Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 6
6 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Innflutningur á amerískum bílum:
Losa› um stífluna me› aukaskipi
EIMSKIP Eimskip hefur kallað inn
leiguskipið MS Rebekku til að losa
um stíflu sem hefur myndast í
innflutningi á amerískum bílum.
Skipið hefur farið eina ferð með
bíla frá Bandaríkjunum og svo
hafa bílar verið sendir með öðrum
félögum til Evrópu. Forsvars-
menn Eimskipa telja sig þar með
hafa losað um stífluna.
Í febrúar og mars var biðtím-
inn eftir bílum til landsins sex til
átta vikur en nú fá kaupendur
amerískra bíla í flestum tilfellum
bílana til landsins innan mánaðar.
„Við önnum þessu þokkalega
núna. Við höfum verið að skoða
ástandið og niðurstaðan hefur
verið sú að bæta eigi ekki við öðru
aukaskipi. Við erum að reyna að
láta þessar ráðstafanir duga,“
segir Höskuldur H. Ólafsson,
aðstoðarforstjóri Eimskipa.
Eimskip og Atlantsskip flytja
inn ameríska bíla með áætlunar-
siglingum sínum, þar af sinnir
Eimskip meirihlutanum en félag-
ið hefur flutt um 120-130 bíla til
landsins á viku upp á síðkastið.
Búist er við að innflutningurinn
dali á næstunni vegna hækkandi
gengis og sumarlokana í verk-
smiðjum.
- ghs
DÓMSMÁL Hannes Hólmsteinn
Gissurarson fer fram á að máli
erfingja Halldórs Laxness gegn
honum vegna brota á höfundar-
rétti verði vísað frá dómi.
Í greinargerð sem Hannes
hefur sent frá sér segir að málinu
beri að vísa frá dómi annars vegar
sökum þess að málið sé vanreifað.
Hins vegar sé réttum aðilum ekki
stefnt þar sem útgefanda bókar
Hannesar hafi ekki verið stefnt en
atbeina hans þurfi til að brot á
höfundarlögum verði fullframið.
Til vara krefst Hannes þess að
hann verði sýknaður af tæknileg-
um ástæðum vegna þess að
refsikrafa sé fyrnd, miskakrafa
ranglega sett fram og skaðabóta
krafist af röngum aðila.
Halldór Þorgeirsson, tengda-
sonur Halldórs Laxness, segir frá-
vísunarkröfu Hannesar ekki koma
á óvart, sú krafa komi upp í flest-
um dómsmálum á Íslandi. „En ég
er persónulega þeirrar skoðunar
að þetta mál hafi gengið of langt og
maðurinn hefði átt að biðjast af-
sökunar og þá hefði málið verið
dautt,“ segir Halldór. - ssal
Struku saman af
Litla-Hrauni
Íslenski öryggisvör›urinn í Írak sat inni á Litla-Hrauni fyrir nau›gun og au›g-
unarbrot. Hann reyndi a› strjúka fla›an me› núverandi yfirmanni sínum,
Donald Feeney. Jón hefur fyrir löngu snúi› vi› bla›inu, a› sögn fö›ur hans.
ÍRAK Jón Ólafsson, öryggisvörður
sem særðist í bílsprengingu í Írak
á laugardaginn var, og yfirmaður
hans Donald Feeney sátu saman á
Litla-Hrauni árið 1993. Jón af-
plánaði þá dóm fyrir nauðgun og
auðgunarbrot og átti þá að baki
nokkra refsidóma fyrir ofbeldis-
brot. Feeney fékk hins vegar
tveggja ára dóm fyrir
að reyna að smygla
tveim ungum systr-
um úr landi sem
voru í umsjá
móður sinnar en faðirinn fékk
Feeney til verksins. Þá tók fyrir-
tæki hans CTU Consulting að sér
verk sem þessi en það er fyrir-
tækið sem Jón vinnur nú fyrir í
Írak.
Í ágúst árið 1993 reyndu þeir
svo að strjúka af Litla-Hrauni en
voru handteknir á flugvellinum í
Vestmannaeyjum, þaðan sem þeir
ætluðu að fljúga til Færeyja.
Morgunblaðið greindi ítarlega frá
þessu á sínum tíma. Þar kemur
fram að Jón, sem þá var 24 ára,
komst úr klefa sínum með því að
dirka upp lás, því næst opnaði
hann fyrir Feeney og saman
spenntu þeir upp lás með röri
og komust þannig út. Líklegast
er að þeir hafi farið til Reykja-
víkur með leigubíl og þaðan
fóru þeir með leiguflugvél frá
Íslandsflugi til Vestmanna-
eyja. Höfðu þeir þá gengið frá
áframhaldandi flugi til Færeyja.
Fram kom að tvímenningarnir
sögðu við starfsfólk Íslands-
flugs að þeim lægi á að komast
til Færeyja, þaðan sem togar-
inn þeirra væri að leggja úr
höfn.
Að sögn Ólafs E. Magn-
ússonar, föður Jóns, lenti
sonurinn í vandræðum
vegna drykkju og komst
þess vegna í kast við lögin. Hann
hafi hins vegar fyrir löngu afplán-
að sinn dóm og snúið frá villu síns
vegar.
Ólafur segist ekki vita til þess
að Jón og Feeney hafi verið mikl-
ir vinir. Jón hafi séð um öryggis-
gæslu á stóru hóteli í Manila á Fil-
ippseyjum í nokkur ár fyrir fyrir-
tæki Feeneys en þeir séu ekki í
persónulegum tengslum í dag svo
hann viti til. – jse
Dæmdur fyrir líkamsárás:
Braust inn og
bar›i konu
DÓMSMÁL Ríflega fertugur maður
var í gær dæmdur í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir að brjótast
síðastliðið sumar inn til fyrrver-
andi sambýliskonu sinnar og
lemja hana í andlitið. Maðurinn
var þegar á skilorði og varð það til
að þyngja dóminn.
Maðurinn játaði brot sitt refja-
laust og sagðist iðrast gjörða
sinna og því þótti unnt að skilorðs-
binda dóminn til þriggja ára. Eins
var manninum gert að greiða kon-
unni miskabætur vegna áverka
sem hún hlaut við árásina.
- oá
ABU FARAJ AL-LIBBI
Handtaka Faraj al-Libby:
Ekki hátt
settur
HANDTAKA Vera má að Abu Faraj
al-Libbi sem handtekinn var í síð-
ustu viku í Pakistan sé ekki eins
hátt settur innan al-Kaída eins og
stjórnvöld halda fram.
Í grein á vefútgáfu The Times
er því haldið fram að al-Libbi hafi
fram að þessu verið aðeins þekkt-
ur fyrir tilræði við Pervez Mush-
arraf, forseta Pakistans. Hins
vegar er Anas al-Liby, sem eins og
al-Libbi er frá Líbíu, eftirlýstur
fyrir sprengjuárásir á bandarísku
sendiráðin í Keníu og Tansaníu
árið 1998 sem jafnan eru talin
verk al-Kaída.
Greinarhöfundar segja að
Bandaríkjastjórn hafi viljandi
ruglað þeim saman til sýna fram á
árangur í „stríðinu gegn hryðju-
verkum“. - shg
Ferðalangur bíður dóms:
Tekinn me›
nammi
TOLLUR Ferðalangur sem kom með
Norrænu til Seyðisfjarðar bíður nú
dóms eftir að hann kom til landsins
með 30 kíló af sælgæti sem hann
keypti um borð. Aðeins er leyfilegt
að hafa með sér þrjú kíló. Maðurinn
bauðst til að borga toll af sælgætinu
en það stóð ekki til boða heldur var
fengurinn gerður upptækur og
manninum rétt 7.500 króna sekt í
staðinn. Undi hann því ekki og dró
einnig í efa að rétt væri vigtað.
Hann bíður þess því að dómur verði
kveðinn upp í málinu fyrir Héraðs-
dómi Austurlands 30. maí næstkom-
andi. – jse
Höfuðborgarsamtökin:
Hafna n‡rri
flugstö›
SAMGÖNGUMIÐSTÖÐ Höfuðborgar-
samtökin hafna áformum um sam-
göngumiðstöð í Vatnsmýri. Þau
telja augljóst að framkvæmdin sé
til þess fallin að festa flugstarfsem-
ina þar í sessi.
Í bréfi sem samtökin sendu frá
sér nýverið kemur fram að stað-
setning nýrrar samgöngumiðstöðv-
ar, sem að mati samtakanna er
ekkert annað en ný flugstöð, falli
ekki vel að almenningssamgöngum
í borginni og sé enn ein fram-
kvæmdin þar sem óþarflega mikl-
um fjármunum sé varið í fram-
kvæmd sem ekki sé í neinum
tengslum við borgarumhverfið. - mh
Ætlar flú a› gerast áskrifandi
a› enska boltanum á n‡rri
sjónvarpsstö›?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hafa flingmenn sta›i› sig vel
á li›num vetri?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
86%
14%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
BÍÐA EIGANDA SÍNS Innflutningur amerískra bíla hefur verið svo mikill að Eimskip þurfti
að kalla inn aukaskip til að anna flutningnum.
R Á Ð G J A F A Þ J Ó N U S T A
Hef opnað ráðgjafaþjónustu
á Laugavegi 43, 3. hæð.
Býð upp á almenna fjölskyldu-
og hjónabandsráðgjöf.
Tímapantanir milli kl. 13 og 15 daglega
í síma 843 0640 eða sendið tölvupóst
á netfangið kinchin@bellsouth.net
með ósk um viðtalstíma.
Karen Kinchin MS LMFT
LÖGREGLUFRÉTTIR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EIGENDALAUS HROSS Sautján
hrossa, sem var bjargað af
Skeiðavegi rétt austan við Selfoss,
virðist ekki vera saknað mikið.
Eigandi þeirra hefur ekki enn haft
samband við lögregluna á Selfossi
til þess að vitja þeirra. Þau eru nú
í girðingu í landi Bitru í Hraun-
gerðishreppi. Eigandinn er vin-
samlegast beðinn um að gefa sig
fram við lögregluna á Selfossi eða
oddvitann í Hraungerðishreppi.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Gæsalappir koma við sögu í dómsmáli erfingja Lax-
ness gegn Hannesi.
FERÐAMENN FORÐAST KRISTJANÍU
Átök eiturlyfjasala og hertar að-
gerðir lögreglu gegn Kristjaníu eft-
ir morðárás í apríl hafa gert það að
verkum að ferðamenn sniðganga
nú fríríkið. Kristjanía hefur undan-
farin ár verið mest sótti ferða-
mannastaður Danmerkur á eftir
Tívolí, en nú veigrar fólk sér við að
heimsækja hippanýlenduna frægu.
JÓN ÓLAFSSON OG DONALD
M. FEENEY Jón lenti í
sprengjutilræði á laugardag-
inn var í Bagdad þar sem
hann vinnur fyrir fyrirtæki
Feeneys. Saman struku þeir af
Litla-Hrauni fyrir tólf árum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
RY
N
JA
R
G
AU
TI
S
VE
IN
SS
O
N
Mál vegna Laxnessbóka Hannesar Hólmsteins:
Málinu ver›i vísa› frá dómi
DANMÖRK