Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 68

Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 68
BÝFLUGU- KJÓLL Þessi er úr silki og flaueli en hannaður af Chez Ninon. Jackie klædd- ist þessum kjól í Hvíta húsinu í september 1961. MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN Kjólasumar í bíger› Þessi efnismikla og víða tíska sem nú ræður ríkjum er meira en lít- ið heillandi og kærkomin hvíld frá níðþröngum pólíesterbuxum og þröngum bolum. Þessir víðu tískustraumar eru líka æði fallegir svo ekki sé meira sagt. Ég er algerlega komin með nóg af níðþröngum bolum úr gerviefnum sem láta mestu mjónur líta út fyrir að vera þykkholda. Það er nefnilega yfirleitt ekkert að vaxtarlaginu, það eru fötin sem eru óklæðileg, ekki satt? Með þennan frasa að vopni verður mun auðveldara að velja sér fatnað við hæfi og finna sinn stíl. Það kemur einhvern tímann að þeim tímapunkti að konur fatta þetta og finna út hvað klæðir þær best. Víðu pilsin og mussurnar eru að sjálfsögðu misklæðileg en þá er málið að reyna að finna eitt- hvað við hæfi. Ef viðkomandi er með þykk læri er alveg ógerning- ur að láta skyrtuna enda þar sem lærin eru breiðust, jafnvel þótt belti sé sett örlítið fyrir neðan mittislínu. Lykilatriði fyrir því að indverskar mussur og flíkur í þeim dúr séu klæði- legar er að þau séu úr þunnum efnum. Svo er alltaf gott að fara eftir þeirri reglu að vera í aðsniðnu að neðan ef efri parturinn er víður og öfugt. Það skapar hið full- komna jafnvægi. Í sumartískunni ber mikið á litríkum kjólum með brjáluðum mynstrum. Sumir eru rósótt- ir en aðrir bera stór grafísk mynstur. Þessir kjólar eru ferskir og flottir og ég held að ég geti alveg full- yrt að við verðum að eiga einn slikan í fataskápn- um. Það er líka svo gott að eiga svona flíkur sem maður getur bæði verið í spari og hversdags. Við hátíðleg tækifæri bætir maður við skarti og ein- hverjum fylgihlutum ásamt dömulegum hælaskóm en í vinnunni er maður nokkur vel settur í leður- stígvélum við. Aðalkosturinn við þessa kjóla er þó hvað þeir skapa litlar tískukrísur. Ekki þarf að eyða óratíma í að finna topp við pilsið og þar af leiðandi jakka sem passar við. Þú skellir þér bara í kjólinn og svo ekki söguna meir. Málið er dautt. Í versluninni Spútník er gott úrval af þessum skemmtilegu kjólum en þá má líka finna í Kolaport- inu, Kultur og Galleri Sautján. Hátískuhönnuðir á borð við Paul Smith, Stellu McCartney og Moschino sýndu þá í vorlínunni sinni. Þetta ætti því að vera nokkuð skothelt. 52 7. maí 2005 LAUGARDAGUR Jackie Kennedy Onassis (1929-1994) fyrrum forsetafrú Banda-ríkjanna, var einn af fyrstu „trendsetterum“ í heiminum. Um leið og eiginmaður hennar, John F. Kenn- edy, tók við forsetaembætti Bandaríkj- anna 1961 fór kastljósið að beinast að henni. Í fyrstu vissi hún ekki hvernig hún ætti að taka þessu en athyglin vandist furðu fljótt og áður en hún vissi af var hún farin að kunna vel við sig í sviðsljósinu. Hún vissi líka hvern- ig fjölmiðlarnir unnu því hún starfaði sjálf sem ljósmyndari á dagblaði áður en hún varð forsetafrú. Jackie var mikill fagurkeri og það átti ekki bara við um falleg föt heldur innanstokks- muni og listaverk. Áhugi hennar á fatnaði var ekki langsóttur því móðir hennar hafði smekk fyrir vönduðum og fínum fötum og afi hennar var ávallt flottur í tauinu. Um leið og hún varð forsetafrú lét hún senda eftir vini sínum, Oleg Cassini, sem var ráðinn sem hirðfatahönnuður Hvíta hússins. Oleg var rússneskur gyðingur sem alist hafði upp í Flórens á Ítalíu en flutt til Bandaríkjanna 1936. Jackie fannst hann ekki bara góð- ur hönnuður heldur dáði hún evr- ópskt fas hans. Hún gerði sér grein fyrir að hún væri fyrir- mynd bandarískra kvenna. Mari- lyn Monroe, Grace Kelly og Gene Tierney voru einnig miklir aðdáendur hans. Cassini lagði ríka áherslu á góð efni og flestir kjólarnir sem hann hannaði á Jackie voru úr 100% silki eða öðrum fínum efnum. Hún kunni líka að meta hönn- un Hubert de Givenchy og Chanel- dragtir voru nánast einkennisbúning- ur hennar. Hún var iðulega á penum skóm með lágum hæl og í kápum í björtum litum. Hún lagði mikið upp úr því að fatnaður hennar væri vel snið- inn og færi henni sem best. Fataskáp- urinn var hugsaður í þaula og það kom sjaldan eða aldrei fyrir að hún klædd- ist á óviðeigandi hátt. Þegar fataskáp- ur Jackie er skoðaður nánar kemur í ljós að tískustraumar dagsins í dag eru í hennar anda með öllum stuttu jökkunum, kápunum og pilsunum. Í dag er tískan poppaðri en flott er að blanda jökkum í anda Jackie við galla- buxur eða hippaleg pils. Hattarnir eru það eina sem er á skjön við íslenska götutísku, en það er líklega bara vegna veðurfarsins á klakanum. martamaria@frettabladid.is Vestadýrð Vesti eru eitt af því sem allar konur verða að eiga í sumar. Þau eru ekki bara smart heldur stjarnfræðilega klæðileg. Þau fara vel við gallabuxur og víðu þjóðernispilsin sem eru svo áberandi núna. Fal- legt er að vera í skyrtu innan undir vestinu en þær geta bæði verið hippalegar og klassískar. Vestin eru þess eðli að það er alger óþarfi að eiga fleiri en eitt svo framarlega sem þetta eina er að gera góða hluti. Það er líka lenska að allar flík- ur verði að passa saman. Núna er málið að brjóta upp hefðina og passa sig á því að vera ekki „of“ stíliseraður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N O R D IC PH O TO S / G ET TY I M AG ES BLEIKUR kjóll með indversku þema. Kjóllinn er úr silki og siffoni og hannaður af Givenchy árið 1963. JACKIE KENNEDY var ein af fyrstu „trendsetturunum“ í Ameríku en stíll hennar breiddist yfir heimsbyggðina á örstuttum tíma. JACKIE klæddist þessari bleiku kápu og var með hattinn í stíl þegar hún heimsótti Nýju-Delhí í Ind- landi í mars 1962. Yfir- höfnin er frá Oleg Cassini. Þegar hún var gagnrýnd fyrir að láta sjá sig í svona dýrum fatnaði í þessu fá- tæka landi bað hún blaðafulltrúann sinn að segja að fötin væru frá flóamarkaði Ritz-hótelsins. KÖFLÓTT DRAGT úr ullar- efni úr smiðju Bob Bugn- and. Jackie klæddist dragt- inni á árunum 1959-60. FORSETAFRÚIN átti veglegt hattasafn.GLÆSILEIKINN uppmálaður. Svarti kjóllinn er hannaður af Oleg Cassini en hún klæddist honum í Vatíkaninu í mars 1962. Kjólarnir hennar Jackie FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.