Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 2
2 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Eystrasaltslönd:
Pútín hafnar i›run
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti sagði í gær að engar
líkur væru á því að rússnesk
stjórnvöld myndu senda frá sér
nýja yfirlýsingu um iðrun vegna
leynisamnings Hitlers og Stalíns
frá árinu 1939, sem leiddi til inn-
limunar Eystrasaltslandanna í
Sovétríkin. Vísaði hann til sam-
þykktar Sovétþingsins frá árinu
1989, þar sem segir að leynisamn-
ingurinn við Hitler hafi verið
„persónuleg ákvörðun Stalíns“ og
í mótsögn við það sem Sovétríkin
stóðu fyrir. Engar frekari ályktan-
ir yrðu gerðar um þetta atriði.
Pútín sagði jafnframt að
stjórnvöld í Moskvu væru reiðu-
búin að undirrita landamæra-
samninga við Eistland og Lettland
en forsenda fyrir því væri að
ráðamenn í þessum löndum
„þroskuðust“ og þeir yrðu að læra
að setja ekki „heimskuleg“ skil-
yrði fyrir slíkum samningum.
Þessi hörðu orð Rússlandsfor-
seta endurspegla spennuna sem
ríkir nú í samskiptum landanna.
Forseti Lettlands var eini leiðtogi
Eystrasaltslandanna þriggja sem
þáði boð Pútíns um að vera við-
staddur hátíðahöldin í Moskvu í
tilefni af 60 ára stríðslokaafmæl-
inu á mánudag. Forsetar Eistlands
og Litháens sátu heima í mót-
mælaskyni við þá fullyrðingu
Pútíns að Rauði herinn hafi „frels-
að“ lönd þeirra. ■
Íslendingar skulda allt að þrefalda þjóðarframleiðslu sína:
Skuldum vafin fljó›
ELDHÚSDAGSUMRÆÐUR Ögmundur
Jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, sagði í eldhúsdagsum-
ræðum á Alþingi í gærkvöldi að
viðskiptahalli þjóðarinnar næmi
nú um tíu prósentum af þjóðar-
tekjum. Slíkt gæti ekki gengið
til eilífðarnóns. Skuldir hefðu
vaxið verulega og næmu nú tvö-
faldri til þrefaldri vergri þjóð-
arframleiðslu.
Ögmundur gagnrýndi áform
stjórnvalda um að sækjast eftir
sæti í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Kostnaðurinn næmi
600 til 1.000 milljónum króna.
Hann lagði til að þeim fjármun-
um yrði varið til rannsókna á
hafsbotninum í alþjóðlegu sam-
hengi.
Össur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar,
gagnrýndi stjórnarflokkana
fyrir tilraunir til þess að hand-
stýra frelsinu og vaxandi vald-
beitingu sem miðaði að því að
herða helmingatök stjórnar-
flokkana.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra gerði meðal ann-
ars vöxt fyrirtækja að umtals-
efni. Við yrðum sjálf að búa svo
um hnútana að íslensku stór-
fyrirtækin sæju sér áfram hag í
að starfa hér á landi.
Fjöldi frumvarpa verður af-
greiddur á Alþingi í dag, þeirra
á meðal frumvarp um sam-
keppnismál. Þinghaldi vetrarins
lýkur í dag.
- jh
Me›lagsgrei›endur
skulda 10 milljar›a
fiingmenn segja me›lagsgrei›endur lenda í vítahring skulda sem nau›synlegt
sé a› rjúfa. Meira en helmingur tólf flúsund me›lagsgrei›enda eru í vanskil-
um, en flau mi›ast vi› skuld sem er hærri en 100 flúsund krónur.
BARNSMEÐLÖG Foreldrar sem
greiða meðlög með börnum
sínum voru á þrettánda þúsund
um síðustu áramót. Meira en
helmingur þeirra var þá í vanskil-
um við Innheimtustofnun sveitar-
félaga, liðlega 53 prósent. Þetta
kom fram í svari Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra við
fyrirspurn Helga Hjörvar og
fleiri Samfylkingarþingmanna á
alþingi í gær. Meira en fjögur
þúsund foreldrar skulda meðlög
með nærri níu þúsund börnum
yngri en átján ára. Fram kom í
máli ráðherra að mikill meiri-
hluta meðlaga barna eldri en
átján ára væri í vanskilum. Sam-
tals nema vanskilaskuldir vegna
barnsmeðlaga 10,3 milljörðum
króna.
Umbætur voru gerðar á inn-
heimtu barnsmeðlaga árið 1996
og leyfist þeim sem lenda í van-
skilum að semja um lægri
greiðslur. Um fjórir af hverjum
tíu þeirra sem lenda í vanskilum
nýta sér þennan möguleika til að
grynnka á skuldum sínum.
Helgi Hjörvar fyrirspyrjandi
sagði að skuldugir meðlagsgreið-
endur væru í vítahring. Tekjur
þeirra færu í skattskuldir og
meðlög og þeir leiddust þar af
leiðandi út í svarta vinnu.
Pétur Blöndal, Sjálfstæðis-
flokki, sagði að göt væru á vel-
ferðarkerfinu og tók dæmi af
atvinnulausum föður sem greiddi
meðlög með þremur börnum.
Hann fengi fjögur þúsund krónur
með hverju barni en borgaði
um16 þúsund krónur í meðlag
með hverju þeirra. Þannig færi
helmingur 90 þúsund króna
atvinnuleysisbóta í meðlög.
Katrín Júlíusdóttir fyrirspyrj-
andi kvaðst forviða á því að meira
en helmingur meðlagsgreiðenda
væri í vanskilum. Undir það tók
Helgi Hjörvar. „Aðgerðir hafa
ekki skilað meiru en svo að það er
algengara en ekki að vera í van-
skilum,“ sagði Helgi. Árni Magn-
ússon félagsmálaráðherra kvað
ekki ætlunina að ráðast í aðgerðir
nú en benti á að 40 prósent þeirra
sem í vanskilum væru nýttu sér
möguleika til að grynnka á skuld-
um sínum. Úrræðin frá 1996
hefðu skilað árangri.
johannh@frettabladid.is
Vinnuvikan í Evrópu:
Vikan styst
í Noregi
NOREGUR Norðmenn vinna manna
minnst í Evrópu, samkvæmt nýrri
vinnumarkaðskönnun Evrópu-
sambandsins. Lettar vinna hins
vegar mest allra. Íslendingar
voru ekki með í könnuninni en
væru í þriðja sæti miðað við tölu
Hagstofunnar fyrir síðasta ár.
Norðmenn vinna að meðaltali
38,6 tíma á viku, en Lettar 43,3.
Vinnuvika Breta, sem vinna næst-
mest, er að meðaltali 43,1 klukku-
stund en Íslendingar kæmu í
þriðja sæti með 42 klukkustundir.
Meðaltal 25 Evrópusambands-
landa er 40,2 klukkustundir. ■
Helförin gegn gyðingum:
Minnismerki
vígt í Berlín
ÞÝSKALAND, AP Nýtt minnismerki
um helför nasista gegn gyðingum
var vígt í Berlín í gær. Tilkoma
þessa risastóra minnismerkis,
sem er samsett úr yfir 2.700 mis-
stórum steypublokkum, hefur átt
sér langan aðdraganda en það var
nú loks opnað almenningi við há-
tíðlega athöfn.
Tilgangurinn með minnismerk-
inu er að Þjóðverjar minnist með
varanlegum og táknrænum hætti
– á besta stað í þýsku höfuðborg-
inni, steinsnar frá þinghúsinu og
Brandenborgarhliðinu – þessa
mesta glæps í sögu þjóðarinnar,
útrýmingarherferðarinnar gegn
gyðingum í síðari heimsstyrjöld
sem varð allt að sex milljónum
evrópskra gyðinga að aldurtila. ■
SPURNING DAGSINS
Skúli, var fletta ekki óttalegt
píp?
„Verra þó ef háleit markmið stjórnvalda
um notkun á umhverfisvænum orkugjöf-
um reynast tómt píp.“
Skúli H. Skúlason er formaður ferðaklúbbsins
4x4. Félagar í klúbbnum voru meðal þeirra sem
þeyttu bílhorn sín fyrir utan Alþingi til að mót-
mæla verði á dísilolíu.
MEÐLÖG ERU GREIDD MEÐ MEIRA EN TUTTUGU ÞÚSUND BÖRNUM Um 53 prósent af tólf
þúsund greiðendum eru í vanskilum með barnsmeðlögin.
Síbrotamaður dæmdur:
Braust inn
fyrir efnum
DÓMSMÁL Nítján ára síbrotamaður
var í gær dæmdur í tólf mánaða
skilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir að hafa
haft undir höndum rúm ellefu
grömm af amfetamíni auk eilítils
af tóbaksblönduðum kannabisefn-
um. Maðurinn braust einnig inn í
bíla og íbúðir og hafði þaðan á
brott með sér ýmis verðmæti.
Fyrir lá skilyrðislaus játning af
hálfu ákærða auk vitnisburðar um
að hann hafi nú leitað sér aðstoðar
vegna fíkniefnavanda og sé kom-
inn með vinnu. Í ljósi þessa þótti
rétt að skilorðsbinda dóminn. - oá
LEIÐTOGAR EYSTRASALTSÞJÓÐA „ÞROSK-
IST“ Vladimír Pútín Rússlandsforseti á
blaðamannafundi í Moskvu í gær. Hann
vandaði þar ráðamönnum Eistlands og
Lettlands ekki kveðjurnar.
M
YN
D
/A
P
LITIÐ TIL FORTÍÐAR Horst Köhler, forseti
Þýskalands, skoðar nýja minnismerkið eftir
vígslu þess í gær.
Samskip styrkja HÍ:
Kvikmynda-
fræ›anám
HÁSKÓLINN Samskip og Háskóli Ís-
lands hafa undirritað samstarfs-
samning um fjármögnun á nýju
námi í kvikmyndafræðum við
Hugvísindadeild Háskóla Íslands.
Kennsla á að hefjast í haust í
sem aukagrein til 30 eininga og
ætla Samskip á næsta ári að
styrkja háskólann með 3,6 millj-
óna króna framlagi, sem nemur
launakostnaði fyrir einn kennara í
greininni.
Nokkur námskeið um kvik-
myndir hafa verið kennd við skól-
ann undanfarin ár og er hægt að
byggja á þeim að nokkru leyti.
- oá
LÖGREGLUFRÉTTIR
SINUBRUNI Í BYGGÐ Eldur kom í
gær upp í sinu á opnu svæði milli
Byggðavegs og Klettastígs á
Akureyri. Eldurinn kviknaði að
sögn lögreglu þegar íbúi í nálægu
húsi var að snyrta sinu í kringum
kartöflugarð. Engin hús voru þó í
hættu og greiðlega gekk að
slökkva eldinn.
ÁGÚST FÉKK FLEST ATKVÆÐI
Ágúst Ólafsson, fyrrum frétta-
maður og núverandi starfsmaður
Athygli, fékk þrjú atkvæði á
fundi Útvarpsráðs í gær í stöðu
forstöðumanns RÚV á Austur-
landi. Edda Óttarsdóttir fékk eitt
atkvæði. Fulltrúar Samfylkingar
sátu hjá. Markús Örn Antonsson
er erlendis, en búist er við að
hann muni skipa Ágúst í stöðuna
þegar hann snýr aftur heim.
ÖGMUNDUR JÓNASSON, ÞINGMAÐUR VG
Telur heppilegt að verja 600 milljónum í
rannsóknir á hafsbotni frekar en að kosta
setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
ÚTVARSRÁÐ