Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 4
Vinstri grænir:
Fallin stjórn
SKOÐANAKÖNNUN „Þetta er nokkuð í
samræmi við kannanir að undan-
förnu. Stjórnarandstaðan er í meiri-
hluta og stjórnin væri fallin ef þetta
væru úrslit í alþingiskosningum.
Það sem máli skiptir er það sem
gerist í næstu kosningum, því það
er orðið mjög brýnt að lofta út í
Stjórnarráðinu,“ sagði Ögmundur
Jónasson, formaður þingflokks
Vinstri grænna. - oá
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,53 64,83
121,38 121,98
82,86 83,32
11,13 11,20
10,23 10,29
9,00 9,05
0,61 0,61
97,24 97,82
GENGI GJALDMIÐLA 10.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
114,59 +0,15%
4 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Samstarfssamningur endurnýjaður:
Tengslin bætt milli Rússlands og ESB
Ríkisstjórnin héldi
ekki meirihlutanum
Samkvæmt n‡rri könnun Fréttabla›sins myndu ríkisstjórnarflokkarnir fá 29
flingmenn af 63 ef bo›a› yr›i til kosninga nú. Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæ›isflokkur bæta a›eins vi› sig frá sí›ustu könnun.
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur mest fylgi samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins. 36,2 prósent af þeim sem gáfu
upp hvað þeir myndu kjósa sögðust
myndu kjósa þann flokk. Sam-
kvæmt því myndi flokkurinn fá 23
þingmenn, einum fleiri en þeir hafa
nú. Ef úrslit kosninga færu eins og
könnunin myndu stjórnarflokkarnir
þó ekki ná að halda meirihluta sín-
um, því einungis 9,9 prósent styðja
Framsóknarflokkinn. Með slíkt
fylgi fengi flokkurinn sex þing-
menn, sem er helmingurinn af
fjölda framsóknarþingmanna nú.
Samanlagt fengju stjórnarflokkarn-
ir því 29 þingmenn af 63. Framsókn-
arflokkurinn réttir þó aðeins hlut
sinn frá síðustu könnun, þegar átta
prósent sögðust myndu kjósa flokk-
inn, sem gerir fimm þingmenn.
Samfylkingin er samkvæmt
könnuninni næststærsti flokkurinn,
eftir að hafa mælst stærri en Sjálf-
stæðisflokkurinn í könnunum
Fréttablaðsins síðan í nóvember á
síðasta ári. 34 prósent sögðust
myndu kjósa Samfylkinguna og
fengi flokkurinn samkvæmt því 22
þingmenn. Þingmenn Samfylking-
arinnar eru 20 nú. Vinstri grænir
eru á svipuðu róli og í síðustu könn-
un Fréttablaðsins, hafa stuðning
14,1 prósents þeirra sem tóku af-
stöðu, sem gerir níu þingmenn.
Frjálslyndir dala nokkuð frá síðustu
könnun og segjast 4,7 prósent styðja
þann flokk.
Hringt var í 800 manns 8. maí,
sem skiptust jafnt milli kynja og
hlutfallslega eftir kjördæmum.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú
kjósa ef gengið yrði til þingkosn-
inga nú? 53,3 prósent tóku afstöðu
til spurningarinnar.
svanborg@frettabladid.is
Framsóknarflokkurinn:
Framsóknar-
hógvær›in
SKOÐANAKÖNNUN Hjálmar Árnason
segist ekki lítast vel á niðurstöður
könnunarinnar og lítur þær alvar-
legum augum. Þó gildi enn gamla
framsóknarhógværðin enda hafi
dæmi sannað að þótt flokkurinn
komi oft illa út úr skoðanakönnun-
um nái gamla Framsókn yfirleitt
vopnum sínum og komi vel út úr
kosningum. Hann segir hart hafa
verið sótt að flokknum og forystu-
sveit hans, jafnvel á óvæginn hátt,
og geti það að hluta skýrt niðurstöð-
urnar. - oá
Sjálfstæðisflokkurinn:
Vi›unandi
SKOÐANAKÖNNUN „Þessi niðurstaða
er ekki langt frá því sem við höfum
verið að sjá í skoðanakönnunum
Gallup en þó heldur slakari. Auðvit-
að hefðum við kosið að standa betur
að vígi en erum þó að bæta við okk-
ur fylgi miðað við síðustu kosning-
ar. Athyglisvert er
að miðað við þá
miklu fjölmiðla-
umfjöllun sem
S a m f y l k i n g i n
hefur fengið vegna
formannskjörsins
er það ekki að
skila flokknum
u m t a l s v e r ð u m
breytingum frá
síðustu kosningum. Miðað við þess-
ar aðstæður getur Sjálfstæðisflokk-
urinn vel við unað,“ sagði Einar K.
Guðfinnsson, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins. -oá
EFTIR ÓLAF HAUK SÍMONARSON
Sýnt í Samkomuhúsinu, Akureyri
Fös. 13/5 og lau. 14/5
Aðeins þessar tvær sýningar!
FYLGI STJÓRN-
MÁLAFLOKKANNA
Taflan sýnir þróun
fylgis stjórnmála-
flokkanna frá
kosningum 2003
til dagsins í dag
samkvæmt
könnunum
Fréttablaðsins.
B D F S U
6
23
22
20
54
3
22
9
FJÖLDI ÞINGMANNA
Í síðustu kosningum og samkvæmt
könnun 8. maí 2005.
Skv. könnun 8. maí 2005
Eftir kosningar 2003
12
Samfylkingin:
Flokkurinn
ekki ska›ast
SKOÐANAKÖNNUN „Ég er náttúrlega
mjög ánægð með þessa stöðu og
þetta er í samræmi við það sem ég
finn bæði hér á höfuðborgarsvæð-
inu og á lands-
byggðinni,“ sagði
Margrét Frí-
mannsdóttir, þing-
flokksformaður
Samfylkarinnar.
Aðspurð um það
hvort hún hefði
ekki búist við
betri niðurstöðum
vegna mikillar
umfjöllunnar um Samfylkinguna
undnafarið sagði Margrét: „Vafa-
laust eru einhverjir sem bíða eftir
því að þessu kjöri ljúki enda hefur
aðdragandi þess verið langur.
Niðurstöður könnunarinnar sýna að
það hefur ekki skaðað flokkinn á
nokkurn hátt og ég hef trú á því að
það eigi eftir að styrkja hann.“ -oá
EINAR K.
GUÐFINNSSON
MARGRÉT
FRÍMANNSDÓTTIR
RÚSSLAND, AP Ekki náðist samkomu-
lag um að Evrópusambandið slakaði
á reglum um vegabréfsáritanir
fyrir rússneska ríkisborgara á leið-
togafundi Rússlands og ESB í
Moskvu í gær. En endurnýjuðum
samstarfs- og viðskiptasamningi
Rússa og sambandsins var þó fagn-
að sem stórum áfanga að bættum
tengslum. Þessi tengsl gengu undir
mikla prófraun er fyrrverandi
austantjaldslönd gengu í sambandið
í fyrra.
Samstarfssamningurinn snýr
aðallega að efnahags- og viðskipta-
málum. Hann endurspeglar annars
vegar mikla eftirspurn Evrópusam-
bandslandanna eftir ódýrum orku-
gjöfum í formi jarðgass og olíu frá
Rússlandi, og fjárfestingarþörf
Rússa hins vegar.
„Markmið okkar er að skapa
sameiginlegt evrópskt efnahags-
svæði í þágu allra borgara í löndum
okkar. Sameiginleg gildi og sam-
eiginlegir hagsmunir eru kjarninn í
tengslum okkar,“ sagði Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, á blaðamannafundi
með Vladimír Pútín Rússlands-
forseta. ■
HORFT FRAM Á VIÐ Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Jose Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eftir viðræðurnar í Moskvu í gær.
Frjálslyndi flokkurinn:
Stór óvissu-
pottur
SKOÐANAKÖNNUN „Mér sýnist að við
höldum okkar fylgi. Það sem vekur
athygli mína er það hve margir
kjósendur virðast hvergi eiga
heima. Í landi þar sem kosninga-
þátttaka er upp undir 90 prósent
segir þetta manni það að margir eru
óvissir um það sem þeir mundu
gera í kosningum. Við höldum okkar
kjarnafylgi og vitum að í kosninga-
baráttu myndum við fiska nokkur
aukaprósent úr óvissupottinum,“
segir Magnús Þór Hafsteinsson,
þingflokksformaður Frjálslyndra.
-oá
Dvalarheimilið Höfði:
Óska› eftir
rökstu›ningi
AKRANES Brynja Þorbjörnsdóttir,
fyrrverandi útibússtjóri, hefur ósk-
að skriflega eftir rökstuðningi
stjórnar fyrir ráðningu Guðjóns
Guðmundssonar í starf fram-
kvæmdastjóra Dvalarheimilisins
Höfða með tilliti til stjórnsýslu- og
jafnréttislaga. „Ég er búin að leita
mér ráða og kynna mér mína stöðu.
Þetta er í samræmi við það sem
mér var ráðlagt,“ segir Brynja.
Stjórn Höfða hefur tvær vikur til
að svara.
Fundargerð stjórnar Höfða var
lögð fyrir bæjarstjórn Akraness í
gær án athugasemda bæjarfull-
trúa. - ghs
VEÐRIÐ Í DAG
HJÁLMAR ÁRNASON Samkvæmt könnun
Fréttblaðsins myndi Framsóknarflokkurinn
tapa sex þingmönnum ef korið yrði nú.