Fréttablaðið - 12.05.2005, Síða 32

Fréttablaðið - 12.05.2005, Síða 32
Ferðataska Gott er að yfirfara ferðatöskuna tímanlega áður en lagt er í hann. Rennilásinn getur ver- ið bilaður eða einhvers staðar komið gat og hætta á því að taskan rifni upp á ferðalag- inu. Oft getur verið einfalt að gera við töskuna sjálfur eða fara með hana í viðgerð.[ ] hertzerlendis@hertz.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 2 72 20 02 /2 00 5 14.300 Vika á Ítalíu * Opel Corsa eða sambærilegur 50 50 600 1000 Vildarpunktar til 12. mars kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. *Verð á viku miðað við 14 daga leigu. *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 37.900 kr.* Bókaðu á www.icelandair.is Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 28 05 4 0 4/ 20 05 Fjallgöngur hafa aldrei verið vinsælli Fólk gengur á fjöll af ýmsum hvötum, svo sem til að kynn- ast landinu, njóta óspilltrar náttúru, efla hreysti sína og slá persónuleg met. Eitt er víst, gönguferðir um firnindi Íslands hafa aldrei verið vin- sælli. „Fjallgöngur eru greinilega í tísku en þegar maður var að byrja að ganga á fjöll um 1980 þá var maður álitinn skrýtinn,“ rifjar Guðmundur J. Hallvarðs- son tónlistarmaður upp. Hann segir gönguferðir reyndar hafa átt vaxandi fylgi að fagna í dálít- inn tíma og margt blandist inn í það, til dæmis heilsuefling og annað slíkt. Uppselt er í margar gönguferðir sumarsins og um hundrað manns ætla að ganga á Hvannadalshnjúk nú um hvíta- sunnuna. „Það er einhver rómantík í því að komast á hæsta tind landsins. Þar vilja allir standa,“ segir Guðmundur þegar hann er spurður álits á þessum mikla áhuga. Hann dregur reyndar í efa að allir séu nógu vel undir- búnir undir jökulgönguna enda sé hún frekar erfið. En telur hann að fólk upplifi gönguferðir um landið á annan hátt en áður og þar sé einhver rómantík í spilinu? „Ég held það sé dálítið mis- jafnt. Sumir fara í göngur til að kynnast landinu, virða fyrir sér útsýnið og spá kannski í jarð- fræðina og söguna. Nokkurs konar landkönnuðarferðir. Svo fer fólk á fjöll sem leggur allt kapp á að komast nógu hratt. Þannig að segja má að sportið sé komið inn í þetta. Vegalengd sem venjulega er farin á þremur til fjórum dögum er þá farin kannski á fimm tím- um. Umhverfis- og náttúru- vernd spilar líka inn í þennan aukna áhuga. Þannig að það er engin ein lína í þessu.“ Guðmundur hefur verið far- arstjóri hópa á vegum Ferðafé- lags Íslands um Hornstrandar- svæðið frá 1990. Hann segir allar Horn- strandaferðir hjá Ferðafélaginu í sumar hafa selst upp og tvær aukaferðir verið settar á dag- skrá. gun@frettabladid.is Jöklaferðir heilla marga en jökullinn er ekki alltaf bara hvítur og sléttur. Mörgum þykir gaman að ganga á Hornstrandir og líta þar bæði ósnortið land og mann- vistarleifar. Hér eru leifar síldarverksmiðju á Hesteyri í Jökulfjörðum. M YN D : H AR I M YN D : G U Ð M U N D U R Með hækkandi sól fara sumarfríin að knýja dyra og tími ferðalaganna hefst. Ferðatöskur eru órjúfanlegur þáttur í þeirri útgerð og hafa margar þeirra lagt langan veg að baki og að auki verið fleygt, kastað, skellt, troðið og staflað. Hér áður fyrr voru þessir gripir að jafnaði úr leðri og oft hin mesta lista- smíð sem gekk mann fram af manni. Und- anfarna áratugi hafa gerviefni leyst leður og vaxdúk af hólmi og verð og gæði á töskum hefur sjálfsagt lækkað í samræmi við afköst fjöldaframleiðslunnar. Þessir gripir þurfa oft að þola óblíða meðferð og það er sennilega martröð hvers ferðamanns að sjá nærföt sín og sökkaplögg ferðast á bandinu innan um aðrar fatahrúgur 10 metrum á undan opinni töskunni sjálfri eftir ótímabært lásaslys! Ef svo illa vill til að ferðataskan þín er kominn á síð- asta snúning, má hugsanlega lengja lífdaga hennar með því að fara með hana í viðgerð. Þeir aðilar sem sérhæfa sig í viðgerðum á ferðatöskum eru meðal annara Skóarinn, Reykjavíkurvegi 68 í Hafnarfirði og Töskuviðgerðin ehf. í Ármúla 34. Þar er hægt að laga skemmd hjól, rennilása, hand- föng, læsingar og fleira sem gerir ferðatösku að ferðatösku. Taskan þarf ekki að vera ónýt Hægt að lengja líf ferðatöskunnar með viðgerð. Hópur í Almenningsskarði. M YN D : G U Ð M U N D U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.