Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (Bygg)
hefur verið að hasla sér völl á sviði fjárfest-
inga á undanförnum árum. Líkt og í verktaka-
bransanum hefur fjárfestingarstarfsemin
tekist vel til en Bygg hefur unnið náið með
fjárfestingarfélaginu Saxhóli, sem er í eigu
Nóatúnsfjölskyldunnar. Bygg og Saxhóll hafa
tekið höndum saman við Hannes Smárason,
stjórnarformann FL Group, og mynda þau
saman eitt kraftmesta bandalag í íslensku
viðskiptalífi.
FASTEIGNIR ERU HORNSTEINNINN
Bygg var stofnað af Gylfa Héðinssyni múr-
arameistara og Gunnari Þorlákssyni bygg-
ingameistara árið 1984. Margir starfsmanna
Bygg komu til liðs við þá félaga í árdaga
Byggs og hafa séð fyrirtækið
stækka og dafna. Félagið velti
um 1.800 milljónum króna árið
2003 en óhætt er að fullyrða að
sú tala hafi hækkað nokkuð á
síðasta ári vegna aukinna um-
svifa. Það hefur byggt yfir
1.500 íbúðir um dagana, bæði
félagslegar íbúðir og íbúðir
fyrir almenna markaðinn.
Stærstu framkvæmdir félags-
ins þessa dagana eru í hinu
svokallaða Sjálandshverfi,
bryggjuhverfi Garðbæinga,
en það hefur einnig verið virk-
ur þátttakandi við uppbygg-
ingu nýju hverfanna í Kópa-
vogi, Grafarholti og Bryggju-
hverfisins í Reykjavík. Ætla
má að Bygg framleiði um 200 íbúðir á hverju
ári og hafi tvöfaldað framleiðsluna á tveimur
árum.
Í viðskiptaheimi þar sem verktakafyrir-
tæki koma og fara fer gott orðspor af fyrir-
tækinu en það er mál margra fasteignasala að
íbúðarhúsnæði sem Bygg reisir gangi vel í
endursölu. Hönnun íbúða og gæði hafa ef-
laust verið fordæmi fyrir aðra í þeim efnum.
Fasteignaverð hefur hækkað um 32 pró-
sent á einu ári á Reykjavíkursvæðinu og er
umhverfið afar hagstætt byggingarverktök-
um sem Bygg. Verkefnin framundan eru næg
en auk Sjálandshverfis og verkefna í nýjustu
hverfum Kópavogs stefnir félagið að því að
byggja nokkur háhýsi í Lundi á næstunni. Þá
eru áform uppi um að byggja 450 íbúðir í nýju
bryggjuhverfi í Kársnesinu í Kópavogi í sam-
vinnu við Björgun. Bygg áætlar einnig að
byggja margra hæða atvinnuhúsnæði við
Bíldshöfða.
ÍSLENSKI DRAUMURINN
Uppgangur Bygg er eins konar íslensk útgáfa
af ameríska draumnum, hvernig menn geta
brotist til ríkidæmis og áhrifa með dugnaðin-
um. Þeir sem til Gylfa og Gunnars þekkja eru
sammála um að ótrúlegur kraftur einkenni þá
félaga. Þeir eru stórhuga og eiga auðvelt með
að hrífa aðra með sér. Ekkert verkefni er of
stórt að ekki sé hægt að leysa það.
Félagarnir þykja vera ekta bisnessmenn,
sanngjarnir gagnvart þeim sem vilja eiga við-
skipti við þá en eru harðari við þá aðila sem
þeir eiga viðskipti við af fyrra
bragði. Það orð fer af tví-
menningunum að þeir treysti
fáum nema sjálfum sér og til
marks um það þá mætir Gylfi
sjálfur í alla samninga sem
tengjast sölu á íbúðarhúsnæði.
Þeir félagar, Gylfi og Gunn-
ar, eru ekki gefnir fyrir sviðs-
ljósið og eru hálfgerðir huldu-
menn í viðskiptalífinu. Einn
viðmælanda Markaðarins orð-
aði það þannig að þeir láti lítið
uppi og lifi þannig. Þeir séu því
jarðbundnir og láti lítið á sér
berast. Um þá hefur verið sagt
að þeir telji ekki peningana
sína og líti á fyrirtæki sitt
sömu augum og skógrækt, það
er að þétta skóginn og stækka.
SMÁRALIND VAR UPPHAFIÐ
Bygg hefur í seinni tíð eytt púðri í fjárfest-
ingastarfsemi og verður ekki annað sagt en
að árangurinn hafi verið góður. Stærstu eign-
arhlutir félagsins liggja í FL Group (áður
Flugleiðir) í gegnum eignarhaldsfélagið Sax-
bygg, sem Bygg og Saxhóll eiga til samans.
Saxbygg er næststærsti eigandinn í FL
Group með um fjórðungshlut en stærst er
Eignarhaldsfélagið Oddaflug í eigu Hannesar
Smárasonar. Bréfin voru keypt á genginu níu
fyrir um ári síðan og hafa hækkað um 60 pró-
sent. Um viðskiptin sagði Gunnar Þorláksson
við Morgunblaðið að félagið hefði aldrei farið
út í jafn stór viðskipti sem þessi. Áhættan af
viðskiptunum hefur skilað sér með myndar-
legum hætti en óinnleystur gengishagnaður
Saxbyggs af kaupunum er yfir þrír milljarð-
ar króna.
Samstarf Byggs, Saxhóls og Hannesar
Smárasonar á sviði fjárfestinga hófst fyrir
um tíu árum þegar Smáralindarverkefnið fór
af stað. Gylfi og Gunnar fengu 90 þúsund fer-
metra lóð í Smáranum úthlutað árið 1994 en
upphaflega hafði henni verið úthlutað til
Sambandsins sáluga. Þeir fengu Pálma Krist-
insson, verkfræðing og núverandi fram-
kvæmdastjóra Smáralindar, til
að gera arðsemis- og mark-
aðsútreikninga. „Til álita kom
hjá mér að taka verkefnið í
Kópavogi að mér sem hliðar-
verkefni ... [e]n málin þróuðust
hratt og mér varð fljótt ljóst að
þeir félagarnir bjuggu yfir
ótrúlegum krafti og hæfni til að
leysa verkefni af þessu tagi,“
sagði Pálmi í viðtali við Morg-
unblaðið.
Fleiri fjárfestar voru kallað-
ir til þegar ljóst var að bygg-
ingin yrði mun stærri en upp-
haflega var gert ráð fyrir.
BYKO, Olíufélagið, Steypustöðin og Saxhóll
komu til sögunnar og síðar Baugur. Í fyrstu
höfðu menn stefnt á að byggja 10 þúsund fer-
metra verslunarhúsnæði en enduðu í 63 þús-
und fermetrum! Hannes Smárason varð
stjórnarformaður Smáralindar fyrir hönd
BYKO.
FREKARI EIGNATENGSL
Leiðir Bygg, Saxhóls og Hannesar liggja
einnig í gegnum Runn ehf. sem á fimmtán
prósent í Og fjarskiptum. Runnur er einnig í
eigu eignarhaldsfélags í eigu Mogs ehf. og
Vífilfells. Bygg kemur við sögu í Húsasmiðj-
unni eins og Saxhóll og Hannes. Tengsl þess-
ara þriggja fjárfesta eru ekki síður sterk við
Baug Group í gegnum Og fjarskipti og Húsa-
smiðjuna þar sem Baugur er stærsti hlut-
hafinn í báðum félögum. Bygg á hlut í Lands-
bankanum, Smáralind, Jarðborunum og Ör-
yggismiðstöð Íslands. Þá rekur félagið fast-
eignasöluna Fjárfestingu. Sterk eiginfjár-
staða þeirra Gylfa og Gunnars gefur þeim
svigrúm til enn frekari vaxtar, ýmist á eigin
vegum eða í samfloti með bandamönnum.
Byggingarfélag á flugi
Bygg hefur fært út kvíarnar og beinir sjónum sínum að fjárfestingum auk kjarnastarfseminnar. Félagið er
stórtækur framleiðandi íbúðarhúsnæðis en jafnframt stór fjárfestir í samgangna-, fjármála- og fjarskipta-
starfsemi. Eggert Þór Aðalsteinsson dregur upp mynd af Bygg og frumkvöðlunum Gylfa og Gunnari.
GUNNAR ÞORLÁKSSON OG GYLFI
HÉÐINSSON VIÐ HÖFUÐSTÖÐVARNAR
Í BORGARTÚNI Félagarnir hafa á tuttugu
árum byggt upp gríðarstórt verktakafyrir-
tæki sem selur um 200 íbúðir á hverju ári.
Þeir félagar þykja duglegir, stórhuga og hríf-
andi. Bygg hefur lykilhlutverki að gegna í ís-
lensku viðskiptalífi vegna fjárfestinga í FL
Group og Og Vodafone.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Stærstu
eignir Byggs
Virði*
1. Saxbygg (50%) 4.600
2. Landsbankinn 660
3. Smáralind 600 **
4. Runnur (u.þ.b. 20%) 540
5. Jarðboranir 305
* Áætlað markaðsverð í milljónum.
** Áætlun. Fasteignafélag Íslands á 98%
í Smáralind. Það er í eigu Baugs Group,
Saxhóls og Byggs og er gert ráð fyrir
jafnri eignaraðild.
▲
SJÁLANDSHVERFI Bygg hefur að mestu
séð um uppbyggingu Sjálandshverfis í
Garðabæ þar sem gert er ráð fyrir um
1.800 íbúðum. Þetta er eitt dýrasta hverfi
borgarinnar. Bygg hefur komið nálægt upp-
byggingu í Lindum, Sölum og Vatnsenda-
hverfi í Kópavogi auk Grafarholts og Grafar-
vogs.