Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Þú þarft ekki tölvudeild
Þú færð fulla þjónustu hjá ANZA
Rekstur ANZA er í samræmi við vottað öryggiskerfi sem byggist á staðlinum ISO 17799 um stjórnun upplýsingaöryggis.
Hornsteinn ANZA er starfsfólk með framúrskarandi þekkingu og hæfni.
ANZA · Ármúla 31 · 108 Reykjavík · Sími 522 5000 · Fax 522 5099 · www.anza.is
ANZA sér um öll tölvumál fyrir fjölda íslenskra
fyrirtækja. Það er sérgrein okkar.
ANZA sér um tölvukerfið þitt, allan sólarhringinn,
alla daga ársins. ANZA fer aldrei í sumarfrí og er
aldrei fjarverandi vegna veikinda.
Kynntu þér málið með því að hafa samband við
ANZA í síma 522 5000 eða anza@anza.is
AR
GU
S
- 0
5-
03
22
Hópur vísindamanna hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að besta
leiðin til að byggja gott lið sé að
blanda saman reynsluboltum og
nýgræðingum. Með slíkri blöndu
er líklegast að bæði nýjar hug-
myndir og reynsla fái að njóta
sín.
Vísindamennirnir rannsökuðu
annars vegar aðra hópa vísinda-
manna og hins vegar hópa sem
unnið hafa að uppsetningu söng-
leikja. Árangur var metinn eftir
því hvort vís-
indamennirn-
ir næðu að
birta niður-
stöður í virtum
fræðiritum og
hvort leikhús-
fólkið kæmist
með sýningu á
Broadway.
Með því að taka saman gögn
um Broadway frá 1877 til 1990 og
um vísindarannsóknir frá 1955 til
2004 fengust niðurstöðurnar sem
notaðar voru til að útbúa stærð-
fræðimódel sem spáir fyrir um
hvort hópar muni ná árangri.
Langmikilvægustu breyturnar
voru hvort nýir menn væru með í
hópnum eða ekki og hvort hópur-
inn yrði líklegur til að starfa
saman á ný.
Fram kemur í umfjöllun um
rannsóknina í tímaritinu New
Scientist að hópar sem starfa
saman að vísindarannsóknum og
listviðburðum hafi farið stækk-
andi á síðustu áratugum. Að með-
altali stóðu tveir að baki hverri
leiksýningu á Broadway árið
1877 en fimmtíu árum síðar var
meðaltalið komið í sjö og hefur
haldist óbreytt síðan. - þk
Örgjörvafyrirtækið Intel og
símafyrirtækið Sprint í Banda-
ríkjunum hafa tekið upp sam-
starf um að vinna að þróun nýs
staðals í þráðlausum netum. Nýi
staðallinn er mun öflugri en sá
sem nú er í notkun og getur með-
al annars boðið upp á að hægt
verði að komast á internetið
hvar sem er innan þéttbýlis-
svæða.
Intel var brautryðjandi í gerð
þeirra staðla sem nú eru notaðir
um þráðlaus net en drægni
þeirra er ekki nægilega mikil til
að hægt sé að tryggja netaðgang
á stórum svæðum. Nýi staðall-
inn heitir WiMax og mun senda
út boð á öðru tíðnisviði en núver-
andi þráðlausir sendar.
Eftir því sem stærri svæði
bjóða upp á þráðlaus net verður
auðveldara að nota til dæmis
netsíma en með þeim er hægt að
hringja gjaldfrjálst í gegnum
Internetið. Þá má búast við því
að framleiðendur fartölva og
lófatölva fagni þessari þróun.
Hins vegar er talið að símafyrir-
tæki sem fjárfest hafa stórfé í
þriðju kynslóðar farsímaleyfum
séu ókát þar sem þráðlaus net
um heilu borgirnar gætu dregið
mjög úr áhuga fólks á því að
nota farsíma sína til að sækja
gögn og heimasíður. - þk
Uppskrift fundin
að draumaliðinu
Lykilatriði að hafa bæði nýgræðinga og reynslubolta.
Þráðlaus net um allar grundir
Intel og Sprint vinna saman að nýjum staðli.
Háhraði í
Kínaveldi
Þótt umferð um internetið í Kína
sé ritskoðuð virðist sem áhugi
Kínverja á að nýta sér tæknina sé
engu minni en ella. Nýleg rann-
sókn leiðir í ljós að fjöldi heimila
með breiðbandstengingum verði
álíka mikill í Kína og Bandaríkj-
unum fyrir lok þessa árs.
Það hefur vitaskuld mikil
áhrif að íbúafjöldi í Kína er um
fjórum sinnum meiri en í Banda-
ríkjunum en fjölgun nettenginga
í Kína vekur engu að síður at-
hygli. Búist er við því að 57 millj-
ón heimili í Kína verði með breið-
bandstengingu árið 2007 saman-
borið við 54 milljónir í Banda-
ríkjunum. - þk
Sérbúnir
diskar hjá
Wal-Mart
Verslunarkeðjan Wal-Mart býð-
ur viðskiptavinum sínum nú
upp á að velja lög á
geisladisk og fá
hann sendan heim.
Wal-Mart rekur
netverslun með
tónlist þar sem
hvert lag kostar 88
bandarísk sent (um
55 krónur).
Viðskiptavinur-
inn getur valið um
nokkrar gerðir af
plötuumslögum og
fær diskinn sinn
sendan heim innan
þriggja daga frá því
að pöntunin er send.
Stjórnendur Wal-
Mart segja að þjón-
ustan sé fyrir þá sem
ekki eiga geisladiska-
brennara eða búa ekki yfir há-
hraðanettengingu. - þk
NETTENGD Í GARÐINUM Með nýrri tækni verður hugsanlega hægt að tengjast internetinu nánast hvar sem er.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/N
or
di
cP
ho
to
s/
G
et
ty
Im
ag
es
LYKILMAÐUR Í DRAUMALIÐINU Frægasta draumaliðið er
ólympíulið Bandaríkjanna í körfubolta sem lék í Barcelona árið
1992 en með því léku meðal annars Magic Johnson, Michael Jord-
an og Larry Bird.