Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 21
3MIÐVIKUDAGUR 11. maí 2005 Nýlega luku 42 konur rekstrar- námi í Mætti kvenna við Við- skiptaháskólann á Bifröst og er það annar útskriftarhópurinn af slíku námskeiði. Námið er sett upp fyrir konur í atvinnurekstri á landsbyggðinni og styrkt af Byggðastofnun. Af fjöldanum sem sækir það má ráða að þörfin sé mikil og krafturinn eftir því. Að sögn Auðbjargar Agnesar Gunnarsdóttur, viðskiptafræð- ings sem heldur utan um símennt- unarmálin á Bifröst, er námskeið- ið að miklu leyti byggt á fjarnámi. Í upphafi og lok námstímans hitt- ast þó konurnar á Bifröst og hafa þar vinnuhelgar. Bókfærsla, tölvutækni, markaðs og sölumál, fjármál og vaxtaútreikningar ásamt áætlanagerð eru meðal námsgreina. „Áherslan er á aðgengilegt nám og hagnýtt,“ segir Agnes. „Konurnar eru margar í vinnu og með heimili og börn en þær geta farið inn á vefinn, hlustað á fyrir- lestrana og unnið verkefnin þegar þeim hentar. Þetta hefur mælst vel fyrir.“ ■ Hópurinn sem útskrifaðist á dögunum. Agnes Gunnarsdóttir lengst til hægri með dökkbleikt sjal. Máttur kvenna kemur sér vel enda þörfin mikil Yfir eitt hundrað konur hafa útskrifast frá Bifröst úr ellefu vikna rekstrarnámi sem ber yfirskriftina Máttur kvenna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IF RÖ ST Þessi skarpgreindarlegi köttur gæti ef- laust hjálpað eiganda sínum að læra og hækkað einkunnina hans þannig. Látið gæludýr hækka einkunnir BRESKIR PRÓFTAKAR GETA FENGIÐ ÝMISLEGT METIÐ SÉR Í HAG. Þeir nemendur sem þreyta stúdents- próf í Bretlandi geta fengið ýmislegt metið til einkunna. Einkum eru áföll ýmiss konar líkleg til að hækka ein- kunnir örlítið, enda ekki sanngjarnt að þeir sem eru undir álagi vegna sjúkdóma eða óvæntra hremminga þurfi að skila sömu frammistöðu og þeir sem mæta í próf áhyggjulausir og úthvíldir. Breska samræmduprófa- ráðið hefur sent frá sér mælikvarða þar sem ýmsir vankantar á lífi nem- enda eru metnir til hækkunar próf- einkunna. Þannig að ef köttur nem- andans deyr á sjálfan prófdaginn fær hann tveggja prósenta ívilnun í ein- kunnagjöf en ekki nema eitt prósent ef kisa mætir örlögum sínum daginn áður. Nýlega brotinn útlimur hækkar einkunnina um þrjú prósent, það sama og sjúkdómar í innri líffærum og frekar nýlegur fjölskylduharmleik- ur. Ofnæmi getur bætt tveimur pró- sentum við einkunnina og höfuðverk- ur einu. Stúdentsprófin í Bretlandi eru kölluð „Admission“-próf og eru inngöngupróf í háskóla og getur ein- kunnin skipt sköpum upp á framtíð nemandans. Því þótti nauðsyn að samræma ívilnanir af þessum toga. ■ Ein náms- grein í einu Nám samhliða starfi er yfirskrift ein- stakra námsgreina hjá Endurmennt- un Háskóla Íslands. Það tekur eina til þrjár annir. Sálgæslufræði er meðal námskeiða í Endurmenntunardeild Háskóla Íslands á næstu önn. Hún verður kennd í sam- starfi við guðfræðideild Háskóla Ís- lands. Námskeiðin eru haldin fyrir guð- fræðinema og aðra sem starfa t.d. í heilbrigðiskerfi, skólakerfi, félagsþjón- ustu og löggæslu. Sálgæslufræðin er meðal margra annarra námsgreina sem Endurmenntunardeildin býður uppá undir kjörorðinu Nám samhliða starfi og eru ætluð þeim sem vilja auka menntun sína án þess að að láta tíma- bundið af störfum. Ein námsgrein er kennd í einu. Miðvikudaginn 18. maí verður kynning á námsleiðunum kl. 16.30 í húsnæði Endurmenntunar HÍ og umsóknarfrestur er til 1. júní. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Fullorðið fólk sækir æ meir í endurmennt- un.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.