Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 11.05.2005, Blaðsíða 31
Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærðir þeirra og nýtingu, einnig upplýsingar um hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að við tilboðsgerð er að finna á vefsíðu Akralands www.akraland.is Þar er einnig að finna nauðsynleg gögn sem tilboðsgjafar þurfa að kynna sér, s.s. tilboðsskilmála, tilboðsskrá og sölu- og skipulagsskilmála. Komnar eru í sölu frábærar eignarlóðir í Akrahverfi, hverfið er vel staðsett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ. Þetta eru góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu með fljótfarnar umferðaræðar til allra átta. Um er að ræða 49 lóðir sem seldar verða í tveimur hlutum og gert er ráð fyrir að þær verði byggingarhæfar í október á þessu ári. Tilboðum í 26 lóðir sem eru í fyrrihlutanum skal skila eigi síðar en föstudaginn 20. maí 2005 kl. 15:00 og í lóðir í seinnihlutann eigi síðar en föstudaginn 3. júní kl. 15:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Akralands þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar um lóðirnar. Fasteignasölurnar Borgir og Eignamiðlun munu einnig annast milligöngu um sölu lóðanna og geta þeir sem hafa áhuga snúið sér þangað. gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík sími 599 4000, fax 599 4001 Tilboðsfrestur 20. maí Tilboðsfrestur 03. júní hz et a www.akraland. is Haustakur Hvannakur Hjálmakur Jafnakur Krossakur Kaldakur Kornakur MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 7 Ú T L Ö N D OLÍU DÆLT ÚR JÖRÐU Hin olíuríku lönd við Persaflóa íhuga nánara samstarf í efna- hagsmálum og taka hugsanlega upp sameiginlega mynt. Sex ríki við Arabíuskaga: Búa sig undir myntbandalag Nokkur helstu stórveldi í olíu- framleiðslu í heiminum stefna að því að nota sameiginlegan gjald- miðil fyrir árið 2010. Þessi ríki vilja einnig koma á fríverslunar- samningi við Bandaríkin. Ráðherrar frá Sádi-Arabíu, Kúvæt, Barein, Katar, Óman og Sameinuðu arabísku furstadæm- unum hittust á fundi í síðustu viku til að ræða áframhaldandi samvinnu í efnahagsmálum. Fyrir fjórum árum samþykktu ríkin að stefna að því að taka upp sameiginlega mynt á svipaðan hátt og varð í Evrópu með til- komu evrunnar. VARNAÐARORÐ FRÁ GREENSPAN Seðlabankastjórinn bandaríski fylgist grannt með húsnæðismarkaði, eins og þeir íslensku. Bandarísku íbúðalána- sjóðirnir: Fari varlegar í fjárfestingum Alan Greenspan, bankastjóri bandaríska seðlabankans, varaði enn og aftur við umsvifum tveggja stórra íbúðalánasjóða í Bandaríkjunum í ræðu á Banda- ríkjaþingi í síðustu viku. Greenspan hefur gagnrýnt umsvif Freddie Mac og Fannie Mae sjóðanna að undanförnu og lýst áhyggjum af mikilli áhættu sem sjóðirnir búa við vegna fjárfestinga sinna í hlutabréfum og þátttöku í áhættusömum fjár- festingum og afleiðuviðskiptum. Báðir íbúðalánasjóðirnir bandarísku voru settir á fót af stjórnvöldum en Greenspan tel- ur að umsvif þeirra séu meiri en nauðsynlegt sé þar sem bankar og aðrar fjármálastofnanir geti tekið að sér stærri hlut á íbúða- lánamarkaði. - þk Horfurnar hjá stóru bílafyrir- tækjunum í Bandaríkjunum versnuðu enn í síðustu viku þegar matsfyrirtækið Standard & Poor's breytti ráðleggingum sínum varðandi skuldabréf fyrir- tækjanna. Ráðgjafafyrirtæki meta hversu líklegt sé að fyrirtæki endurgreiði lán sem þau taka með skuldabréfaútgáfu. Ef mats- fyrirtækjum líst illa á framtíðar- horfur fyrirtækjanna hefur það þau áhrif að lánveitendur heimta hærri vexti á lánum til fyrirtækj- anna. Í síðustu viku gaf Standard & Poor's það út að fjárfestar ættu að líta á skuldabréf frá General Motors og Ford sem „rusl“, en slík skuldabréf eru talin áhættu- söm en fjárfestar fá í stað áhætt- unnar hærri vexti á lánin. Tíðindin urðu til þess að bréf í General Motors féllu hraustlega en áhrifin á Ford voru minni. Breytt áhættumat á skuldir bíla- fyrirtækjanna er enn eitt áfallið fyrir bandarískan bílaiðnað en sala hjá bæði Ford og General Motors hefur farið lækkandi á fyrstu mánuðum ársins. Bæði Ford og General Motors skulda háar fjárhæðir. Skuldir General Motors nema 292 millj- örðum dala – sem samsvarar um nítján þúsund milljörðum ís- lenskra króna. Skuldir Ford nema ríflega tíu þúsund milljörð- um króna. Hærri vextir á þessi lán munu því vega þungt í rekstri fyrirtækjanna. - þk Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 393,16 Lev 42,3 7,2% Carnegie Svíþjóð 74 SEK 9,04 1,0% deCode Bandaríkin 7,05 USD 64,6 26,8% EasyJet Bretland 2,3925 Pund 121,69 11,8% Finnair Finnland 6,4 EUR 82,92 3,7% French Connection Bretland 2,5 Pund 121,69 5,2% Intrum Justitia Svíþjóð 50,75 SEK 9,04 4,1% Low & Bonar Bretland 1,15 Pund 121,69 -1,7% NWF Bretland 5,45 Pund 121,69 24,0% Scribona Svíþjóð 13,65 SEK 9,04 -1,6% Singer & Friedlander Bretland 3,1125 Pund 121,69 1,6% Skandia Svíþjóð 35,3 SEK 9,04 5,9% Somerfield Bretland 2,0075 Pund 121,69 2,9% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiða 9. maí 2005 Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 5 , 9 6 + 5 , 9 6 %Óveðursskýin hrannast upp Vandi Ford og General Motors heldur áfram að vaxa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.