Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 60
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Laugardagur
MAÍ
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Formúla 1 á Rúv.
10.55 Upphitun á Skjá einum.
11.25 Chelsea – Charlton á Sýn.
11.35 Chicago Bulls –
Washington Wizards á Sýn.
13.30 Á vellinum með Snorra Má
á Skjá einum.
14.00 Everton – Newcastle á Skjá
einum.
14.20 Bikarmótið í fitness 2005
(konur) á Sýn.
14.50 Meistaradeildin í
handbolta á Sýn. Barcelona gegn
Ciudad Real.
15.50 Íslandsglíman á Rúv.
16.10 Íslandsmótið í handbolta á
Rúv.
16.10 Man. Utd – W.B.A á Skjá
einum.
17.05 World Supercross á Sýn.
18.00 US Champions Tour 2005 á
Sýn.
19.00 Inside the US PGA Tour
2005 á Sýn.
19.50 Spænski boltinn á Sýn.
Betis mætir Sevilla.
22.00 Meistaradeildin í
handbolta á Sýn. Barcelona gegn
Ciudad Real.
01.00 Hnefaleikar á Sýn. Meðal
þeirra sem mætast eru JL Castillo
og Diego Corrales.
Valsstúlkur völtu›u yfir KR-inga
44 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
> Við vorkennum ...
... Hólmgeiri Einarssyni, formanni
handknattleiksdeildar ÍR, sem hefur lagt
mikið á sig til að byggja upp sigurlið en
þarf síðan að horfa á eftir margra ára
starfi nánast gufa
upp á nokkrum
vikum. Allt útlit er
fyrir að ÍR-ingar
muni missa sex
lykilmenn úr
herbúðum sínum.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... FH-ingum sem ætla að rífa upp
handknattleiksstarfið
hjá sér en handbolta-
risinn í Hafnarfirði
hefur legið í roti allt of
lengi. FH-ingar munu
veita Haukum verðuga
keppni næsta vetur en
á það hefur vantað
verulega.
Heyrst hefur...
... að handknattleikslið Þórs muni
tilkynna um ráðningu Rúnars
Sigtryggssonar sem þjálfara karlaliðs
félagsins áður en langt um líður.
Fjölmörg félög vildu fá Rúnar í sínar
raðir en hann ku hafa ákveðið að
fara heim til síns gamla félags.
Ólafur Stefánsson stendur í ströngu um
helgina er hann leikur til úrslita í Meist-
aradeild Evrópu í handbolta með liði
sínu Ciudad Real. Mætir það öðru
spænsku liði, Barcelona, og lauk fyrri
leik liðanna með eins
marks sigri Madríd-
inga. En hvort sem
Ólafur stendur uppi
sem Evrópumeistari
um helgina eða
ekki hefur hann
áður lyft þessum
titli, þá með þýska
liðinu Mag-
deburg, sem
leikur reyndar til
úrslita um
helgina í Evrópukeppni félagsliða.
Þá hefur bróðir Ólafs, Jón Arnór, gert
það gott með rússneska liðinu Dynamo
St. Pétursborg og fagnaði hann um
daginn Evrópumeistaratitli með félag-
inu. Ólafur sá nú ekki leikinn en árang-
ur Jóns Arnórs hefur ekki framhjá hon-
um í vetur. Þá er manni spurn hvort
þriðji bróðirinn, Eggert, þurfi ekki að
vinna sér inn Evrópumeistaratitil í þriðju
íþróttinni, knattspyrnu. Hann leikur með
Fram, sem þykir að vísu ekki stórt núm-
er á evrópska vísu frekar en önnur ís-
lensk félagslið.
„Eggert þarf að komast að hjá
stórliði í fótboltanum, það má
ekki skilja hann svona út
undan,“ segir Ólafur í
samtali við Fréttablaðið. „Hann
hefur áður verið við dyrastafinn en
meiðsli hafa komið í veg fyrir að hann
skrifi undir langtímasamning. Meiðsla-
lausan tel ég hann vera einn besta fót-
boltamann sem við eigum. Ef bakið er
ekki að angra hann tel ég hann eiga
fullt erindi í þessa gaura sem eru að
spila hjá bestu félögunum – kannski
ekki Eið Smára, en flesta aðra.“
Jón Arnór er greinilega sama sinnis en
þegar hann var spurður á síðum Frétta-
blaðsins fyrir skömmu hvor
væri betri, hann eða Ólafur
bróðir, svaraði hann um
hæl: „Eggert er bestur“.
Úrslitaleikur deildabikars kvenna reyndist vera leikur kattarins a› músinni. Íslandsmeistarar Vals gjör-
sigru›u KR-inga sem voru án margra af sínum bestu leikmönnum. Lokatölur voru 6–1 og skora›i Nína
Ósk Kristinsdóttir flrennu.
JÓN ARNÓR OG ÓLAFUR ERU EVRÓPUMEISTARAR: HVAÐ GERIR ÞRIÐJI BRÓÐIRINN?
Eggert flarf a› komast a› hjá stórli›i
KNATTSPYRNA Það var svo sem við
því að búast að KR-ingar myndu
ekki reynast mikil fyrirstaða
fyrir Íslandsmeistarana. Þær
voru án margra af sínum bestu
leikmönnum sem eru nú á loka-
sprettinum sínum í háskólanámi
erlendis. Þá eru einnig væntan-
legir í liðið erlendir leikmenn sem
ekki voru með í gær. Valsarar
voru hins vegar með sinn hóp
nokkuð fullskipaðan, það vantaði
helst Margréti Láru Viðarsdóttur
sem er nú að stíga upp úr meiðsl-
um.
Það voru reyndar KR-stúlkur
sem áttu fyrsta færi leiksins
þegar Hrefna Huld Jóhannesdótt-
ir fékk fínt skallafæri strax á 5.
mínútu. Lítið annað markvert
gerðist þó svo að bæði lið reyndu
sitt besta. Það var svo Nína Ósk
Kristinsdóttir sem kom sínum
mönnum á bragðið er hún skoraði
í autt markið eftir frábæran und-
irbúning Rutar Bjarnadóttur. Hún
hóf einnig sóknina sem skóp annað
markið og aftur var það Nína Ósk
sem skoraði af afar stuttu færi.
Það stafaði afar lítil hætta af
KR-ingum í fyrri hálfleik og varla
að þær brutu á Valsmönnum, slík
var prúðmennskan og skortur á
baráttu. Það rættist þó aðeins úr
því í síðari hálfleik þó svo að ein-
hver bið yrði eftir mörkunum.
Dóra María Lárusdóttir bætti í
fyrir Valsmenn á 63. mínútu, skor-
aði gott mark eftir frábæra
stungusendingu nöfnu sinnar
Stefánsdóttur. Hrefna Huld náði
þó að klóra í bakkann nokkru síð-
ar er hún skoraði af stuttu færi en
strax í næstu sókn skoraði Vals-
stúlkan Laufey Ólafsdóttir með
frábæru skoti. Nína Ósk full-
komnaði svo þrennuna og lokaorð-
ið átti varnarmaðurinn Málfríður
Sigurðardóttir sem hafði fært sig
fram á miðjuna eftir að Guðrún
Þorbjörnsdóttir kom inn á í henn-
ar stöðu.
„Við erum nánast með fullan
hóp á meðan þær eru án margra
fastamanna. Þetta er ekki það sem
koma skal í sumar,“ sagði Elísabet
Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, eftir
leikinn. „Þennan leik kláruðum
við ágætlega en það er nú samt
margt sem má fínpússa fyrir
átökin í sumar, eins og búast má
við á þessum árstíma.“
Leikið var á Stjörnuvelli á
gervigrasi sem virtist fara ágæt-
lega í leikmenn. „Völlurinn er fínn
og líklega er þetta það sem er lík-
ast grasinu af því sem er til. Ég
hefði nú frekar viljað leika í Egils-
höllinni til að fá fleiri áhorfendur
en það var ekki boðið upp á það
núna,“ bætti Elísabet við. Þó
nokkrir áhorfendur lögðu leið
sína í Garðabæinn í gær, þrátt
fyrir nepjuna, og ekki óvarlega
áætlað að vel á annað hundrað
manns hafi verið á pöllunum
þegar Íris Andrésdóttir, fyrirliði
Vals, tók við bikarnum góða.
eirikurst@frettabladid.is
NBA-körfuboltinn:
Kve›ur Mill-
er í kvöld?
KÖRFUBOLTI Lið Boston Celtics og
Indiana Pacers eigast við í hrein-
um úrslitaleik í fyrstu umferð úr-
slitakeppni NBA í nótt. Einvígi
liðanna hefur verið ótrúlega
sveiflukennt og spennandi og þó
að oddaleikurinn fari fram á
heimavelli Boston í kvöld er engin
leið að spá fyrir um úrslit hans,
því margir leikir í seríunni hafa
unnist á útivelli.
Leikurinn er ekki síður merki-
legur fyrir þær sakir að þetta
gæti orðið síðasti leikur Reggie
Miller í NBA-deildinni, ef Indiana
tapar honum, því hann gaf það út
fyrir nokkrum mánuðum að þetta
yrði hans síðasta leiktíð í deild-
inni.
Miller hefur um árabil skemmt
áhorfendum með tilþrifum sínum
í úrslitakeppninni og hefur oftar
en ekki farið á kostum í leikjum
sem þessum. Sá gamli vill eflaust
ekki tapa sínum síðasta leik á ferl-
inum og það í Boston, svo fróðlegt
verður að sjá hvernig hann stend-
ur sig í kvöld. Leikurinn verður í
beinni útsendingu á sjónvarps-
stöðinni Sýn í kvöld og hefst út-
sending klukkan 23.00. - bb
FYRIRLIÐINN MEÐ BIKARINN Íris Andrésdóttir, fyrirliði Valsstúlkna, heldur hér bikarnum á lofti sem liðið fékk eftir frækinn 6–1 sigur á
KR-ingum í úrslitum deildabikarkeppni kvenna. Fréttablaðið/Heiða
HANDBOLTI Leikur Ciudad Real og
Barcelona er án efa einn af stór-
leikjum ársins en þar mætast
spænsku risarnir í úrslitum
Meistaradeildar Evrópu. Barce-
lona er auk þess sigursælasta lið
Evrópu með 11 Evrópumeist-
aratitla að baki en Ólafur
Stefánsson og félagar hans í Ciu-
dad Real vilja síst fegra þá sögu.
„Ég gekk til liðs við Ciudad Real
til að vera hluti af nýrri og enn
stærri sögu,“ segir Ólafur en
hann liðsmenn hans unnu fyrri
leikinn, 29–28, eftir að kastað frá
sér tækifæri til að vinna leikinn
með stærri mun. „Við misstum
dampinn og gerðum fullt af mis-
tökum. Þrátt fyrir það unnum
við leikinn og getum bætt okkur
mikið í dag.“
Leikið verður í Palau
Blaugrana-höllinni sem er eitt
stærsta heimavallarvígi í hand-
boltaheiminum. „Við unnum þá
síðast þegar við lékum í
Barcelona og því eru þeir ekk-
ert allt of öruggir með sig nú,“
segir Ólafur.
Íslendingaslagur í Þýskalandi
Í Evrópukeppni félagsliða
mætast Íslendingaliðin Magde-
burg og Essen en fyrri leik
liðanna lauk með 30–22 sigri
Alfreðs Gíslasonar og læri-
sveina hans í Magdeburg. Einn
af þeim er línumaðurinn sterki,
Sigfús Sigurðsson. Með Essen
leikur Guðjón Valur Sigurðsson.
Hann segir það vissulega slæmt
að hafa tapað fyrri leiknum svo
stórt, með átta marka mun, en
að sú hindrun sé ekki óyfirstíg-
anleg. „Við erum hvergi nærri
hættir og ætla ég mér að sækja
titilinn hingað til Essen.“
Alfreð hefur áður unnið
þessa keppni, það var árið 2001.
Þá lék Ólafur Stefánsson undir
hans stjórn í Magdeburg.
Leikirnir eru báðir á dagskrá
í dag og verður leikur Ciudad
Real og Barcelona sýndur beint
á Sýn og hefst útsending kl.
14.50. -esá
Fjórir Íslendingar í þremur liðum í úrslitaleikjum Evrópukeppnanna í handknattleik:
Íslenskir Evrópumeistarar fæ›ast í dag
SIGFÚS SIGURÐSSON Stendur í ströngu ásamt öðrum íslenskum handboltamönnum í
dag. Fréttablaðið/Pjetur Sigurðsson