Fréttablaðið - 07.05.2005, Blaðsíða 56
40 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
FH er eins og topplið
í Danmörku
F réttablaðið hitti Siim aðmáli eftir að FH-ingar höfðutryggt sér sigur í árlegum
leik íslandsmeistara Íslands og
Færeyja. Þar lagði FH lið HB 4-1
og tryggði sér þannig Atlantic-bik-
arinn góða. Siim var að vonum
ánægður með að hafa unnið sinn
fyrsta bikar í treyju FH en vænti
þess jafnframt að fleiri mundu
hafa bæst við eftir sumarið.
„Það er alltaf gaman að vinna
titla, jafnvel þó að þeir fáist að-
eins eftir einn leik,“ sagði Siim en
bætti við að hann hefði búist við
mun meiri mótspyrnu af hálfu
færeysku meistaranna.
Kom með kærustunni
Siim kom til landsins ásamt kær-
ustu sinni þann 1. mars síðastlið-
inn og hefur hann að eigin sögn
líkað dvölin í Hafnarfirðinum
afar vel enn sem komið er. „Okkur
hefur liðið mjög vel og nú er
kærastan mín kominn með vinnu
svo að þetta gæti ekki verið
betra,“ segir hann.
Siim segir að það hafi verið
helst fyrir tilstilli framherjans
knáa Allan Borgvardt sem hann
komst í samband við FH, en þeir
höfðu leikið saman um tíma hjá
AGF í Danmörku, liðinu sem
Helgi Sigurðsson spilar með um
þessar mundir. Borgvardt vissi af
Siim, sem var við það að verða
samningslaus hjá félaginu sínu
OB í dönsku úrvalsdeildinni, en
þaðan var hann lánaður á síðustu
leiktíð til Sønderjysk Elitesport í
1. dönsku deildinni.
„Borgvardt sagði mér frá FH,
Íslandi og fótboltanum í landinu
og hann var mjög jákvæður yfir
öllu saman. Hann skoraði á mig að
koma og kíkja á ástæður, sem ég
gerði. Og ég get ekki annað en
sagt að það kom mér mjög á óvart
hversu góður fótbolti og hversu
góðir leikmenn eru hér. Hér í FH
eru margir mjög frambærilegir
knattspyrnumenn,“ segir Siim.
Fyrrum unglingalandsliðsmaður
Siim er tiltölulega þekktur leik-
maður í Danmörku og til að
mynda mun stærra nafn þar í
landi en Allan Borgvardt og
Tommy Nielsen voru nokkurn
tímann. Hann var nokkuð eftir-
sóttur í Danmörku og því kom það
nokkuð á óvart að hann skyldi
taka lið á Íslandi fram yfir allt
annað. Siim hefur leikið þrjá leiki
fyrir U-21 árs landslið Danmerk-
ur auk þess sem hann hefur um-
talsverða reynslu af Evrópu-
keppninni. Hann segir þá stað-
reynd að FH sé að keppa í for-
keppni Meistaradeildar Evrópu
hafa vegið þungt í ákvörðun sinni
að koma til Íslands.
„Liðinu gekk framar vonum í
Evrópukeppninni í fyrra og vakti
árangur FH athygli víða. Ég las til
dæmis um liðið í dönsku blöðun-
um. Það er mjög gott að liðið skuli
reyna við Meistaradeildina í ár og
Evrópukeppni hefur mikið að-
dráttarafl fyrir alla leikmenn. Ef
FH væri ekki á leið í hana hefði ég
líklega ekki komið hingað, svo
einfalt er það,“ segir Siim, sem
þykir mjög fjölhæfur leikmaður.
Honum líkar þó best við að spila á
miðjunni. Hann getur spilað á
báðum köntum og þá lék hann
talsvert í stöðu hægri bakvarðar á
sínum tíma hjá AGF.
Í topp 6 í Danmörku
Spurður um styrkleikamuninn á
íslensku knattspyrnunni og þeirri
dönsku segir Siim að samanburð-
urinn sé eilítið flókinn þar sem
knattspyrnan sem spiluð er í
deildunum sé svo frábrugðin milli
landa. „Það er svolítið erfitt að
bera saman íslensku og dönsku
deildina en danska deildin er ein-
faldlega sterkari. En það eru
nokkur lið hér sem gætu plummað
sig vel í Danmörku og ég held að
þetta FH-lið, ef það spilar eins og
ég veit að það getur, myndi vera
eitt af sex bestu liðunum í dönsku
úrvalsdeildinni.“
Siim segist enn vera að venjast
gervigrasinu sem er mest notað í
undirbúningsleikjunum og því sé
hann ekki í eins góðu formi og
hann hefði viljað. „Ég er vanur
því að spila á raunverulegu grasi í
Danmörku en þetta er allt að
koma. Ég er alltaf að geta hlaupið
meira og meira með hverjum
leik.“
Siim stefnir hátt í sumar og
kveðst stefna ótrauður á að að-
stoða FH við að verja íslands-
meistaratitilinn. „Það var hin
stóra ástæðan fyrir því að ég kom
til FH. Liðið var það besta á Ís-
landi í fyrra og við eigum alveg að
geta verið það einnig í ár.“
vignir@frettabladid.is
STERKUR LEIKMAÐUR Þeir eru ófáir sem spá þvi að Dennis Siim verði stjarnan í Landsbankadeildinni í sumar. Siim hefur leikið vel
með FH á undirbúningstímabilinu og lofar verulega góðu. .
KOMINN Í KRIKANN Siim líst vel á aðstæður í Krikanum.
Lárus Jónsson stoppaði stutt við hjá KR:
Samdi vi› Fjölni fyrir
næsta tímabil
KÖRFUBOLTI Leikstjórnandinn Lárus
Jónsson, sem lék með KR í Inter-
sportdeildinni í körfuknattleik í
vetur, hefur gert samning við úr-
valsdeildarlið Fjölnis og mun
leika með liðinu á næsta keppnis-
tímabili.
Lárus skipti yfir í KR fyrir ári
síðan og staldrar því stutt við í
Vesturbænum. Lárus er uppalinn
Hvergerðingur og lék með Hamri
í fimm keppnistímabil áður en
hann söðlaði um síðasta sumar og
gekk til liðs við KR. Í vetur skor-
aði hann 7,2 stig að meðaltali og
gaf 6 stoðsendingar í leik.
Þá hefur Skallagrímur fengið
liðsstyrk í körfuboltanum en Axel
Kárason, sem leikið hefur með
Tindastóli, hefur ákveðið að leika
með Borgnesingum næsta vetur.
Axel var einn allra besti leikmað-
ur Tindastóls í vetur og því er það
mikill missir fyrir norðanmenn að
missa Axel. Aftur á móti er það
feiknalegur styrkur fyrir lið
Skallagríms að fá Axel í sínar rað-
ir. Skallagrímsmenn hafa einnig
átt í viðræðum við þá Svavar
Birgisson, leikmann Tindastóls,
og Fannar Helgason, leikmann ÍR,
og það er því ljóst að Borgnesing-
ar ætla sér að mæta sterkir til
leiks næsta vetur. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Sá erlendi leikma›ur sem hefur sta›i› sig hva› best
á undirbúningstímabilinu og hefur alla bur›i til fless
a› vera stjarnan í íslenska boltanum er hinn n‡i
danski leikma›ur FH-inga, Dennis Siim. Hann kom
til Íslands fyrir tveim mánu›um og líkar vel fla› sem
hann hefur sé› hjá FH.