Fréttablaðið - 12.05.2005, Page 58

Fréttablaðið - 12.05.2005, Page 58
Hljómsveitarstjórinn og píanó- leikarinn Vladimir Ashkenazy heldur jafnan tryggð við Ísland og kemur hingað reglulega til þess að halda tónleika, oftast til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Ís- lands eða Kammersveit Reykja- víkur. Í kvöld stjórnar hann flutn- ingi Sinfóníuhljómsveitarinnar á níundu sinfóníu Gustavs Mahler í Háskólabíói. Mahler var 49 ára þegar hann samdi níundu sinfóníu sína, en samt átti hann skammt eftir ólifað því hann lést aðeins hálfu öðru ári eftir að hann lauk við þessa stór- brotnu sinfóníu sína. Margir telja sig greina merki þess á tónlistinni að Mahler hafi haft grun um hvað væri í vændum. Ashkenazy segir þó ómögulegt að segja til um það. „Við fáum aldrei að vita það. En þó er sérkennilegt hvernig tónlistin leysist einhvern veginn upp í síðasta kaflanum, hvort sem það stafar af því að hann hafi gert sér grein fyrir að dauðinn væri í vændum eða ekki. Vinur minn sagði að þetta hljómaði eins og síðustu efniseindirnar að hverfa í alheiminum.“ Ashkenazy sat einn við píanóið á sviði Háskólabíós þegar Frétta- blaðið náði tali af honum. Hann var að æfa sig á Diabelli-tilbrigðum Beethovens fyrir plötuupptöku. „Þetta er frekar erfitt verk,“ sagði hann um tilbrigðin. Níunda sinfónía Mahlers þykir líka með erfiðustu verkum í flutn- ingi, en Ashkenazy ber sig vel og segir ekkert vera auðvelt í heim- inum. „Ég hef stjórnað flutningi hennar það oft að ég tel mig þekkja hana út í æsar.“ Ashkenazy beinir talinu fljót- lega að tónlistarhúsinu, sem nú standa vonir til að rísi innan fárra ára við höfnina í Reykjavík. Tveir áratugir eru liðnir frá því að Ash- kenazy hóf baráttu sína fyrir því að hér yrði reist almennilegt tón- listarhús, og hann segist vera bjartsýnni nú en nokkru sinni um að þessi draumur verði að veru- leika. „Ég þekki Russel Johnson, hljómburðarhönnuð hússins, og hann er mjög fær maður. Ég hef alla trú á því að þarna takist vel til.“ Varðandi deilur um það hvort Íslenska óperan eigi að fá inni í tónlistarhúsinu segist hann telja afar hæpið að ætla að blanda sam- an óperuflutningi og öðru tón- leikahaldi í einu húsi. „Það þurfa þá að vera mjög miklir peningar til þess að slíkt verði vel úr garði gert. Annars verður þetta alltaf einhver mála- miðlun. Ópera er vissulega mikil- væg, en því miður. Þetta tvennt fer ekki vel saman.“ ■ 42 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR EKKI MISSA AF… ... seinni Doors tón- leikunum á Gauknum í kvöld þar sem Björg- vin Franz Gíslason fer á kost- um. ... allra síðustu sýningunni á Svikum, leikriti Harolds Pinter, í Borgarleikhúsinu með Hilmi Snæ Guðnasyni, Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Ingvari Sigurðs- syni. ... Græna landinu eftir Ólaf Hauk Símonarson sem sýnt verð- ur á Akureyri um helgina. Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari ætla að ráðast í það þrek- virki á Listahátíð í Reykjavík að flytja allar tíu sónötur Beethovens fyrir píanó og fiðlu. Þetta er í fyrsta sinn í aldarfjórðung sem sónöturnar eru allar fluttar hér á landi. Þau Sigrún og Gerrit skipta sónötunum niður á þrenna tónleika, sem allir verða haldnir í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. Tónleikarn- ir verða þrjá sunnudaga í röð, þeir fyrstu núna á sunnudaginn kemur, og hefjast þeir allir klukkan ellefu fyrir hádegi. Beethoven samdi tíu sónötur fyrir píanó og fiðlu um ævina og þótti töluverð nýbreytni að í þessum sónötum gegndi fiðlan engu minna hlutverki en píanóið. Hver einasta af þessum tíu sónötum þykir mikið meistaraverk. Sú fyrsta, sem er í D-dúr, er tileinkuð einum kennara tónskáldsins, sem var Antonio Salieri. Kl. 20.00 Gospelsystur Reykjavíkur halda tvenna tónleika í Langholtskirkju í kvöld. Með þeim syngur Bandaríkja- maðurinn Seth Sharp en stjórnandi er Margrét Pálmadóttir. Seinni tónleik- arnir hefjast klukkan 22. menning@frettabladid.is Beethoven í botn Leysist upp í lokin ! ■ ■ TÓNLEIKAR  19.30 Vladimir Ashkenazy stjórnar flutningi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands á níundu sinfóníu Gustav Mahlers í Háskólabíói.  20.00 Gospelsystur Reykjavíkur halda vortónleika í Langholtskirkju ásamt gestasöngvaranum Seth Sharp. Stjórnandi er Margrét Pálmadóttir.  21.00 The Doors Tribute Band heldur sína þriðju tónleika á Gauk á Stöng. Nú verður allt keyrt í botn. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birt- ingu. ASHKENAZY MUNDAR TÓNSPROTANN Vladimir Ashkenazy stjórnar flutningi Sinfón- íuhljómsveitar Íslands á níundu sinfóníu Mahlers. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 10 11 12 13 14 Fimmtudagur MAÍ STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Fö 13/5 kl 20, Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 28/5 kl 20 - Síðasta sýning KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Lau 14/5 kl 14 - UPPS. Su 22/5 kl 14 - UPPS., Lau 4/6 kl 14 UPPS. Su 5/6 kl 14 - UPPS., Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 PURPURI - TÓNLEIKAR FABULU Margrét Kristín Sigurðardóttir Í kvöld kl. 21:00 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN AUTOBAHN Á LISTAHÁTÍÐ Leiklestur nýrra þýskra verka Falk Richter og Theresia Walser Þri 17/5 kl 17 Marius von Mayenburg og Ingrid Lausund Mið 18/5 kl 17 Umræður við höfunda á eftir Ókeypis aðgangur. TERRORISMI e. Presnyakov bræður Í kvöld kl 20, Fö 20/5 kl 20 Síðustu sýningar ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Í kvöld kl 20, Fö 13/5 kl 20 - UPPS., Lau 14/5 kl 20 - UPPS., Fi 19/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20 UPPS., Lau 21/5 kl 20, Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Í kvöld kl 20 - Aukasýning RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds. Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS. Fö 13/5 kl 20, Lau 14/5 kl 20 - Síðustu sýningar Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.