Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 62
26 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Ég er búin að
uppgötva nýtt
skeið í manns-
lífinu. Foreldr-
ar mínir eru á
þessu skeiði
núna, sem og
vinir þeirra og
k u n n i n g j a r.
Þau eru rétt
skriðin yfir
f i m m t u g t ,
búin að koma sér
fyrir og punga út sínum skammti af
börnum og núna er tíminn til að láta
sér líða veeeel. Það mætti eiginlega
kalla þetta gelgjuskeið númer tvö.
Þau eru sem sagt á seinni gelgjunni.
Núna eru þau að byggja sér sumar-
bústað. Mér skilst að þessi sumar-
bústaður muni verða algjör paradís
og þar skal vera allt til alls. Þau eru
náttúrlega búin að vera á hinu
þekkta græjutímabili í talsverðan
tíma og eiga núna allar græjur sem
til eru og í flestum tilvikum tvær af
hverri tegund. Við eigum meira að
segja eplaskrælara. Ekki djók. Og
þetta er sko ekki eitthvað sem ég er
vön.
Þegar ég var lítil mátti ekki einu
sinni kaupa kók! Hvað þá eyða
pening í einhverja einskisnýta
græju eða nýtt sjónvarp þegar hitt
dugar bara alveg. Þó svo að maður
þurfi að standa upp til að skipta um
rás. Núna hefur þetta algjörlega
snúist við. Þau kaupa kók meira að
segja á miðvikudögum núna. Án
þess að blikna! Hvað á það að þýða?
Vita þau ekki að kók er óhollt? Hver
ól þau eiginlega upp? Kók?!! Þegar
maður getur fengið okkar yndislega
vatn ókeypis úr krananum! Pffff!
Ef okkur svo áskotnast eitthvað
þessa dagana, auka örbylgjuofn,
sjónvarp eða hvað sem það er, þá er
það undantekningarlaust að þessi
orð heyrast: „Þetta fer í sumar-
bústaðinn, þetta er frábært fyrir
sumarbústaðinn, sérðu þetta ekki
fyrir þér í sumarbústaðnum?“ Nota
bene þá er ég á ystu nöf að fara að
stofna til eigin heimilis þar sem ör-
bylgjuofn eða aðrar hentugar
græjur myndu alls ekki vera óvel-
komnar. En nei, sumarbústaðurinn
skal það vera. Ég get bara poppað í
potti. Kannski ég flytji bara í þenn-
an sumarbústað. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR FYLGIST MEÐ FORELDRUM Á GELGJUNNI.
Kók á miðvikudögum?!
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Kæri Guð! Það er
margt sem ég
þarf að ræða
um...
Ég veit að fötin
skapa ekki manninn
en...!
Af hverju í ósköpunum
þurfa eldri menn alltaf
að vera í svona ljótum
gráum buxum?
Þú skilur kannski núna
af hverju ég óttast
það svo að eldast. Ég
vil ekki klæðast svona
buxum. Góða nótt!
Ætti ég að
leiða hana?
Ætti ég ekki að
leiða hana?
Fóturinn á
mér snertir
hans...ætti ég
að færa hann
eða?
Ætti ég að kyssa
hana góða nótt?
Brosa
eða
vera
svalur?
Ætti ég að
leiða hann?
Hvernig er
hárið á
mér?
Ætli ég
sé
andfúl?
Afhverju
er mér
svona kalt!?
Ah! Að vera ungur
og áhyggjulaus!
Bankinn hefur augljós-
lega aldrei reynt að ala
upp tvö börn á einum
launum.
Ég er hræddur
um að bankinn taki
ekki með í reikn-
inginn „góða
kímnigáfu“.
Úps!