Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 54
Þetta er bara byrjunin 38 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR > Við vorkennum ... ... markadrottningunni Olgu Færseth, sem mun væntanlega ekki spila neinn fótbolta í sumar vegna meiðsla. Það verður mikill sjónarsviptir að þessari frábæru knattspyrnukonu. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... Þorsteini Rafni Johnsen og félögum í handknattleiksdeild Stjörnunnar fyrir að rífa upp handknattleiksstarfið í Garðabænum með myndarlegum leikmannakaupum en stemningin í kringum handboltann í Garðabænum hefur verið skammarlega léleg allt of lengi. Vonandi eru breyttir tímar í vændum í Garðabænum. Magni fer hvergi Stuðningsmenn körfuknattleiksliðs Snæfells fengu loksins góðar fréttir í gær en Ingvaldur Magni Hafsteinsson hefur ákveðið að leika með félaginu á næstu leiktíð. Þessir fréttir koma beint í kjölfarið á þeim fréttum að tveir bestu leikmenn liðsins - Sigurður Þorvaldsson og Hlynur Bæringsson - hafi ákveðið að semja við hollenskt félag. Það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni að útlendingaflæðið í íslenska fótboltann er meira en nokkru sinni fyrr. Þessir menn eru að sjálfsögðu mjög misjafnir að gæðum og sumir þeirra hafa nánast ekkert fram að færa. Meðal leikmanna sem hér hafa verið að flækj- ast er serbneskur varnarmaður að nafni Branko Milicevic, sem flakkar milli liða í fylgd hins gamalkunna Mihajlo Bibercic. Þessi ágæti maður hefur mætt á æfing- ar hjá tveimur liðum í Landsbankadeild- inni, en tók þó ekki þátt í æfingunum! Sigurður Jónsson, þjálfari Víkinga, hafði samband við kollega sinn, Þorlák Árna- son hjá Fylki, og sagði honum frá leik- manninum. Árbæingar ákváðu síðan að skoða hann á æfingu félagsins. Fyrir æf- inguna var leikmaðurinn mættur ásamt Bibercic en þeir félagar voru skyndilega gufaðir upp þegar æfingin var í þann mund að hefjast. Ásgeir Ásgeirsson, for- maður meistaraflokksráðs karla hjá Fylki, sagði í samtali við Fréttablaðið að enginn vissi hvað hefði orðið af Mili- cevic. „Hann var mættur fyrir æfinguna en var svo hvergi sjáanlegur þegar hún var að hefjast. Við höfum ekkert heyrt frá honum og vitum ekkert hver ástæð- an fyrir þessu skyndilega brotthvarfi hans var.“ Milicevic ætlaði síðan að mæta á æf- ingu hjá Keflvíkingum á þriðjudagskvöld en gat á endanum ekki tekið þátt í henni þar sem hann var illa haldinn af tannpínu. „Það er ólíklegt að við fáum þennan leikmann. Hann og Bibercic voru svona meira í kurteisisheimsókn hjá okkur og hann átti að fá að taka þátt í léttri æfingu en því miður varð ekkert af því þar sem hann var með tannpínu,“ sagði Ásmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri Keflavíkur, um málið. fiorsteinn Rafn Johnsen, forma›ur handknattleiksdeildar Stjörnunnar, segir Gar›bæinga hugsa stórt en fleir ger›u risasamninga vi› landsli›smarkvör›inn Roland Val Eradze og stórskyttuna Tite Kalandadze í gær. ÚTLENDINGAFLÆÐIÐ Í ÍSLENSKA BOLTANUM: BIBERCIC BREIÐIR ÚT MANNSKAPINN Serbi me› tannpínu leitar a› li›i HANDBOLTI Stjarnan er farin að skína á ný. Eftir magra tíma í handboltanum hafa forkólfar handknattleiksdeildarinnar spýtt í lófana og nú skal reisa Stjörnuna upp í hæstu hæðir. Sá metnaður var undirstrikaður í gær þegar formaður handknattleiksdeildar- innar, Þorsteinn Rafn Johnsen, og nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, Sigurður Bjarnason, fóru til Vest- mannaeyja og sneru heim með undirritaðan tveggja ára samning við landsliðsmarkvörðinn Roland Val Eradze og stórskyttuna Tite Kalandadze, sem sló eftirminni- lega í gegn með ÍBV í vetur. „Þetta er bara byrjunin. Það er von á fleiri mönnum,“ sagði Þor- steinn Rafn við komuna til Reykjavíkur í gærkvöld. „Við erum búnir að segja það lengi að við ætluðum okkur stóra hluti en það trúði okkur enginn. Við erum að blása til sóknar.“ Hlutirnir gerðust hratt í Vest- mannaeyjum í gær og samkvæmt heimildum íþróttadeildar var at- burðarásin lyginni líkust. Þeir Roland og Tite gengu á milli samninganefnda félaganna, sem kepptust við að toppa hvert annað með gylliboðum til leikmannanna tveggja. Sjóðir Stjörnunnar virð- ast vera dýpri en Eyjamanna því Roland og Tite sömdu að lokum við Garðbæinga. Hinir sönnu sigurvegarar í þessu „uppboði“ hljóta þó að vera Roland og Tite en þeir fengu báðir mjög góðan samning. Tite fær níu millj- ónir króna í árslaun en Roland sex, samkvæmt heimildum íþróttadeild- ar. Þessi „pakki“ kostar því Stjörn- una 15 milljónir króna. „No comment,“ sagði Þor- steinn Rafn þegar Fréttablaðið spurði um kostnaðinn við þessi leikmannakaup. En hefur Stjarn- an efni á þessum mönnum? „Já, annars hefðum við ekki farið til Eyja,“ sagði Þorsteinn. Sigurður Bjarnason og Magn- ús Teitsson munu þjálfa Stjörnu- liðið í sameiningu næsta vetur og verða með mikið mun sterkara lið í höndunum en í vetur. Þeir ætla sér að lokka fyrrum leik- menn félagsins, eins og Vilhjálm Halldórsson, heim aftur. Einnig hefur heyrst að ef Patrekur Jó- hannesson komi heim úr atvinnu- mennsku í sumar muni hann ganga í raðir Stjörnunnar á nýjan leik. „Við ætlum að fá strákana okkar heim. Það eru allir gamlir Stjörnumenn velkomnir heim aftur,“ sagði hinn stórhuga for- maður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, Þorsteinn Rafn Johnsen. henry@frettabladid.isSumar KRINGLUNNI S: 553 5020 FARNIR Í GARÐABÆINN Tite Kalandadze róar hér félaga sinn og vin Roland Eradze niður í frægum leik gegn ÍR í vetur. Þeir náðu góðum tveggja ára samningi við Stjörnuna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÆR HANN NÝJAN SAMNING? Dennis Bergkamp átti stórleik með Arsenal í gær og félagið hlýtur að bjóða honum nýjan samning. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi: Arsenal ni›urlæg›i Everton FÓTBOLTI Arsenal-liðið sýndi frábæra takta gegn Everton þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á Highbury í gær. Arsenal vann að lokum 7–0 sigur, sem er stærsti sigur tímabilsins. Everton-liðið, sem er búið að gulltryggja sér fjórða sætið og þar með sæti í Meistaradeildinni á næsta ári, var sem áhorfandi að knattspyrnusýningu Arsenal- liðsins, sem sundurspilaði gestina allan leikinn. Dennis Bergkamp átti frábæran leik í liði Arsenal, þrjár snildarsendingar hans bjuggu til þrjú mörk í fyrri hálfleik og Hollendingurinn kórónaði síðan leik sinn með því að skora sjötta markið í þeim seinni. Sex leik- menn Lundúnaliðsins komust á blað því Robert Pires skoraði tvö mörk og þeir Robin van Persie, Patrick Vieira, Edu og Mathieu Flamini voru allir á skotskónum. Dennis Bergkamp, sem er orðinn 36 ára, hefur ekki verið boðinn nýr samningur en hann hefur sagt að hann muni leggja skóna á hilluna fái hann ekki nýjan samning hjá liðinu. Frammistaðan í gær hefur væntanlega sannfært yfirmenn hans um að skella honum á borð. Arsenal vann fyrri leik liðanna á Goodison Park í haust 4–1 og Everton kom því ekki vel út úr viðureignum liðanna í vetur þrátt fyrir annars gott gengi. Sigurinn boðar enn fremur gott fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Manchester United því Ars- enal-liðið er að spila einstaklega vel þessa daganna og farið að minna á liðið í fyrra, þegar það fór í gegnum allt tímabilið án þess að tapa einum leik. Það gladdi örugglega stjórann Arsene Wenger líka að Thierry Henry og Sol Campbell spiluðu báðir á ný eftir meiðsli og ættu að vera komnir á fullt í bikarúrslita- leiknum eftir tíu daga. ooj@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.