Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 69
LAUGARDAGUR 7. maí 2005 53
Sóley starfaði lengi sem stílisti, bæði
hérlendis og í Svíþjóð og hefur gríðar-
legan tískuáhuga. Í Svíþjóð vann hún
við að stílisera tónlistarmyndbönd og
fleira og kynntist fullt af frægu fólki í
gegnum starfið. Núna kennir hún Ís-
lendingum réttu handtökin í förðun.
Spáir þú mikið í tískuna? Alveg rosa-
lega, ég horfi mikið á Fashion Tv og
tónlistarstöðina MTV , fletti tískublöð-
um, skoða tísku á netinu og horfi á
fólkið í kringum mig. Ég fæ mikinn inn-
blástur af því að fylgjast með nemend-
um mínum en þau skoða mikið af tísku
og eru mjög meðvituð.
Uppáhaldshönnuðir? Þeir eru svo
margir: Dolce & Gabbana, Armani og
Donna Karan eru í uppáhaldi en um
leið hrífst ég af pælingum H&M keðj-
unnar sem apar eftir hátískuhönnun og
gerir venjulegum konum kleift að vera
flottar og smart.
Fallegustu litirnir? Ég klæðist yfirleitt
svörtu og er mikið í gallabuxum. Ég er
megahrifin af brúnu og ferskjulituðu, en
það er kannski bara af því að það fer
mér svo vel.
Hverju ertu mest svag fyrir? Ég er skó-
og skartsjúk.Kaupi frekar dýrt skart en
eitthvert skran. Lára gullsmiður á Skóla-
vörðustíg býr til mjög fallega hluti.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég
keypti mér fullan poka af joggingfötum
í versluninni Zöru í Smáralind. Ég var að
byrja hjá einkaþjálfara og þar sem ég
þoli ekki að vera alltaf í sömu fötunum.
Hvað finnst þér mest sjarmerandi í
vor-og sumartískunni? Það er þessi
frjálslegi stíll sem gerir það að verkum
að konur þurfa ekki að vera í brjáluðum
pinnahælum til að vera smart. Það er
hægt að vera í afslöppuðum fötum en
vera samt rosalega kúl.
Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir
sumarið? Ég er að reyna að halda í
budduna því ég er að fara til Stokk-
hólms í sumar. Þar ætla ég að versla í
H&M, Armani búðinni og kíkja á
skemmtilega fatahönnuði sem eru með
verslanir þar í borg.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði? Það er misjafnt. Það getur
verið frá 30 upp í 50 þúsund.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Náttbuxna og gallabuxna.
Uppáhaldsflík? Fyrir fimm árum keypti
ég svarta samfellu frá Dolce &
Gabbana. Hún er alltaf í jafn miklu upp-
áhaldi því hún er falleg undir gegnsæja
boli og svo virkar hún alveg undir jakka.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Ég myndi fara til New York eða
Los Angeles.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt
þér? Grár Armani-jakki sem er úr
þunnu efni með strandkraga. Þeg-
ar ég bjó í Stokkhólmi bjó ég rétt
hjá Armani-versluninni og varð fyrir
miklum áhrifum. Þessi jakki er ákaflega
fallegur á herðatréi en hann virkar eng-
an veginn þegar ég er í honum. Hann
flokkast því undir hin verstu kaup.
SMEKKURINN SÓLEY ÁSTUDÓTTIR FÖRÐUNARMEISTARI
Glysgjarn töffari
Japönsk kirsuber
Japanski hönnuðurinn Takashi Murakami á
heiðurinn af þessu dásamlega kirsuberja-
mynstri sem prýðir nýjustu línu Louis Vuitton.
Hann hefur getið sér gott orð sem fjöllista-
maður í heimalandi sínu og víða um heim.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hannar
fyrir Louis Vuitton en Takashi hefur hannað
mynstur ásamt hönnuði Marc Jacobs. Tösk-
urnar eru æði fallegar enda þolir monografið vel að fá smá upplyftingu og svo
eru kirsuber líka svo góð á bragðið. Kirsuberin eiga líka vel heima með öllum
hinum ávöxtunum sem prýða margar flíkurnar þetta misserið. Töskurnar eru
bæði fallegar við sparikjóla og gallabuxur. Einu vonbrigðin eru að enn er ekki
komin Louis Vuitton-verslun til Íslands og þarf landinn að heimsækja önnur
lönd til að komast í tæri við töskurnar.
JAPANSKI LISTAMAÐURINN Takashi Murakami veit hvað hann syngur.