Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 70
Selma Björnsdóttir lagði snemma í morgun upp í langferð þar sem áfangastaðurinn er Kænugarður í Úkraínu. Þar mun Selma verða fulltrúi íslensku þjóðarinnar í Eurovision keppninni og flytja lagið If I Had Your Love. Gífurleg spenna er fyrir þessari keppni enda benda flestar spár til þess að laginu muni ganga vel. Rúnar Freyr Gíslason, eigin- maður Selmu, er búinn að vera á stöðugum þeysingi síðustu daga þar sem binda þarf um marga lausa hnúta. „Já, þetta er búið að vera heilmikið stress síðustu daga og ég hef brugðið mér í hlut- verk sendils og barnapíu,“ segir Rúnar Freyr sem var einmitt að sendast eitthvað fyrir Selmu þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Rúnar Freyr verður því einn í kotinu ásamt syni þeirra Selmu, Gísla Birni, um skamma hríð en sjálfur fer leikarinn út á sunnu- daginn. Þetta er í annað sinn sem hann fer á þessa keppni. „Það er mjög skemmtileg stemmning á þessari keppni og þeir blaðamenn sem koma eru dolfallnir Euro- vision-aðdáendur, eltandi stjörnu- rnar út um allt,“ segir Rúnar Freyr og viðurkennir að hann sé orðinn pínulítið spenntur. „ Hjart- að slær aðeins hraðar,“ segir hann og hlær. Hann segist ekki mikið vita um Kænugarð en vita þó að þetta sé mjög áhugaverð borg með mikið menningarlíf. „Það verður líka gaman að vera í fríi frá sviðinu, geta staðið til hliðar og bara fylgst með,“ segir hann og reikn- ar með því að vera með íslenska fánann í salnum þegar Selma stíg- ur á sviðið. „ Svo reyni ég bara að vera góður við hana,“ bætir hann við og heldur áfram að þeysast um borgina og binda lausu hnút- una. freyrgigja@frettabladid.is 34 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR Og meira af Svanhildi Hólm.Opruh-þátturinn sem þjóðin hefur beðið eftir verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Miklar deilur hafa sprottið upp út af yfirlýsingum Svan- hildar um kynlíf Ís- lendinga. Í kvöld verður þó hægt að gera bragarbót á því og mynda sína eigin skoðun þegar Oprah Winfrey, spjallþáttadrottning Bandaríkjanna, ræðir við spjallþátta- drottningu Íslands. Lárétt: 1 aða, 5 sönghópur, 6 skamm- st., 7 íþróttaviðburður, 8 nögl, 9 stillt, 10 ull, 12 eldsneyti, 13 svelgur, 15 frá Reykjavík, 16 tarfur, 18 lélegt. Lóðrétt: 1 ekluna, 2 fraus, 3 sem, 4 frá- sagnarvert, 6 tannhirðuefni, 8 eins um r, 11 ærða, 14 leðja, 17 goð. Lausn Lárétt: 1skel,5kór, 6fr., 7ol,8kló,9 prúð,10tó,12kol,13iða,15re,16 naut,18rýrt. Lóðrétt: 1skortinn, 2kól,3er, 4fróð- legt, 6flúor, 8krk,11óða,14aur, 17tý. 595 9000 Björn Daníelsson, hdl. og lögg. fasteignasali Gott gistiheimili við Sóltún í Reykjavík sem er með 9 herbergi og 5 stúdióíbúðir auk ca 180 fm bíla- geymslu, leigutekjur ca 5-600þús pr mán verð 55 millj áhv 36 mill. Nánari upplýsingar veitir Kristberg Snjólfsson í síma 595-9000. Tákn um traust Einstakt tækifæri Bandaríska dávaldinum og Ís- landsvininum Sailesh tókst það sem fáum hefur tekist að afreka, að gera allt brjálað í Svíþjóð án þess að hafa svo mikið sem stigið þar fæti. Ísleifur Þórhallsson, sem hefur veg og vanda af ferð- um dávaldsins, sagði atburðarás- ina hafa verið mjög skondna. „Þannig var mál með vexti að sænskir blaðamenn hringdu í hann eftir að þeir höfðu fengið fregnir af því að hann myndi njóta aðstoðar Olindu, sem er þjóðþekkt eftir að hafa verið í sænsku útgáfunni af Paradise Hotel,“ segir Ísleifur. „Þeir spurðu hvort hann ætlaði að láta Olindu fá fullnæginu á sviðinu og Sailesh svaraði því bara játandi enda vissi hann ekkert hver þessi stúlka væri. Þessu var síðan sleg- ið upp á forsíðu sænsku blað- anna,“ segir Ísleifur og hlær. Mikið fjaðrafok varð í kjölfar- ið og segist Ísleifur aldrei hafa lent í öðru eins. „Svíar eru furðu- leg þjóð,“ bætir hann við en eig- andi staðarins Rival, þar sem Sailesh átti að troða upp, hótaði að henda þeim út. „Við leiðréttum þetta og Olinda kom bara fram í lokaatriðinu sem fólst í því að þegar hún tók í höndina á karl- mönnunum fengu þeir fullnæg- ingu.“ Vakti þetta mikla kátínu og enn komst Sailesh á forsíður sænsku blaðanna. Ísleifur reiknar með að sýn- ingin fari í smá ferðalag, meðal annars til Finnlands og vonandi til Danmerkur auk annarra Evr- ópulanda. „Þetta er reyndar bannað í Noregi,“ segir Ísleifur og útilokar ekki að Sailesh komi á ný til Íslands. Hvort einhver þekkt íslensk kynbomba yrði fengin til aðstoðar vildi Ísleifur ekkert segja um. „Verðum við ekki bara að leita að hinni ís- lensku Olindu?“ freyrgigja@frettabladid.is Sailesh veldur fja›rafoki SAILESH ÁSAMT OLINDU Dávaldurinn Sailesh ásamt sænsku skvísunni Olindu á sýningu í Svíþjóð sem vakti mikla athygli. RÚNAR FREYR GÍSLASON Kvaddi Selmu í morgun en fylgir henni eftir á sunnudaginn kemur. RÚNAR FREYR: FER Á EUROVISION Í ANNAÐ SINN Í hlutverki sendilsins Vinn verkefni fyrir Fjarðabyggð Sumarið er sá tími sem ég smyr upp ermarnar og vinn. Ég er náttúrlega í um- hverfismálunum og það getur varla heitið að ég hafi farið í sum- arfrí. Ég verð að vinna verkefni fyrir Fjarða- byggð í sumar. Ég fer reyndar í tvo daga í gistingu hjá systur minni í Dan- mörku. Það er eiginlega eina sumarfríið mitt. Í fríi í allt sumar Í sumar ætla ég aðal- lega að byggja bú- staðinn minn í Borg- arfirðinum. Ég er í fríi í allt sumar og ætla að hafa það gott. Í haust ætla ég svo að ganga í fjöllunum á Spáni. Þetta verður heljarinnar gönguferð sem tekur viku. Við endum svo á hóteli sem er um klukkutíma frá Alicante. Þetta verður fínasta sumarfrí. Til Spánar í hálfan mánuð Ég ætla að fara með stúlkuna mína til Spánar í hálfan mán- uð. Við verðum í litlu húsi rétt hjá Alicante. Svo þegar ég kem heim frá Spáni á ég líklega eftir að bruna norður og ferðast eitt- hvað innanlands. Þetta verður ágætis frí og það er líka nauðsynlegt fyrir mig að taka mér frí til að sinna stelpunni minni. HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA Í SUMARFRÍINU? ÞRÍR SPURÐIR Árni Steinar Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna. Ásta Möller, þingkona Sjálf- stæðisflokksins. Guðrún Ögmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar. … fær söngflokkurinn Icy, sem ætlar að koma saman á ný á Nasa þann 21. maí, þegar sjálf Eurovision-keppnin fer fram. Nítján ár eru síðan Helga Möller, Pálmi Gunnarsson og Eiríkur Hauksson stigu á svið í Björgvin og sungu lagið um Gleðibankann. HRÓSIÐ FRÉTTIR AF FÓLKI1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Akrahreppur. Jón Ólafsson. Ásdís Ólöf SI-23. Nútíma sauma-klúbbar geta tek- ið á sig hinar ýmsu myndir eins og flestir vita og oft- ast lítið saumað í slíkum félags- skap. Sumir saumaklúbbar hafa meira að segja breyst í leynifélög í anda ævintýrabóka og bera nöfn sem slíkir. Einn virkasti klúbbur- inn í Reykjavík um þessar mundir, og sá sem reynir að láta fara eins lítið fyrir sér og mögulegt er, er Leynifélagið Svarta höndin sem skipað er ungum stúlkum víðs vegar að úr þjóðfélaginu. Svarta höndin er sprottin upp úr veftímaritinu tíkin.is, sem ungar sjálfstæðiskonur halda úti, en í hópinn hafa síðan bæst aðrar stúlkur. Tveir helstu forsprakk- ar félagsins eru sjónvarpskonurnar og samstarfsfélagarnir Svanhildur Hólm og Inga Lind Karlsdóttir á Stöð 2, Birna Anna Björnsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, Tinna Traustadóttir dóttir Stein- unnar Sigurðardóttur, rithöfundar og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, lög- fræðingur og eiginkona Ágústs Ólafs Ágútssonar, þingmanns Sam- fylkingarinnar. Svarta höndin heldur reglulega leynilegar samkomur þar sem stúlk- urnar úða í sig kökum og ræða lífs- ins gagn og nauðsynjar. Félagið heldur líka nýársfagnað þar sem engu er til sparað og það eru víst einu skiptin sem mökum er leyft að fljóta með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.