Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 36

Fréttablaðið - 11.05.2005, Side 36
Ótrúlega mörg gjaldþrot hafa einkennt starf- semi auglýsingastofa undanfarin ár. Þeir sem til þekkja segja þetta samt ekkert nýtt þegar kemur að auglýsingastarfsemi; menn hafi verið duglegir við að skilja við rekstur í skuldum og stofna nýjar stofur. Fyrirtækin Mekkanó og ABX eru nefnd í þessu samhengi og síðustu vikurn- ar hefur auglýsingastofan Gott fólk McCann róið lífróður. Sú stofa var ein sú stærsta upp úr aldamótunum og unnu þar um sjö- tíu manns þegar mest var. Gunnlaugur Þráinsson, fram- kvæmdastjóri Góðs fólks, segir nú búið að tryggja áframhaldandi rekstur. Stofan standi vel að vígi faglega og áætluð velta á þessu ári sé um 650 milljónir. Lykillinn var að fá inn nýtt hlutafé og skuldir niðurfelldar að hluta. Er Karl Wernersson nú orðinn meirihluta- eigandi í Góðu fólki eftir að hafa lagt stofunni til hlutafé. Þó einhverjar auglýsingastofur hafi ekki farið á hausinn leiddi erfiður rekstur til þess að þær sameinuðust öðrum. Er það eitt aðaleinkenni þessa markaðar, sé þróun síðustu tuttugu ára skoðuð. Það er ekki ósvipað og í öðrum at- vinnugreinum, segja stjórnendur þessara stofa, enda finni þessi bransi fyrst fyrir sam- drætti í atvinnulífinu þótt uppgangurinn skili sér einnig fljótt í sjóði fyrirtækjanna. Eins og sjá má á mynd neðst á opnunni hafa hræringar í starfsemi auglýsingastofa verið miklar. Allar stofurnar byggja á göml- um grunni eftir að hafa sameinast öðrum eða yfirtekið erfiðan rekstur. Annað sem einkennir þessa starf- semi er flótti lykil- starfsmanna frá fyrir- tækjum vegna ágrein- ings eða vonar um betri tíð í sjálfstæðum rekstri. Er það meðal annars grunnurinn að rekstri Íslensku aug- lýsingastofunnar, Fít- ons og ENNEMM. ÆTLA AÐ EYÐA MEIRU Framkvæmdastjórar auglýsingastofa eru bjartsýnir á árið fram undan. Veltan á síðasta ári var helmingi hærri en árið áður, samkvæmt virðisaukaskýrslum sem Hagstofan vinnur upplýsingar upp úr. Fyrirtæki leggja meiri áherslu á markaðsmál og vilja eyða meiri peningum í þennan þátt starfseminnar. Fjörutíu prósent markaðs- stjóra búast við að auglýsingakostnaður þeirra verði meiri á þessu ári en því síðasta. Er það hæsta hlutfall sem mælst hefur frá því að IMG Gallup hóf að mæla væntingar þeirra síðan árið 1999. Þrátt fyrir útlit um meiri veltu á auglýs- ingamarkaði hefur stofum frekar fækkað en fjölgað. Aðeins sjö auglýsingastofur eru skráðar í Samtök íslenskra auglýsingastofa, en þær voru fleiri fyrir um fimmtán árum. Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmdastjóri SÍA, segir markaðinn ekki bjóða upp á fleiri stórar stofur sem veiti heildarþjónustu við markaðssókn. Fjöldi sameininga síðustu ár hafi líka áhrif í þessa átt. Þetta sé því ekki áhyggjuefni. Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, segir rekstur auglýsingastofa á hverjum tíma endurspegla efnahagsástand- ið. Þegar vel ári sé mikið að gera en um- fangið minnki hratt í niður- sveiflu. Sveigjanleiki verði að vera í þessum rekstri. Baráttan um viðskipta- vinina sé samt alltaf hin sama, og stof- urnar reyni að ná betur til þeirra með því að bjóða víðtækari þjón- ustu. LÍTIÐ EIGIÐ FÉ Jónas Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Íslensku auglýsingastofunnar, seg- ir rekstrarlegar forsendur oft óraunhæfar hjá fyrirtækjum í þessum bransa. Aðalástæðan fyrir erfið- leikunum sé að lítið eigið fé fái að byggjast upp. Menn hugsi of mikið um vöxtinn og gefi sér ekki tíma til að vinna hægt og rólega upp eigið fé. Þessi fyrirtæki beri ekki miklar vaxtagreiðsl- ur og því þurfi eigið fé að vera viðunandi. Eins hafi ótímabærar sameiningar leitt menn í ógöngur. Jónas bendir á að í flestum tilvikum séu það eigendurnir sjálfir sem vinni á auglýsingastofum og byggi þær upp. Ekki sé mikið af utanaðkomandi fjárfestum í þessari at- vinnugrein eins og kanns- ki í mörgum öðrum. Lyk- illinn sé að hafa marga góða kúnna til að þola sveiflur í efnahagslífinu. Minni stofur hafi ekki slíka viðskiptavini og þoli sveiflur verr. Eiríkur Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Him- ins og hafs, segir að þeir sem ekki hafi brugðist rétt við í niðursveiflunni 2000 hafi farið á hausinn. Lítið hafi verið eftir af rekstrinum. Það hafi verið síðasta höggið sem mark- aðurinn hafi fengið og menn séu við öllu búnir núna. Hann segir eigendur ekki bera neinar gríðar- legar upphæðir úr býtum í þessum bransa. Mun minna sé greitt fyrir þjón- ustu auglýsingastofa hér á landi en fyrir sambærileg MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005 MARKAÐURINN12 Ú T T E K T Velta stærstu auglýsingastofanna jókst um helming í fyrra. Þær eru nú stærri og bjóða víðtækari þjónustu voru oft ekki sársaukalausar og einkenndust annars vegar af sameiningum og hins vegar af sundrung. Bj að afkoma auglýsingastofa muni stórbatna á þessu ári. Auglýsingafólk sundrast og BAKGRUNNUR STARFANDI AUGLÝSINGASTOFA SAMEINING/YFIRTAKA KLOFNINGUR Stærstu stofurnar Innan Samtaka íslenskra auglýsingastofa (SÍA) eru sjö stofur. Þurfa þær að uppfylla viss skilyrði sem stjórn samtakanna setur. Oft hafa stofur innan SÍA verið fleiri en þeim fækkaði nokkuð upp úr síðustu alda- mótum þegar margar hættu starfsemi eða sameinuðust öðrum. Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmda- stjóri SÍA, segir að gróft á litið megi skipta auglýsingastofum í þrennt. Fyrst beri að nefna sjálfstæða verktaka sem taki að sér ýmis verkefni og vinni einfalda hönnunar- vinnu. Þar á eftir komi minni auglýsinga- stofur með tvo til fimm starfsmenn. Þær hanni auglýsingar og bjóði upp á einhverja viðbótarþjónustu. Stærri stofur, sem bæði séu innan SÍA og utan, leggi sig fram um að bjóða heildarþjónustu við auglýsingar og markaðsstarf. Innan þeirra fari fram rann- sóknarvinna og greining á markaðnum til að ná betur til markhópsins. Ingólfur segir ekki óeðlilegt að sjö stofur séu innan SÍA miðað við stærð markaðarins. Um fimmtán stofur hafi stærð og getu til að vera innan samtakanna. Stundum hefur rætt um að stofna regnhlífasamtök fyrirtækja í samskiptaiðnaði. Ekkert sé hins vegar ákveðið í þeim efnum. Stofur innan SÍA velta (millj. kr.) Íslenska auglýsingastofan 1.463 Fíton ehf. 1.062 Hvíta húsið 953 ENNEMM 813 Himinn og haf 300 Hér & nú 260 Hausverk 120 Aðrar stofur Argus Gott fólk McCann Jónsson & Le'mack Augl.st. Guðrúnar Önnu Fjörutíu prósent markaðsstjóra bú- ast við að auglýs- ingakostnaður þeirra verði meiri á þessu ári en því síðasta. Það er hæsta hlutfall sem mælst hefur frá því að IMG Gallup hóf að mæla vænting- ar þeirra árið 1999. Milljarðar 6,5 5,5 4,5 3,5 2,5 1,5 ■ Níu stærstu fyrirtækin ■ Atvinnugreinin í heild V E L T A Í A U G L Ý S I N G A S T A R F S E M I 2002 2003 2004 Heimild: Hagstofa Íslands. Velta án virðisaukaskatts. Uppl. fengnar úr virðisaukaskattsskýrslum Rek frá Góð Ólafur Stephensen rak augl hann stofnaði Gott fólk. Þega fólks, þeir Kristján Friðrikss óskuðu eftir að gerast meðeige ur þeim uppsagnarbréf með þ þeir þá á fund helsta viðskipt sonar, þá forstjóra Skeljungs, lýsingastofuna Svona gerum síðar Oktavó og hefur e auglýsingastofan. Er ingastofa lands velt ARGUS ARGUS GH GULLNA HLIÐIÐ ARGUS ÖRKIN ARGUS ÖRKIN ENN – EMM HÉR OG NÚ AUK AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR MEKKANÓ ABX HIMINN OG HAF NONNI OG MANNI YDDA XYZ BIRTINGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.