Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 24
Guðmundur Ólafsson hagfræð- ingur kom einu sinni sem oftar inn á skrifstofuna mína í Odda glaður og reifur og settist í sófann. ,,Veizt þú, Þorvaldur minn, hvað við Albert og Ey- steinn eigum sameiginlegt?” Svona eiga samtöl að hefjast, hugsaði ég með mér, en svarið við spurningunni vissi ég ekki. Albert Guðmundsson knatt- spyrnukappa og síðar fjármála- ráðherra þekkti ég ekki af eigin raun, en Eysteini Jónssyni ráð- herra mundi ég vel eftir, hann kom stundum heim að rífast við pabba, t.d. þegar vinstri stjórnin var að því komin að springa 1958 og húsið skalf, af því að Eysteinn var svo æstur, og pabbi líka. Guð- mundur svaraði spurningunni sjálfur: ,,Við erum fóstursynir Jónasar.“ Þannig var, að Guð- mundur var barn að aldri heima- gangur hjá Jónasi fyrir vinskap móður sinnar við dóttur Jónasar. Jónas gaf sig að drengnum, hann hændist að ungu fólki. Og árin líða. Guðmundur kemst á ung- lingsár og siglir þungan sjó og fær þá skyndilega boð um skóla- vist í Menntaskólanum á Akur- eyri og þekkist það og lýkur stúdentsprófi með sóma. Skýringin á boðinu um vistina fyrir norðan reyndist vera sú, að Þórarinn Björnsson skólameist- ari hafði fengið símhringingu að sunnan. Það var Jónas að biðja meistarann fyrir umkomulausan strák, sem Menntaskólinn í Reykjavík hefði ekki burði til að koma til manns og mennta. ,,Þetta var það eina, sem Jónas frá Hriflu bað Menntaskólann á Akureyri um, og því varð ekki hafnað,“ sagði Þórarinn síðar. Jónas hafði á ráðherraárum sín- um 1927-31 átt frumkvæði að stofnun Menntaskólans á Akur- eyri, öðrum þræði til höfuðs embættisvaldinu fyrir sunnan og þá um leið gegn Menntaskólan- um í Reykjavík. Þannig var Jónas, þegar því var að skipta: yndislegur. Hann gat líka verið harður í horn að taka, svo harður, að Ís- land logaði stafnanna á milli í ill- deilum fyrir tilstilli Jónasar. Hann var Sturlungaöldin endur- borin í einum manni. Hann fór vel af stað, upptendraður af brezkum eldmóði. Hann stofnaði ásamt öðrum Alþýðuflokkinn handa verkamönnum og sat í stjórn flokksins fyrsta kastið eins og Guðjón Friðriksson rifj- aði upp á málþingi í Háskólanum í Bifröst 1. maí. Síðan stofnaði Jónas með öðrum Framsóknar- flokkinn handa bændum og helg- aði honum ómælda krafta sína, þangað til flokksmenn fengu meira en nóg af ráðríki hans og tjörguðu hann og fiðruðu fyrir miðjan aldur. Guðjón telur, að kaupmenn og aðrir hafi ekki þorað annað en að stofna Sjálf- stæðisflokkinn 1929 til að reyna að sporna gegn áhrifum Jónasar. Honum dugði ekki minna en að stofna þrjá flokka. Ísland var harpa, og hann var hörpuleikar- inn. Jónas lauk ekki prófum eftir námsdvalir sínar í útlöndum, eins og Helgi Skúli Kjartansson lýsti í Bifröst, en hann rækti sjálfan sig m.a. með tíðum utan- ferðum. Bændur lögðu margir mikla rækt við menntun sína á fyrstu áratugum 20. aldar: þeir lásu saman útlendar bækur á lestrarfélagsfundum og fóru út að afla sér frekari upplyftingar. Þá þyrsti í erlendan fróðleik og fyrirmyndir, þótt þeir kysu að bægja frá sér erlendri sam- keppni og læsa landið í viðskipta- viðjar eftir 1920. Jónas var eigin- lega opingáttarmaður innst inni eins og margir bændur, þótt hann yrði helzti holdgervingur inni- lokunarstefnunnar. Hann kom víða við, var lengi blaðamaður meðfram stjórnmálastörfum og skólamaður og uppfræðari fram í fingurgóma: hann rækti þá köll- un alla ævi og hafði að mörgu leyti holl áhrif á framgang fræðslumálanna, eins og Helgi Skúli lýsti vel á málþinginu. Flokkakerfið, sem Jónas lagði grunninn að og flutti inn að utan, stendur enn í stórum dráttum. Höfuðkenning hans um þjóð- félagsmál um yfirburði sveit- anna og lykilhlutverk þeirra í samfélagsgerðinni reyndist á hinn bóginn röng og virtist hvíla á rómantískri óskhyggju og for- tíðarfíkn og þeirri skoðun, að börnum væri hollast að alast upp í sveit. Jónas vanmat áhrif tækni- framfara á sveitirnar. Honum sást yfir það, að vélvæðing land- búnaðarins myndi smátt og smátt draga svo úr þörfinni fyrir vinnuafl til sveita, að þungamiðja atvinnulífs og menningar hlyti að færast í þéttbýli. Og þó: kannski sá hann það fyrir, því að honum tókst ásamt öðrum að búa svo um hnútana, að fulltrúar dreifðra byggða hafa í reyndinni ráðið mestu um landsstjórnina fram á þennan dag, enda þótt mikill og sívaxandi hluti þjóðarinnar hafi þjappað sér æ þéttar saman fyrir sunnan. ■ Í slendingar stæra sig stundum af því að vera framarlega íjafnréttismálum. Ýmislegt bendir þó til þess að við séumaftar á merinni á þessu sviði en þau lönd sem við helst berum okkur saman við. Til dæmis vinna íslenskir karlmenn miklu lengri vinnudag en karlmenn í Evrópusambandslöndunum og 11,2 klukkutímum lengur að meðaltali en íslenskar konur. Þetta kemur í ljós þegar tölur um vinnuviku Íslendinga frá Hagstofu Íslands eru bornar saman við nýja vinnumarkaðskönnun Evrópusam- bandsins sem nær til 25 Evrópuríkja. Samkvæmt rannsókn Evrópusambandsins vinna Norðmenn stysta vinnuviku í Evrópu, 38,6 tíma á viku, en Lettar þá lengstu, 43,1 tíma á viku. Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá síðasta ári vinna Íslendingar 42 stundir á viku að meðaltali og væru því í þriðja sæti ef þeir hefði verið með í könnuninni, á eftir Bretum sem vinna 43,1 stund á viku. Rúmenar kæmu næst á eftir Íslend- ingum en þeir vinna 41,8 stundir á viku samkvæmt könnun Evr- ópusambandsins. Ekki er að sökum að spyrja að Íslendingar vinna mest Norðurlandaþjóða og eru einir Norðurlandabúa um að vinna lengri vinnuviku en 40 stundir. Svíar eru þó nálægt því og vinna 39,9 stundir. Það sem er mest sláandi er hversu löng vinnuvika íslenskra karla er samanborið við vinnuviku karla í Evrópusambandslönd- unum. Meðan íslenskir karlmenn vinna 47,1 klukkutíma að meðal- tali á viku vinna karlar í Evrópusambandslöndunum 41 klukku- tíma á viku. Inni í því meðaltali eru öll ný aðildarríki Evrópusam- bandsins en vinnuvika er yfirleitt lengri í jaðarríkjum sambands- ins en í „gömlu“ ríkjunum. Tölurnar frá Evrópusambandskönnun- inni ná þó eingöngu til þeirra sem eru ráðnir í fullt starf, meðan rannsókn Hagstofu Íslands nær til alls vinnumarkaðarins. Gera má ráð fyrir að mikill meirihluti karla sé þó í fullu starfi en erfið- ara er að bera íslensku tölurnar um vinnutíma íslenskra kvenna, sem er 35,9 klukkutímar á viku, saman við vinnutíma kvenna í rannsókninni. Eftir stendur gríðarlegur munur á vinnutíma karla og kvenna. Hafa ber einnig í huga að um meðaltalstölur er að ræða, sem segir að talsvert stór hluti karla vinnur meira en 50 tíma á viku og jafn- vel miklu meira en það. Hvaða tíma hafa þessir menn til þess að rækta fjölskyldur sínar, mynda tengsl, rækta börn sín og sinna umgengnisrétti sínum og skyldum við börn sín sem búa annars staðar eins og svo algengt er? Hver er staða karlmanna sem vinna meira en 50 tíma á viku til að ganga til verka til móts við konur sínar á heimilum? Og hvernig fara þeir að því að rækta sjálfa sig og sinna vinum og stórfjölskyldu? Vissulega eru margir svo lánsamir að vinna þeirra er ekki bara áhugamál þeirra heldur jafnvel ástríða og þetta á örugglega við um marga þá sem vinna mest. Það breytir því þó ekki að tími til að sinna öðrum þeim verkefnum sem tilheyra því hlutverki að vera maður, fjölskyldumaður og þjóðfélagsþegn er lítill. Stytting vinnutíma, og þá einkum vinnutíma karlmanna, ætti því að vera forgangsverkefni, bæði í verkalýðshreyfingunni og hjá hverjum og einum, ekki síst þeim sem vilja taka ábyrgð á því stórverkefni, sem langflestir takast á hendur, að eignast börn og koma þeim svo til manns. ■ 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR Íslendingar eiga langt í land í jafnréttismálum kynjanna þegar borinn er saman vinnutími karla og kvenna. Stytting vinnu- tíma forgangsmál FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG JÓNAS FRÁ HRIFLU ÞORVALDUR GYLFASON Höfu›kenning hans um fljó›- félagsmál um yfirbur›i sveit- anna og lykilhlutverk fleirra í samfélagsger›inni reyndist á hinn bóginn röng og virtist hvíla á rómantískri óskhyggju og fortí›arfíkn og fleirri sko›- un, a› börnum væri hollast a› alast upp í sveit. Hryllilegt og fyndið! Ísland sem einleikshljó›færi Tíminn hnýtir í Frjálslynda Á vefriti Framsóknarflokksins, tíminn.is, var bent á það í gær að Frjálslyndi flokkurinn sendi frá sér fréttatilkynningu á dögunum um að Magnús Þór Hafsteinsson myndi sitja í menntamálanefnd í stað Sigurjóns Þórðarsonar til þess að tryggja vandaða meðferð RÚV-frumvarpsins í nefndinni. „Það vakti því athygli að þegar RÚV-málið kom til meðferðar í menntamálanefnd var Magnús Þór hvergi sjáanlegur. Fulltrúi Frjáls- lyndra í nefndinni var eftir sem áður Sigurjón Þórðar- son, sá sami og settur var af með bréfi af eigin samherj- um vegna þess að hann þótti ekki nógu vandað- ur í vinnubrögðum,“ segir á tímanum.is Spurning um hæfni hinna Framsóknarmenn halda áfram: „Það þarf víst ekki að leita frekari sannana fyrir því að meðferð stjórnarminnihlut- ans á RÚV-frumvarpinu var afar ómál- efnaleg og óvönduð, við byggjum þá ályktun bara á fréttatilkynningu Frjáls- lynda flokksins sjálfs. Þeir ætluðu að setja hæfan þingmann í málið en þegar til kom áttu þeir engan á lausu og urðu að senda Sigurjón. Skýringin er víst sú að Magnús Þór þurfti að bregða sér til Noregs í brýnum einka- erindum. Þess vegna var Sigurjón nógu góður. Umræðu um hvað sú staðreynd segir svo aftur um hæfni hinna tveggja þingmanna Frjálslyndra til þess að beita vönduðum vinnu- brögðum látum við bíða betri tíma.“ Fáheyrður dónaskapur Auk þess að býsnast út í Frjálslynda flokkinn hnýtir penni tímans einnig í ræðusérfræðinga JC, sem völdu Sig- urjón Þórðarson næstbesta ræðu- mann í eldhúsdagsumræðunum á Alþingi í fyrradag: „Eins og við höfum bent á var útgáfa fréttatilkynningar- innar fáheyrður dónaskapur Frjáls- lynda flokksins í garð þingmanns úr eigin röðum. Við hér munum ekki taka upp baráttu fyrir því að Sigurjón fái viðurkenningu fyrir að vera í hópi vönduðustu þingmanna (jafnvel þótt hann hafi nýlega klárað JC-námskeið og orðið við það næstmesti ræðu- skörungur Alþingis að mati þeirra sem selja JC-námskeið).“ sda@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA f25290405_sigurjon_02.jpg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.