Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
SOLKATT ísskeið
390,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Lautarferð
á næsta leiti
IK
E
28
22
0
0
5.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
Draumasumar
195,-
SOMMAR frostpinnamót,
ýmsir litir, 6 stk. í pakka
SOMMAR flugnaspaði
2 stk. ýmsir litir
95,-
SOMMAR
nestispokar
24x23 sm 10 stk.
ýmsir litir
150,-
HALVÖ tjald með 4 hliðum
sem hægt er að nota
eftir þörfum
Ø400 H328 sm
12.900,-
SOMMAR
sogrör 200 stk.
95,-
IKEA/PS BETSÖ
grill Ø35 H50 sm
4.900,-
SOMMAR 3 dósir í setti
Ø18 H19 sm
690,-
SOMMAR kubbakerti Ø10 H7 sm
495,-
SOMMAR
ferðakollur
490,-
SOMMAR strandpoki
95,-
BRYNET
skurðarbretti m/hníf
20x16 sm
390,-
149,-
Pylsa og gos
Mannréttindi
Upp er komin sú athyglisverðastaða hér á landi að á sama tíma
og stjórnvöld leggja drög að því að
gefa löggunni leyfi til þess að hlera
símtöl á Íslandi í stórum stíl og að
skrá símanotkun og netnotkun þegn-
anna, til þess að auðvelda persónu-
njósnir, að þá er skrúfað fyrir fram-
lög hins opinbera til Mannréttinda-
skrifstofu Íslands. Það sér það auðvit-
að hver maður að það getur komið sér
afar illa fyrir stjórnvöld þegar stórar
símahlerunaraðgerðir eiga sér stað að
eitthvað mannréttindalið sé að ybba
gogg.
AF ráðherra utanríkismála er það að
skilja að skrúfa beri fyrir framlög til
skrifstofunnar ekki síst vegna þess að
aldrei hafi komið almennilega fram
hvernig skrifstofan hafi bætt mann-
réttindi hér á landi. Sjálfsagt átti
þetta að vera skemmtital hjá ráðherr-
anum, en neyðarlegt samt. Allir vita
að það eru einkum stjórnvöld sem
bera ábyrgð á því hvort mannréttindi
séu brotin eða ekki, en ekki mannrétt-
indaskrifstofur. Þannig að ef mann-
réttindi hafa ekki batnað, eins og ráð-
herrann benti réttilega á, að þá er það
auðvitað verulegur misskilningur að
halda að það sé skrifstofunni að
kenna en ekki honum sjálfum.
ÞAÐ verður til dæmis ekki annað séð
en að íslenska ríkið sé sífellt að tapa
málum fyrir Mannréttindadómstóli
Evrópu. Og áðurnefndur ráðherra
stóð reyndar fyrir því á sínum tíma
að banna skáeygðum að koma hingað
til lands um stundarsakir á meðan
hann snæddi hátíðarkvöldverð með
kínverskum mannréttindabrjóti sem
söng víst O sole mio svo falskt í
Perlunni að virðulegir erindrekar
svitnuðu á efri vörinni. Á meðan sat
löggan yfir gulum, svarthærðum og
óvelkomnum samlöndum hans lokuð-
um inni í skóla á Suðurnesjum.
ÚT í þetta fetti jú mannréttindaskrif-
stofan fingur ef ég man rétt. Og nú er
henni launuð sú athugasemd og fleiri
af sama toga – sem miðuðu einmitt að
því að bæta mannréttindi – með því
að skrúfa fyrir fjárframlögin. Á sama
tíma segja menn að betur fari á því
að einhverjir aðrir kosti þessa skrif-
stofu heldur en sjórnvöld, sem eiga jú
frekar að brjóta mannréttindi heldur
en stuðla að þeim. Verður þá ekki
Mannréttindaskrifstofan í boði Björg-
úlfsfeðga og Baugs eins og allt ann-
að? Og sniðugir sjálfstæðismenn
munu tala um Baugsréttindi.
ÞAU orð ráðherrans um að ekki
verði séð að mannréttindi hafi batnað
hér á landi og því beri að skrúfa fyrir
fjárframlögin eru auðvitað ansi
merkileg. Þetta er svona álíka og að
segja að vegna þess að utanríkismál
hafi ekki batnað – því það er jú stríð í
Írak og læti, allt í volli í útlöndum –
að þá beri að leggja niður utanríkis-
ráðuneytið. Það er nefnilega svo
merkilegt, að í allri þessari
umræðu hefur ekkert komið fram um
það að utanríkisráðherra hafi bætt ut-
anríkismál. Og svona má halda áfram,
koll af kolli, þar til skrúfað verður
fyrir fjárframlög til alls, nema lögg-
unnar sem hlerar símann.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR