Fréttablaðið - 11.05.2005, Page 12
12 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR LEIKKONA
Fer me› skvísur í fer›alög
„Það er allt frábært að frétta,“
segir Helga Braga Jónsdóttir
leikkona og grínisti, sem leikur
meðal annars í aukasýningu á
Vodkakúrnum í Austurbæ á
föstudag. „Það er allra síðasti
séns fyrir Íslendinga að sjá sýn-
inguna.“
Aðalstarfið hjá Helgu þessa
dagana er þó að undirbúa
kvennaferðir.is ásamt Eddu
Björgvins, en þær stöllur eru í
samstarfi við Icelandair. „Við
förum með skvísur í ferðalög
víða um heim á næstunni,“
segir Helga, en ferðirnar sem
farnar verða í sumar bera allar
heitið „Hlæjum saman“. Tvær óvissu-
ferðir verða farnar nú í júní og segir
Helga konur þegar bíða titrandi eftir að
fá að skrá sig. „Þetta verður
skemmtun frá a til ö. Unnið er
að því að láta konur hlæja eins
mikið og mögulegt er,“ segir
Helga en heimasíðan kvenna-
ferdir.is verður opnuð á næst-
unni. Edda og Helga verða farar-
stjórar og aðalhláturpúkar. Í för
með þeim verður „Eva skvísa,
master of fashion“, sem leiðir
konurnar í heima tískunnar.
Í júlí verða þær Edda með fimm
daga námskeið á Heilsustofnun-
inni í Hveragerði. „Þetta verður
spa, dekur, hlæjum saman nám-
skeið,“ segir Helga, sem ætlar
bæði að ferðast með konum og
ferðast sjálf í sumar. ■
Ræðuhæfni þingmanna:
Össur talinn bestur ræ›umanna
Össur Skarphéðinsson var metinn
besti ræðumaður þingmanna í
eldhúsdagsumræðum í gær-
kveldi. Sigurjón Þórðarson, sem
þótti slakasti ræðumaðurinn í
fyrra, varð nú í öðru sæti.
Reyndir ræðumenn innan JCI-
samtakanna fjölmenntu á þing-
palla í gær og fylgdust með eld-
húsdagsumræðum til að meta
hæfni alþingismanna við ræðu-
höld. Tilefnið var að velja besta
ræðumanninn. „Við lítum til
tækninnar, hvernig þeir koma frá
sér efninu, við viljum fá örlítinn
húmor og horfum á hvernig hann
kemur fyrir í púltinu,“ segir Ingi-
mundur K. Guðmundsson, for-
maður JCI.
Þetta er í annað sinn sem félag-
ið tekur að sér að meta frammi-
stöðu þingmanna í pontu. Í fyrra
var Steingrímur J. Sigfússon val-
inn besti ræðumaðurinn en
frammistaða Sigurjóns Þórðarson-
ar þótti sú slakasta. Í kjölfarið var
honum boðið að sækja námskeið
hjá JCI, sem hann og gerði í janú-
ar, og Ingimundur er sannfærður
um að það hafi borið árangur. „Við
höfum fylgst mikið með honum í
framhaldinu og ég hef séð fram-
farir. Ég átti ekki von á því að
hann yrði aftur neðstur.“ ■
Glerfínar gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
R
V
20
39
Rekst
rarvö
rulist
inn
er ko
minn
út
Sumarið í uppsiglingu:
Pöddurnar vakna af dvala
HLÝINDI Þegar hlýnar í veðri fara
pöddurnar á stjá. Kóngulær
spinna vefi, mýflugur suða í
eyrum og járnsmiðir tölta um
blómabeð. En hvar var allur þessi
fjöldi í vetur? Hvert fór hann og
hvaðan kom hann? Erling Ólafs-
son, skordýrafræðingur á Nátt-
urufræðistofnun Íslands, segir
ekkert eitt svar til við þessum
spurningum. Á landinu séu um
2.000 tegundir af pöddum sem
hver hafi sinn háttinn á. Reglan
sé hins vegar sú að þær liggi í
dvala sem egg, lirfa, púpa eða
fullorðið dýr. Meira að segja inn-
an köngulóa er allur hátturinn á,
sumar eru meira að segja á ferð-
inni um hávetur. Langalgengast
er þó að kvikindin liggi í dvala í
jarðvegi úti við. Ekki þarf því að
hafa áhyggjur af því að þau liggi
í dvala inni í sófum eða stólum
enda kuldi þeim nauðsynlegur.
Mikið er talað um hlýnandi
veðurfar á jörðinni. Erling telur
það hafa áhrif á skordýralíf á Ís-
landi. „Skordýr eru miklir tæki-
færissinnar og eru fljót að bregð-
ast við þegar færi gefst,“ segir
Erling, spurningin sé bara hvort
þau nái að berast til landsins.
„Við erum nú dugleg við að bera
ýmislegt með varningi,“ segir
Erling.
Alltaf eru einhver skordýr að
bætast við fánuna sem fyrir er,
segir Erling. Einnig finnast teg-
undir sem ekki var vitað um að
væru á Íslandi en hafa verið þar
lengi, enda segir Erling að ýmis-
legt nýtt komi í ljós eftir því sem
meira er rannsakað.
solveig@frettabladid.is
SKORDÝRASÉRFRÆÐINGUR Erling Ólafsson segir allan háttinn á hvernig skordýrin verji
vetrinum.
DONALD FEENEY KYNNTIST JÓNI ÓLAFSSYNI Í FANGELSI Á ÍSLANDI:
Strauk
með
Feeney
af Litla-
Hrauni
Íslenski málaliðinn
nauðgaði sextán
ára stúlku í partíi
í Reykjavík
– hefur þú séð DV í dag?
ÍSLENDINGAR EIGA 89.376 HROSS.
Heimild: Bændasamtök Íslands
SVONA ERUM VIÐ
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Var valinn besti ræðumaðurinn í fyrra. Hann gat ekki varið
titilinn, þar sem hann var ekki meðal ræðumanna í eldhúsdagsumræðum í gær.
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON Frammistaða Sig-
urjóns þótti sú slakasta í eldhúsdagsum-
ræðunum í fyrra. Formaður JCI taldi ekki
líklegt að hann yrði valinn aftur í ár.