDAGUR 7. maí 2005
Allt um fasteignir og heimili
á mánudögum í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
Í
S
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
S
T
O
F
A
N
/
S
I
A
.
I
S