Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 52
Oft er sagt að eiturlyfinverði til í fjarlægum lönd-um Suður-Ameríku og Mið-
Asíu. Ekki þarf hins vegar að leita
lengra út fyrir Evrópu en til
Marokkó til þess að sjá heilu
akrana af kannabisplöntum.
Nyrst í Marokkó er hérað sem
nefnist Ketama. Þar námu Márar
land eftir að hafa verið hraktir frá
Spáni. Síðan þá hefur ríkt í hérað-
inu óstjórn, eða í það minnsta mik-
ið frjálsræði, og er landið gjarnan
kallað „bled el siba“ meðal heima-
manna, eða land hina löglausu. Sá
frasi er meira að segja þekktur
meðal stjórnvalda, sem líta fram-
hjá manndrápum og stórfelldri
kannabisrækt í þessum hluta
landsins. Árlega er hundruðum
kílóa af hassi smyglað sjóleiðis
yfir Gíbraltarsundið í hendur
spænskra eiturlyfjasala.
Á leið minni um Marokkó í vor,
ásamt fjórum Íslendingum, heim-
sótti ég hassbónda í þessu skugga-
lega héraði og komst í hann
krappan á heimili hassbaróns.
Hassbændur og smyglarar
Ferðinni var heitið frá bænum
Nadur til Fez. Eftir klukkutíma
strögl og prútt við leigubílsjórann,
sem var umvafinn tuttugu samn-
ingsráðgjöfum úr öllum stéttum,
fengum við bílinn á þúsund dir-
hama, sem gera um sjö þúsund
krónur. Hæsta boð eins bílstjórans
var tólf þúsund dirhamar.
Á meðan við ókum þvers og
kruss um fjallavegina í Rif-fjalla-
garðinum í Ketama-héraði sögð-
um við leigubílstjóranum að
gaman gæti verið að heimsækja
hassbúgarð. Á þessum slóðum
þrífst ekki annar atvinnuvegur en
kannabisrækt. Ef þú ert ekki
hassbóndi ertu smyglari. Frekar
einföld regla – og sú eina sem
íbúar í héraðinu fara eftir.
Stjórnvöld kippa sér ekki upp
við að þar séu framin morð og
eldur borinn að landi keppinautar-
ins, eða öllu heldur ráða lítt við
það. Þeir einu sem lögreglan
ræðst gegn í þessu óstjórnar-
héraði eru ferðamenn. Sagan
segir að lögreglumenn fái skó-
sveina sína til að lauma hassi inn á
ferðamenn til þess eins að geta
gripið þá glóðvolga skömmu síðar.
Í stofu hassbaróns
Við vorum komnir þangað til að
skoða. Bílstjórinn ók inn í næsta
smábæ og bíllinn var varla stopp
þegar að honum sveif skuggaleg-
ur náungi og spurði, eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara, hvort við
værum að leita að hassi. Bílstjór-
inn sagði honum frá erindi okkar
og í kjölfarið bauð hann okkur að
fylgja sér heim á bóndabæinn.
Áður en ég náði að kinka kolli
hafði hann troðið sér í framsætið
– ofan á mig.
Mustafa Sicilian, kallaður Sicili-
an, hét þessi nýi ferðafélagi víst.
Eftir að hafa ekið dágóða stund
upp fjallaveg, ef veg skyldi kalla,
staðnæmdumst við fyrir framan
stærðar villu með enn stærri virkis-
veggjum allt í kring. „Þetta er stað-
urinn,“ sagði Sicilian stoltur, „þarna
býr bróðir minn.“ Hann hleypti okk-
36 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Héra›i› Ketama í Marokkó er me› blómlegustu kannabisræktarsvæ›um
heims. fiar ríkir stjórnleysi og svæ›i› raunar kalla› land hinna löglausu. Egill
Bjarnason bla›ama›ur var á fer› um Ketama í vor og segir frá upplifun sinni.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
82
59
05
/2
00
5
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC
Heil tunga og vandaður frágangur
Ótrúlega léttir! Þyngd 830 g (stærð 42)
Gore Tex vatnsvörn
MFS fóður lagar sig að fætinum
MultigriffVibram veltisóli með fjöðrun
Mjög góður stuðningur við ökklann
Einnig fáanlegir í dömustærðum (gráir)
Verð 22.990 kr.
SCARPA Hekla
Flokkun BC
Dömuskórnir frábæru frá SCARPA
Heil tunga, Goretex, Vibram veltisóli,
góður stuðningur og þægindi
Einnig til í herraútfærslu, Ladakh
Verð 24.990 kr.
Meindl 6.0 Mid GTX
Flokkun AB
Mjúkir og léttir
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Þyngd: 520 g (stærð 42)
Einng til í dömuútfærslu
Verð 15.990 kr.
TNF Bruce Mid
Flokkun A
Ofurstrigaskór!!
Súperléttir gönguskór
í léttari notkun
Nubuk leður og nylon
Til í dömuútfærslu
Verð 11.990 kr.
Við skiptum skónum hjá okkur í flokka eftir því í hvaða notkun þeir eru hugsaðir. A: Fyrir auðvelda göngu og daglega notkun • AB: Fyrir göngu á slóðum og láglendi • B: Fyrir lengri göngur og bakpokaferðalög
Me› hassbændum í landi hinna löglausu
SIKILEYINGURINN ÁSAMT MÓÐUR SINNI Sikileyingurinn fékk nafnbótina eftir að hafa smyglað tveimur tonnum af marijúana frá
Marokkó yfir til Sikileyjar.
MYNDIN DÝRKEYPTA Myndin sem gerði hassbaróninn æfan af reiði og fékk hann til að
halda því fram að við værum útsendarar lögreglunnar sem færu ekki leynt með hrifningu
sína á fáguðum stíl hússins.
UPPSKERAN SMÖKKUÐ Kunningi Sikileyingsins að hnoða hassmola sem hann síðan
blandaði saman við sígarettutóbak.
EGILL BJARNASON
greinarhöfundur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
G
IL
L
B
JA
R
N
AS
O
N