Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 67
Skítamórall
á fljó›hátí›
Hljómsveitirnar Skítamórall og Í
svörtum fötum munu leika á aðal-
sviðinu á þjóðhátíðinni í Eyjum öll
kvöldin um verslunarmannahelg-
ina.
Skítamórall, sem hefur starfað
saman í fimmtán ár, er um þessar
mundir að vinna að nýrri plötu
sem kemur út í sumar. Nýtt mynd-
band með sveitinni hefur verið í
spilun í sjónvarpi undanfarið og
mun það væntanlega fá að hljóma
á þjóðhátíðinni. ■
SKÍTAMÓRALL Hljómsveitin vinsæla spil-
ar á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um versl-
unarmannahelgina.
Reykjavík Rocks á tónlistarkorti›
Tónlistarhátí›in Reykja-
vík Rocks fer fram í
sumar í fyrsta skipti.
Duran Duran, Foo
Fighters og Queens of
the Stone Age munu
tro›a upp í Egilshöll og
hefst mi›asala 21. maí.
Reykjavík Rocks, tveggja kvölda
tónlistarhátíð sem hefur lengi verið
í undirbúningi, fer fram í fyrsta
skipti í sumar.
Hljómsveitin Duran Duran, sem
gerði garðinn frægan á níunda ára-
tugnum, spilar í Egilshöll 30. júní og
5. júlí munu Foo Fighters og Queens
of the Stone Age halda tónleika á
sama stað. Miðasala á viðburðina
hefst 21. maí.
Markmið hátíðarinnar er að
skapa árlega alþjóðlega tónlistar-
hátíð í Reykjavík sem býður upp á
rjómann af þeim hljómveitum sem
eru að koma fram á hátíðum í Evr-
ópu eins og Hróarskeldu, Glaston-
bury og Reading. Hugmyndin um
Reykjavík Rocks fór á flug síðast-
liðið haust eftir viðræður aðstand-
enda hátíðarinnar og fulltrúa nokk-
urra virtustu umboðsskrifstofa tón-
listarfólks í heiminum í dag. Dave
Grohl og félagar í Foo Fighters
ásamt umboðsskrifstofu þeirra
stukku strax á hugmyndina og
sögðu að nú væri kærkomið tæki-
færi til þess að koma Reykjavík á
hið stóra tónlistarhátíðakort Evrópu
yfir sumartímann. Grohl hafði svo
samband við félaga sína í Queens of
the Stone Age, sem stukku einnig
til. Duran Duran kom svo inn stuttu
síðar og grundvöllur Reykjavik
Rocks 2005 var þar með tryggður.
Kári Sturluson, sem nýverið
fékk Robert Plant hingað til lands,
er einn af aðstandendum hátíðar-
innar. Hann segir að hátíðin hafi
nánast verið tilbúin fyrir áramót.
„Þetta er búið að vera klárt síðan í
nóvember. Ég átti bara eftir að fá
staðfest hvaða sveit yrði með Foo
Fighters. Það var ekkert mál að
bóka Egilshöllina,“ segir Kári og
þverneitar að hafa átt í deilum við
aðra tónleikahaldara vegna leigu á
Egilshöll. Hann vonast eftir því að
Reykjavík Rocks eigi eftir að vera
fastur liður í tilverunni um ókomin
ár. „Ég sé fyrir mér um tvö ár fram
í tímann að hátíðin muni stækka og
verða nokkrir dagar og það verði
ekki bara tónlist í boði. Annars
verður á hátíðinni í sumar boðið upp
á atriði sem henta öllum skalanum,“
segir hann.
Forsala á miðum sem gilda fyrir
bæði kvöldin á hátíðinni hefst laug-
ardaginn 21. maí kl. 11.00 í verslun-
um 10-11 í Lágmúla, Austurstræti
og á Akureyri. Miðaverð er 9.900
krónur og aðeins verða 5.000 slíkir
aðgöngumiðar í boði. Daginn eftir,
22. maí, hefst almenn miðasala þar
sem hægt er að kaupa miða á sitt
hvort kvöldið. Miðaverð er 5.900
krónur og þar eru einnig 5.000 mið-
ar í boði á hvort kvöld. Sú miðasala
hefst klukkan 11.00 í öllum verslun-
um 10-11 og á www.reykjavik-
rocks.is.
freyr@frettabladid.is
REYKJAVÍK ROCKS Kári Sturluson, í miðjunni, ásamt aðstoðarmanni sínum Dadda Guð-
bergssyni og fulltrúum annarra aðstandenda hátíðarinnar; Bylgjunnar, Pepsi og 10-11.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A