Fréttablaðið - 12.05.2005, Síða 26

Fréttablaðið - 12.05.2005, Síða 26
Í Fréttablaðinu 10. maí birtist velþegin frétt um svonefnd „samræmd próf” sem unglingar í 10. bekk grunnskóla streitast nú við að þreyta. Í fréttinni kemur fram að rit- gerðarefnið í íslenzkuprófinu, sem að þessu sinni er fyrsta prófið í prófaröðinni, hafi verið of þungt og viðamikið og að auki í raun pólitískt mál. Ég las þessa frétt með at- hygli, því ég er búinn að bíða eftir því að sjá hvernig náms- málayfirvöld myndu bregðast við próftökum nú í vor í ljósi þess að börnin og unglingarnir, sem þurfa að taka prófin, voru öll fórnarlömb átta vikna verk- falls kennara í vetur. Ég hef beðið eftir því að sjá hvernig menntamálayfirvöld myndu reyna af öllum mætti að bæta þeim upp áfallið sem verkfallið kom þyngst niður á. Nú þarf ekki að bíða lengur. Í samræmda íslenzkuprófinu þykir menntamálayfirvöldum við hæfi að leggja fyrir nemend- ur ritgerðarefni um hvað þeim þyki um styttingu námstíma til stúdentsprófs! Er þetta grín? Að leggja þetta efni fyrir einmitt þann hóp nem- enda sem varð sennilega hvað harðast úti vegna verkfallsins, er eins og storkun, og einkum og sér í lagi ósmekklegt. Í framhaldsfrétt Fréttablaðs- ins í gær, miðvikudaginn 11. maí, segir starfsmaður Náms- matsstofnunar, að hann telji það undarlegt ef nemendur 10. bekkjar séu ekki búnir að hugsa um styttingu námstíma til stúd- entsprófs, þar sem mikill meiri- hluti nemenda ætli sér að fara í framhaldsskóla og hljóti því að hafa leitt hugann að efninu. Bíddu, er ekki alveg í lagi með suma? Hvernig eru menn eiginlega valdir í þessa Náms- matsstofnun? Hvað er verið að gefa í skyn? Áttu nemendurnir í 10. bekk kannski að velta þess- ari spurningu fyrir sér á meðan þeir biðu eftir að fá að fara aft- ur í skólann sinn til að halda áfram að læra („til stúdents- prófs seinna meir”). Ég skal segja Námsmatsstofnun hvað fjöldi þessara nemenda var að hugsa í verkfallinu. Þeir voru reiðir en líka samúðarfullir í garð kennara. Þeir voru mjög áhyggjufullir út af náminu. Þeir hugsuðu að nú myndu þeir fara út af sporinu. Og þeir fóru út af sporinu. Aðeins þeir sem hafa meðfædda námshæfileika standast svona áfall án þess að verða fyrir miklum skakkaföll- um. Að leggja svo fyrir einmitt þessa nemendur ritgerðarefni um styttingu námstíma virkar eins háð og spott. Það er, eins og fyrr segir, óheyrilega ósmekk- legt. Nær hefði verið að veita þess- um nemendum tækifæri til að tjá sig um það sem á undan hef- ur gengið og leggja fyrir þau rit- gerðarefnið: Hvaða áhrif telur þú að verkfall kennara hafi haft á námsárangur nemenda? Þá hefði Námsmatsstofnun og önn- ur menntamálayfirvöld trúlega fengið afar verðmæta innsýn í afleiðingar uppákomu eins og varð í vetur og gætu nýtt sér hana í framtíðinni. Nemendur hefðu fengið verðskuldað tæki- færi til að tjá sig um efni sem enn hvílir á þeim eins og mara. Menntamálayfirvöldum væri nær að lýsa því yfir undir eins, að vitaskuld verði tekið tillit til þessa ástands við mat á prófár- angri til að létta þessum nem- endum að einhverju leyti kvíð- ann. Nóg er samt, þótt ekki sé enn reynt að slá þau útaf laginu, og það í upphafi prófanna. Höfundur er flugstjóri og afi grunnskólabarns. Nú styttist óðum í að hið nýja og margbrotna leiðakerfi almenn- ingsvagna á höfuðborgarsvæðinu verði tekið í notkun. Sjálfsagt er hægt að finna góð- ar hliðar þessara breytinga en til- efni skrifa minna er nú á hinn veginn, um það sem augljóslega eru skelfileg mistök við hönnun þess. Þar ber fyrst að geta þess að hið mikla íþrótta- og útivistar- svæði Laugardalurinn, með aðal íþrótta- og sýngarhöllum lands- ins, skautahöll, eina dýra- og skemmtigarði borgarinnar, tjald- svæði Borgarinnar, stærstu sund- laug og Grasagarðinum, verður tekið að miklu leyti úr sambandi við strætó. Þúsundir manna sækja Laug- ardalinn heim til útiveru og íþróttaþjálfunar, tónleika og sýn- inga allan ársins hring, auk þess er svæðið mikið notað að sumar- lagi fyrir hópa barna af barna- heimilum og leikjanámskeiðum. Þessir síðasttöldu hópar koma einkum að sumarlagi og geta dreift komu sinni á lengri tíma en brottför, því flestir þurfa hóparn- ir að vera komnir á starfsstöðvar sínar um kl.16:00. Í hinu nýja leiðakerfi eru að- eins tvær leiðir sem fara um Suð- urlandsbrautina og geta nýst þessum hópum og ein leið sem fer um Sundlaugaveginn. Leiðir þess- ar verða á 20 mínútna fresti. Leið 15 í Mosfellsbæ verður eina teng- ingin fyrir öll efri hverfi Borgar- innar við Laugardalinn og eiga skiptingar að fara fram við Ár- túnsbrekkuna, þá stóru umferðar- æð sem varhugavert er að hafa barnahópa við. Þetta á við um alla hópa úr Árbæ, Breiðholti, Grafar- vogi, Grafarholti, og Norðlinga- holti auk umferðar af Kjalarnesi og úr Mosfellsbæ. Einn vagn á 20 mínútna fresti þýðir að hópar barna verða að bíða langtímum saman eftir næsta vagni í öllum veðrum. Á sama hátt er ein leið sem á að þjóna öllum nágranna- bæjunum suður af borginni. Leið- in um Sundlaugaveginn býður upp á óhægkvæma og hættulega skiptingu yfir Miklubrautina. Báðar leiðir um Suðurlandsbraut nýtast vesturhluta borgarinnar og orsaka því aðeins skárra ástand. Allar leiðir liggja í Háskólann, segja umferðarfræði skipuleggj- enda, en þar eru flestir á einkabíl- um. Af hverju þarf að fara vestur að Háskóla vilji maður komast á Hlemm? Er ekki óþarfi að auka bílaálag miðborgarinnar með öll- um þessum fjölda vagna? Til dæmis munu á annatímun sam- kvæmt gefnum forsendum fara 78 vagnar á klukkustund um Hverfisgötu og dreifast á tvær götur í miðborginni. Þetta eru um það bil 936 metrar af vögnum miðað við 12 m. langa bíla og auð- vitað bara helmingur í hvora átt. Telja menn virkilega að flutninga- þörfin sé þvílík á þessu svæði? Það er greinilegt að barnahóp- ar og börn yfirleitt eiga ekki upp á pallborð þeirra sem hugsa upp svona kerfi, auk þess sem útivist- arsvæði og íþróttaaðstaða eru gjarnan afgangsstærð. Oft þarf þó ekki annað en til dæmis eina biðstöð í viðbót til að gera svæði aðgengileg. Dæmi um þetta er í Fossvogsdalnum, þar hefur ekki verið biðstöð en um leið og komið er í Kópavogsdal er biðstöð svo fólk geti nýtt vagnana til að kom- ast að og frá svæðinu. Menn skyldu hafa í huga að sú vegalengd sem fullorðnir er flest- ir færir um að ganga auðveldlega er ekki alltaf á færi barna sem taka smærri skref og eru lengur á leiðinni. Ljós punktur er að ákveðið hef- ur verið að tengja Nauthólsvíkina við leiðakerfið að sumri til með akstri að Nauthól. Margt fleira mætti tína til sem varðar afnot af kerfinu, t.d. að uppröðun stæða á aðalskiptistöðv- um verði þannig að farþegar þurfi ekki að hlaupa á milli vagna, hvernig biðskýli snúa; þau myndu koma að meira gagni ef bakhliðin snéri að götunni og hlífðu farþeg- um við bleytuaustrinum af göt- unni. Þá er umhugsunarvert hvort snjó- og þrifaáætlun gangbrauta verði færð til samræmis við þessa breytingu. Þetta skrifa ég nú þar sem aðr- ar leiðir til að koma í veg fyrir Laugardalsmistökin hafa ekki borið árangur. Það er nú liðið eitt ár frá því ég vakti fyrst máls á þessu við Strætó með athuga- semdum, svo og við fyrrverandi borgarstjóra á opnum fundi í Breiðholti, og yfirmenn ÍTR. ■ 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR26 BJÖRN FINNSSON ÆSKULÝÐSFULLTRÚI UMRÆÐAN NÝTT LEIÐARKERFI STRÆTÓ KJARTAN NORÐDAHL SKRIFAR UM SAMRÆMD PRÓF Afgangsstær›irnar hjá Strætó bs SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveð- ur hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. fia› er greinilegt a› barnahóp- ar og börn yfirleitt eiga ekki upp á pallbor› fleirra sem hugsa upp svona kerfi auk fless sem útivistarsvæ›i og íflrótta- a›sta›a eru gjarnan afgangs- stær›. 6.888 kr. Tæki sem auðvelda vorverkin ALTO háþrýstidælur R V 20 34 Tilbo ð maí 2 005 ALTO háþr ýstidæ lur á tilboð sverð i Nilfisk ALTO Compact Þrýstingur: 120 bör Vatnsmagn: 440 l/klst Nilfisk ALTO Compact Þrýstingur: 100 bör Vatnsmagn: 300 l/klst 15.888 kr. Nilfisk ALTO Excellent Þrýstingur: 135 bör Vatnsmagn: 500 l/klst 28.888 kr. Mán udag a til föstu daga frá k l. 8:0 0 til 18:00 Laug arda ga fr á kl. 10 :00 t il 14: 00 Opn unar tími í ve rslun RV: Námsmatsstofnun á villigötum? A› leggja svo fyrir einmitt flessa nemendur ritger›arefni um styttingu námstíma virkar eins og há› og spott. fia› er, eins og fyrr segir, óheyrilega ósmekklegt. FERTUGSALDURINN INNGRIP RÍKISVALDSINS SUMARIÐ JÚRÓVISJÓN Fertugsaldurinn er mér ofarlega í huga. Ég er í dag genginn átta daga inn á fjórða áratuginn í lífi mínu. Þessi tímamót voru nokkuð fyrir- kvíðanleg en hingað til hefur mér liðið prýðilega á fertugsaldrinum. Tímans tönn er að jafnaði ekki það sem dauðlegir menn hugsa hvað hlýlegast til, en vel heppnuð veisla á afmælisdaginn þann 4. maí á ef- laust sinn þátt í því að gera yfir- færsluna léttbærari en ella hefði orðið. Mér er ofarlega í huga þakk- læti til allra þeirra sem tóku þátt í afmælishöldunum og áttu þátt í að gera þau bæði gleðileg og – fyrir flesta þátttakendur – eftirminnileg. Sífelld og stigvaxandi inngrip ríkis- valdsins í einkalíf borgaranna eru mér því miður ofarlega í huga um þessar mundir. Þegar þessi orð eru skrifuð er Alþingi að leiða í lög heim- ildir lögreglu til að fylgjast nákvæm- lega með samskiptum borgaranna. Eins og jafnan er reyndin með frelsis- skerðingar af þessum toga, þá telja ráðamenn málstað sinn göfugan og að með þessu móti verði lögreglu gert auðveldara að gæta öryggis borgaranna. Þetta meðal yfirvalda við þeim sjúkdómi sem því er ætlað að vinna á, er þó í besta falli gagnslaust – og að öllum líkindum mun hættu- legra réttaröryggi borgaranna en sjálfur sjúkdómurinn. Nú þegar daginn er tekið að lengja er sumarið manni ofarlega í huga. Fyrir- huguð er fyrsta utanlandsferð fjöl- skyldunnar en yngstu börnin tvö hafa aldrei upp í flugvél komið. Þau eiga nú fyrir höndum flugferð til Króatíu og dvöl við Adríahafið í tvær vikur. Mikið hefur verið rætt um hvað sé í Króatíu og það sem börnunum hefur helst dottið í hug er: hryðjuverka- menn, eitursnákar og svokallaðir „króatíar“ – vonandi verður einungis hið síðasttalda á vegi okkar þar suð- ur frá. Að vísu finnst manni hálfgerð synd að yfirgefa Ísland á þeim tíma sem einna bærilegast er að búa hér, hásumarið. Júróvisjón sækir nú sífellt meir á hugann eftir því sem nær líður keppninni í Kænugarði. Vandlega er hlustað á lögin og möguleikar Selmu, okkar glæsilega fulltrúa, vegnir og metnir í kaffitímanum. Ég ætla að veðja á sigur Íslands að þessu sinni, eins og ég hef reyndar gert allar göt- ur frá því að Icy-tróið tróð upp með Gleðibankann í Björgvin forðum tíð. Einn kunningi minni, sem sér sam- starfsfólki sínu fyrir tóndæmum úr Júróvisjón allan liðlangan daginn, segist vera búinn að finna töfrafor- múluna: 60% er lagið og hæfileikar flytjandans, 40% er hins vegar kyn- þokki. Á þessum grundvelli hefur hann spáð hinni hvít-rússnesku Ang- elicu Angurbash sigri... EFST Í HUGA BORGARS ÞÓRS EINARSSONAR LÖGMANNS OG RITSTJÓRA DEIGLUNNAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.