Fréttablaðið - 11.05.2005, Qupperneq 26
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
HB Grandi ræður yfir mestum aflaheimildum á Ís-
landsmiðum samkvæmt nýjustu tölum frá Fiski-
stofu Íslands. Hlutdeild félagsins í heildarkvótan-
um er 11,26 prósent talið í þorskígildum og er út-
gerðarfélagið alveg við tólf prósenta kvótaþakið.
Félagið sameinaðist Tanga snemma á árinu og jók
því hludeild sína. Samherji er í öðru sæti (7,81%),
FISK-Seafood í því þriðja (4,02%), Brim í fjórða
(4,00%) og Þorbjörn-Fiskanes í því fimmta (3,94%).
Síldarvinnslan (3,92%), Þormóður rammi – Sæberg
(3,88%), Ísfélag Vestmannaeyja (3,81%), Vinnslu-
stöðin (3,15%) og Eskja (3,11) koma svo í næstu
sætum.
Litlar breytingar verða á röð efstu útgerða frá
síðasta ári og kvótastöðu þeirra nema hjá HB
Granda sem bætir sig um eitt prósent sem og Ís-
félag Vestmannaeyja. FISK-Seafood kemur nýtt inn
á listann en félagið samanstendur af Fiskiðjunni
Skagfirðingi og Skagstrendingi sem voru í 12. og
14. sæti í fyrra. Útgerðarfélagið Vísir í Grindavík
dettur út af topp tíu listanum.
Greining Íslandsbanka bendir á að hlutdeild tíu
stærstu útgerðanna sé orðin um 50 prósent af heild-
arkvótanum. Árið 1999 var hlutfallið hins vegar um
32 prósent en 24 prósent árið 1992. Sameiningar og
uppkaup fyrirtækja innan sjávarútvegs bera keim
af samþjöppun kvótans. Vekur það athygli að aðeins
fjögur fyrirtæki á topp tíu eru skráð á hlutabréfa-
markað og stefnir allt í það að bæði Samherji og
Þormóður rammi – Sæberg fari af markaði innan
skamms. Þá verða aðeins eftir HB Grandi og
Vinnslustöðin.
HB Grandi hefur mestar aflaheimildir af fjórum
fisktegundum af átta, í ýsu, ufsa, karfa og loðnu.
Samherji ræður yfir mestum kvóta í þorski og grá-
lúðu. Íshaf, sem er í 36. sæti þeirra félaga sem ráða
mestu af heildarkvótanum, hefur yfir að ráða lang-
mestum kvóta af úthafsrækju.
Vika Frá áramótum
Actavis -1% 4%
Atorka -3% 1%
Bakkavör 0% 36%
Burðarás -5% 14%
Flaga Group -5% -15%
FL Group 0% 45%
Íslandsbanki -4% 18%
Kaupþing Bank -4% 19%
Kögun 0% 35%
Landsbankinn -2% 33%
Marel -1% 12%
Og fjarskipti 4% 29%
Samherji 0% 9%
Straumur -5% 21%
Össur -4% 6%
*Miðað við gengi í Kauphöll í gær
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
HB Grandi ræður
yfir mestum kvóta
Stærstu útgerðarfélögin auka hlutdeild sína í heildarkvóta.
Stærsta stofnfjárútboð frá upp-
hafi hófst á mánudaginn þegar
SPRON hóf að selja 28.960 stofn-
fjárhluti. Heildarvirði bréfanna
er um 1.280 milljónir króna og
eykst því eigið fé sem því nemur
ef allt stofnféð selst. Núverandi
stofnfjáreigendur hafa forgang
að aukningunni.
Holt Holding, félag í eigu
Skúla Þorvaldssonar kaupsýslu-
manns, er stærsti stofnfjáreig-
andinn með um tíu prósenta hlut.
Tuttugu stærstu eigendurnir eiga
yfir 60 prósent stofnfjár í
SPRON. - eþa
Sænsku félögin sem Burðarás
hefur verið að fjárfesta í undan-
farna mánuði hafa birt árshluta-
uppgjör sín. Carnegie hagnaðist
um níu hundruð milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi en Burðarás
er stærsti hluthafinn í félaginu
með fimmtungshlut. Afkoma
bankans var í takt við væntingar
markaðarins að því er kemur
fram í Vegvísi Landsbankans.
Afkoma hugbúnaðarfyrirtæk-
isins Scribona var í járnum á
fyrsta ársfjórðungi. Eftir skatta
var hagnaður á núlli. Gengi
hlutabréfa í Scribona hefur
lækkað eftir uppgjörið. Burðarás
á einnig í Intrum Justitia sem
skilaði 600 milljóna króna hagn-
aði eftir skatta.
Fjármálafyrirtækið Skandia,
sem Burðarás og KB banki eiga
um 4 prósent í, á enn eftir að
birta afkomutölur fyrir fyrsta
fjórðung ársins. - eþa
Í Morgunkorni Íslandsbanka í
síðustu viku er fjallað um að
ávöxtun á erlendum hlutabréfa-
mörkuðum hafi verið heldur rýr
frá áramótum. Bandarísku hluta-
bréfavísitölurnar hafa allar
lækkað á árinu, Nasdaq um tæp
tíu prósent, Dow Jones um fjögur
prósent og S&P 500 um rúm þrjú
prósent. Markaðir í Japan og
Hong Kong hafa einnig lækkað.
Evrópsku vísitölurnar CAC (+ 5,2
prósent) og FTSE 100 (+1,8 pró-
sent) hafa gert betri hluti þótt
ávöxtun þeirra sé ekkert í líkingu
við íslensku Úrvalsvísitöluna
sem hefur hækkað um rúm 20
prósent frá áramótum. - eþa
Erlend hlutabréf gefa
litla sem enga ávöxtun
Sparisjóður Reykjavíkur:
Skúli Þorvaldsson stærstur
Sænsku félögin í eigu Burðaráss:
Vegnar misvel
Pólskt
farsímaleyfi
Netia Mobile, sem er í meiri-
hlutaeigu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, hefur verið úthlutað
fjarskiptaleyfi fyrir þriðju kyn-
slóð farsíma í Póllandi.
Er þetta fjórða leyfið fyrir
þriðju kynslóð farsíma sem veitt
er í Póllandi. Samhliða var útboð
GSM 1800 farsímaleyfa, en eng-
inn umsækjenda var talinn upp-
fylla öll skilyrði fyrir slíku leyfi.
Björgólfur Thor hefur verið
fyrirferðarmikill í kaupum á
símafyrirtækjum í Austur-Evr-
ópu og á einnig í slíkum fyrir-
tækjum í Búlgaríu og Tékklandi.
Stærsta viðskiptasendinefnd
sem farið hefur frá Íslandi held-
ur til Kína næsta sunnudag.
Sendinefndin fer í fylgd með
forseta Íslands, herra Ólafi
Ragnari Grímssyni, sem verður
í opinberri heimsókn í Kína.
Til Kína fara meðal annars
forsvarsmenn fyrirtækja úr
sjávarútvegi, ferðaiðnaði, orku-
iðnaðinum og fjárfestar, svo
eitthvað sé nefnt. Yfir 200
manns fara til Kína og verða þar
fulltrúar yfir 100 fyrirtækja. Út-
flutningsráð heldur utan um
ferðina og hefur þátttakan verið
langt umfram væntingar þeirra.
Frammámenn úr viðskiptalíf-
inu á borð við Björgólf Thor
Björgólfsson, Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Jón Helga Guð-
mundsson halda til Kína.
Ráðstefna, móttökur og ýms-
ar uppákomur eru skipulagðar
fyrir Íslendingana og hafa þeir
tök á að bjóða kínverskum við-
skiptavinum sínum á ýmsar
skipulagðar uppákomur.
Gert er ráð fyrir að margir
nýti tækifærið og hitti núver-
andi og væntanlega viðskipta-
félaga sína í Kína. Án efa verða
því fréttir af frekari útrás með í
farteskinu frá Kína. - dh
ERLEND HLUTABRÉF Bandarísku hluta-
bréfavísitölurnar hafa lækkað frá áramót-
um. Evrópsku vísitölurnar hafa hækkað ör-
lítið en sú íslenska er með vinninginn.
HB GRANDI HB Grandi er langsamlega stærsta útgerðarfélagið
talið í kvótastöðu á Íslandsmiðum. Hlutdeild tíu stærstu útgerðanna
í heildarkvóta hefur vaxið mjög á síðustu árum og ráða þær nú um
helming heildarkvótans.
Krónan hefur
náð hámarki
Krónan hefur náð hámarki og mun
halda áfram að veikjast eftir því
sem líður fram á árið að mati
greiningardeildar KB banka. Þrátt
fyrir hægfara veikingu er gert ráð
fyrir að krónan haldist tiltölulega
sterk allt fram til næsta hausts.
Veiking krónunnar verður hraðari
eftir það. Spáin byggir á ákveðnum
forsendum um vaxtamun við út-
lönd. Í efnahagsfregnum KB banka
kemur fram að þróun vaxtamunar
við útlönd sýni hagkvæmni þess að
taka erlend lán. Ísland sé því næmt
fyrir þróun vaxta hérlendis og er-
lendis. - dh
Stofnfjáreigandi Eignarhlutur
1. Holt Holding S.A. 9,90%
2. VÍS 4,99%
3. Meiður ehf. 4,99%
4. Föroya Sparikassi 4,90%
5. Kaupþing banki hf. 4,90%
6. Sundagarðar hf. 4,89%
7. Fiskiðja Sauðárkróks 3,90%
8. Bakkabræður sf. 2,69%
9. Guðmundur Hauksson 2,63%
10. Svellhamar ehf. 2,42%
S t æ r s t u s t o f n f j á r e i g -
e n d u r í S P R O N 1 5 . a p r í l
Tegund Útgerð Hlutdeild af kvóta
Þorskur Samherji 7,26%
Ýsa HB Grandi 6,95%
Ufsi HB Grandi 18,02%
Karfi HB Grandi 31,95%
Grálúða Samherji 13,39%
Síld Skinney-Þinganes 13,31%
Loðna HB Grandi 18,68%
Úthafsrækja Íshaf 18,50%
H v a ð a ú t g e r ð v e i ð i r m e s t
a f h v e r r i t e g u n d ?
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Í opinberri heimsókn á Indlandi.
Áhrifamesta fólkið
með til Kína
Viðskiptalífið sækir á nýja markaði.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
P
UPPGJÖRSTÖLUR FRÁ SVÍÞJÓÐ For-
svarsmenn Burðaráss hafa horft mikið til
sænska markaðarins og fjárfesta einkum í
fyrirtækjum í fjármálageiranum og upplýs-
ingatækni.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
li