Fréttablaðið - 11.05.2005, Qupperneq 60
„Blakið er að koma mjög sterkt
inn hjá okkur, við urðum meðal
annars Íslandsmeistarar í meist-
araflokki karla. Í fyrra náðum við
okkar besta árangri í knattspyrnu
karla, þar sem við urðum í þriðja
sæti í fyrstu deildinni,“ segir Elsa
Hrönn Reynisdóttir, fram-
kvæmdastjóri HK.
„Við erum búnir að vera fram-
arlega í handknattleik karla í mörg
ár í meistaraflokki og sér ekki
fyrir endann á því. Stefnt er að því
að stofna meistaraflokk kvenna í
handbolta og HK er í samstarfi við
Víkinga í fótbolta kvenna. Þar
hefur okkur gengið með miklum
ágætum. HK opnaði nýja búnings-
og vallaaraðstöðu í Fagralundi í
Fossvogsdalnum síðastliðið sumar
og þá vorum við meðal fyrstu
félaga til að opna strandblakvöll,
þannig að ljóst er að starfið er
mjög blómlegt hjá HK um þessar
mundir,“ segir Elsa.
24 11. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Opið: Mánud.-Föstudag 06:00 - 18:00
Laug. 06:00 - 17:00 Sunn. 07:00 - 17:00
Opið: Mánud.-Föstudag 08:00 - 18:00
Laug. 08:00 - 16:00 Sunn. 09:00 - 16:00
„Grunnskólar í Kópavoginum
tóku stórtækum breytingum 1997
þegar þeir voru einsettir. Kópa-
vogur var fyrsta stóra sveitar-
félagið til að ljúka einsetningu
grunnskólanna. Það var visst
afrek að ná því um leið og byggð-
ur var fjöldinn allur af öðrum
grunnskólum vegna þess að
Kópavogur var að stækka mjög
hratt,“ segir Ármann Kr. Ólafs-
son, bæjarfulltrúi og formaður
skólanefndar hjá Kópavogsbæ.
„Við þurftum, jafnframt
öðrum breytingum, að stækka
eldri skólana og erum að ljúka því
verki um þessar mundir. Allar
þessar breytingar hafa gengið
mjög vel og skólastjórnendur eru
ánægðir að geta nú með mark-
vissari hætti keypt sér þá þjón-
ustu sem hver og einn skóli þarf á
að halda. Við erum nú að byggja
nýjan skóla upp í Vatnsenda-
hverfi sem tekur til starfa nú í
haust. Þar verður sérstök áhersla
lögð á að nýta þá miklu náttúru
sem umlykur skólann.
Í upphafi þessa kjörtímabils
vann skólanefnd að nýrri skóla-
stefnu fyrir Kópavogsbæ sem
tekur mið af auknu sjálfstæði
skólanna. Má í því sambandi nefna
að nú geta krakkar sótt skóla
annað en í sitt eigið skólahverfi.
Nú er til athugunar að stofna sér-
stakt rekstrarfélag um einn af
eldri skólum bæjarins (Kópavogs-
skóla). Þá erum við að tala um að
ganga skrefinu lengra þar sem
skipuð yrði sérstök stjórn yfir
skólanum sjálfum og foreldrar
yrðu í stjórninni. Að mörgu leyti
mætti líkja hlutverki stjórnarinn-
ar við hlutverk stjórna í fyrirtækj-
um,“ segir Ármann.
„Iðkendafjöldinn í íþróttagrein-
um á vegum Breiðabliks hefur
tvöfaldast, t.d. er knattspyrnu-
deildin með helmingi fleiri iðk-
endur í dag heldur en árið 2001.
Þeirri fjölgun má eflaust þakka
Fífunni, hinu yfirbyggða knatt-
spyrnuhúsi,“ segir Kristján Jón-
atansson framkvæmdastjóri
Breiðabliks.
„Í Fífunni er nú mun betri að-
staða fyrir alla, sérstaklega yngri
flokkana og nú stendur til að fara
að byggja nýja knattspyrnuhöll í
Kópavogi í samvinnu við knatt-
spyrnuakademíu Íslands.
Ánægjulegt er hversu Kópavogs-
bær hefur verið duglegur við
uppbyggingu íþróttamannvirkja
undanfarin ár. Geta má þess að í
haust verður byrjað á því að nið-
urgreiða æfingagjöld fyrir
iðkendur íþróttagreina sem gæti
numið allt að 10.000 krónum fyrir
hverja grein.
Íþróttafélagið Breiðablik er
fimm árum eldra en bæjarfélagið.
Breiðablik var stofnað árið 1950
og var sérstök afmælishátíð af því
tilefni í febrúar síðastliðnum, en
Kópavogur fékk kaupstaðarrétt-
indi 1955,“ segir Kristján. ■
Fjölgun í öllum greinum
HK stækkar me› hverju árinu.
Löng hefð er fyrir kvennafótbolta í Breiðabliki.
Salaskóli er nýjasti skólinn í Kópavogi.
HK hefur verið meðal bestu liða í meist-
araflokki í handknattleik undanfarin ár.
KÓPAVOGUR Í 50 ÁR
Ört vaxandi íflróttafélag
Brei›ablik er me› á flri›ja flúsund skrá›a i›kendur.
Þjóðsagan um slæmt gatnakerfi í Kópavoginum á engan veginn rétt á sér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Slæmt gatnakerfi er
gamall brandari
Umfer›in gengur vel í Kópavogi.
Langt er síðan umræða um slæmt
gatnakerfi í Kópavoginum átti
rétt á sér. Það er frekar að því sé
öfugt farið í nýjum hverfum
bæjarins þar sem lögð er rík
áhersla á að leysa úr umferðar-
vandamálum.
Allt tal um slæmt gatnakerfi í
Kópavoginum er gömul þjóðsaga
sem er löngu útdauð, þetta er eins
og gamall brandari sem á engan
veginn við í dag. Segja má að
miklar samgöngubætur hafi orðið
þegar brýrnar voru byggðar í
tengslum við gjána,“ segir Gunn-
steinn Sigurðsson, forseti bæjar-
stjórnar og formaður skipulags-
nefndar í Kópavogi.
„Flestir eru sammála um að
gatnakerfið í nýjum hverfum sé
til fyrirmyndar enda leggjum við
mikla áherslu á að umferðin sé í
góðu lagi við þéttingu byggðar í
Kópavoginum. Í framtíðarsýn
okkar hjá bæjarstjórn Kópavogs
eru skoðaðar fjölmargar og nú-
tímalegar aðferðir til að leysa úr
vanda sem myndast við aukna um-
ferð, áður en ákvörðun er tekin,“
segir Gunnsteinn.
Auki› sjálfstæ›i skólanna
Sjálfstæ›i skólanna í Kópavogi hefur markvisst veri› auki›, rekstrarsamningar
ger›ir vi› hvern einstakan skóla, yfirbygging skólaskrifstofu Kópavogsbæjar
minnku› og störf hennar fær› út til skólanna sjálfra.