Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.05.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Nýtt kortatí mabil í BT FORMANNSKJÖRIÐ Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar var sagt upp störfum fyrir að hafa brotið trúnað varðandi við- kvæmar upplýsingar um flokks- skrá Samfylkingarinnar. Starfsmaðurinn sendi hluta af flokksskránum á rafrænu formi á eigið tölvupóstfang utan flokksskrifstofunnar en það samræmdist ekki vinnureglum sem starfsmanninum var skylt að fara eftir. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var talið að starfsmað- urinn hefði afhent stuðnings- mönnum Össurar Skarphéðins- sonar í formannskjörinu gögnin en ekki tókst að sýna fram á það með óvéfengjanlegum hætti. Starfsmaðurinn hefur leitað lögfræðiaðstoðar þar sem hann telur að á sér hafi verið brotið með því að fara í gegnum tölvu- póstsendingar sínar. Það stríði gegn lögum um persónuvernd. Stefán Jón Hafstein, formað- ur framkvæmdastjórnar Sam- fylkingarinnar, staðfesti að starfsmaðurinn hefði verið lát- inn fara. „Ég sé engum tilgangi þjóna að skýra frá því hvers vegna starfsmaðurinn er ekki lengur við störf hjá Samfylking- unni. Hins vegar er alveg ljóst að ekkert hefur gerst sem hefur haft áhrif á kosninguna eða gert hana tortryggilega,“ segir Stefán Jón. - sda Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar sagt upp: Sendi út vi›kvæmar uppl‡singar SPRENGIDAGUR í debenhams kl. 8-22 AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FATNA‹I OG HEIMIliSVÖRUM 15% AFSLÁTTUR AF SNYRTIVÖRUM 25% bara í dag 12. MAÍ 2005 TVEGGJA STAFA HITATÖLUR Hlýindin eru að koma. Bjart með köflum og úrkomulítið eða jafnvel alveg úrkomulaust. Hiti 7-15 stig að deginum, hlýjast austan til. VEÐUR 4 FIMMTUDAGUR Rokkið er ekki dautt Margir syrgðu dauða rokk- stöðvarinnar X- sins. Nú er kom- ið í ljós að ekki var um dauða að ræða heldur einungis þriggja mán- aða blund. UNGA FÓLKIÐ 48 12. maí 2005 - 126. tölublað – 5. árgangur Ferskleiki og gæði íslenskrar matvöru gerir hana að úrvals kosti fyrir heimilin í landinu. Stjarnan í stórsókn Tveir af bestu handbolta- mönnum síðasta tímabils hér á landi, stórskyttan Tite Kalandadze og markvörð- urinn Roland Eradze, hafa ákveðið að yfirgefa ÍBV og gera risa- samninga við við Stjörnuna. ÍÞRÓTTIR 38 Óánægja með leiðakerfi Björn Finnsson segir að með nýju leiðakerfi Strætó verði íþrótta- og útivista- svæði Laugardalsins meðal þess sem tek- ið verði úr sambandi í almennings- samgöngum. SKOÐUN 26 Skipti á gallabuxum og le›urjakka FREYJA VALSDÓTTIR: Í MIÐJU BLAÐSINS ● tíska ● ferðir ● heimili ● sérsmíðaðar brúður í Stundinni okkar Hljómsveitir í sta› Gísla Marteins BREYTINGAR Í SJÓNVARPINU: ▲ FÓLK 54 VEÐRIÐ Í DAG ▲ LISTAHÁTÍÐ NÁLGAST Í Viðey hefur nú verið lokið við uppsetningu á Blinda skálanum, verki Ólafs Elíassonar sem vakti mikla athygli á Feneyjatvíæringnum árið 2003. Verkið verður til sýnis úti í Viðey í allt sumar í tengslum við Listahátíð Reykjavíkur, sem hefst nú á laugar- daginn með miklum látum. Könnun um R-listann: Meirihluti vill hann áfram SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti lands- manna styður áframhaldandi samstarf Reykjavíkurlistans, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 61 prósent þeirra sem tóku afstöðu til spurningar- innar taldi það rétt að flokkarnir sem standa að R-listanum bjóði aftur fram saman til borgar- stjórnar. 39 prósent voru því andvíg. Af þeim íbúum höfuðborgar- svæðisins sem jafnframt segjast myndu kjósa Framsóknarflokk, Samfylkingu eða Vinstri græna, væri boðað til kosninga nú, styðja 52,3 prósent áframhald- andi líf R-listans. 47,7 prósent eru því andvíg. Stefán Jón Hafstein segist mjög ánægður með að heyra að R- listinn hafi sama fylgi í þessari könnun og í kosningum, þrátt fyrir mörg erfið mál á kjörtíma- bilinu. „Ég túlka það sem svo að R-listinn eigi mikil sóknarfæri ef hann heldur rétt á sínum málum.“ -ss/ sjá síðu 4 Alþingi komið í sumarfrí: Vegaáætlun a› veruleika ALÞINGI Þing- menn lögðu blessun sína yfir sam- gönguáætlun Sturlu Böðv- arssonar sam- g ö n g u r á ð - herra áður en þeir fóru í frí í gær. Áætlunin nær til næstu fjög- urra ára og verður á fram- kvæmdatímanum hafist handa við Héðinsfjarðargöng. Mikill styr hefur staðið um vegamál á Alþingi síðustu vikur og telja margir þingmenn höfuð- borgarsvæðisins að það sé látið mæta afgangi þegar fjárveitingar til vegamála eru ákveðnar. Gögn frá Vegagerðinni staðfesta þetta. Sjá síðu 22 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Úr flokknum vegna samskiptaör›ugleika Gunnar Örlygsson flingma›ur hefur sagt sig úr Frjálslynda flokknum. Hann ber vi› málefnaástæ›um og samskiptaör›ugleikum. fiingflokkforma›ur Frjálslyndra kannast ekki vi› flennan ágreining. VISTASKIPTI Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokks- ins, sagði sig úr flokknum í gær og óskaði eftir inngöngu í þing- flokk Sjálfstæðisflokksins. Hann gaf út yfirlýsingu um þetta á Alþingi í gærkvöldi. Hann sagði að til grundvallar lægju málefnalegar ástæður. „Einnig er því ekki að leyna að samskiptaörðugleikar gera það að verkum að ég á ekki leng- ur samleið með þingflokki Frjálslynda flokksins. Þetta hef ég tilkynnt formanni flokksins.“ Gunnar sagði að á síðasta landsfundi Frjálslynda flokksins hefði hann freistað þess að hafa áhrif á stefnumótun flokksins til framtíðar. „Í öllum stjórnmála- flokkum og í samskiptum fólks er nauðsynlegt að til staðar sé gagnkvæmt traust, drengskapur og umburðarlyndi. Á það hefur skort innan þingflokksins. Þegar það fer saman við málefnalegan ágreining eru ekki forsendur til frekara samstarfs og ég hlýt því að kveðja flokkinn og þá félaga mína sem starfa þar áfram.“ Gunnar segist telja að hann geti fundið skoðunum sínum bestan farveg í Sjálfstæðisflokknum. Magnús Þór Hafsteinsson, formaður þingflokks Frjáls- lynda flokksins, kveðst ekki kannast við samskiptaörðug- leika og heldur ekki málefnaá- greining. „Gunnar hefur gagn- rýnt ríkisstjórnina og stjórnar- flokkana rétt eins og við.“ Magn- ús segir að Gunnar hafi á sínum tíma ekki komið fram af heilind- um þegar ljóst varð að hann yrði að taka út refsingu vegna brota sinna. „Þetta gerðist eftir að Gunnar varð þingmaður. Hann fór á bak við okkur og ég gagn- rýndi hann fyrir það,“ segir Magnús. Guðjón A. Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, sagði að Gunnar hefði gert grein fyrir óánægju sinni á mánudag: „Hann verður sjálfur að útskýra í hverju hún liggur“. - jh STURLA BÖÐVARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.