Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 12.05.2005, Qupperneq 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Besti vinurinn Léttur öllari GSM Heimasími Internet Og1 er ný þjónusta Og Vodafone sem lækkar kostnað heimila verulega og færir þeim rausnarlegan ávinning. 0 KR. HEIM Nú hringja allir heim úr GSM án þess að greiða mínútugjöld í allt að 60 mínútur á dag. 0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM Hvert GSM númer fær 120 mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Mánaðargjald fyrir GSM áskrift er 600 kr. Gildir fyrir Frelsisnotendur með 500 kr. Frelsisáskrift. 0 KR. INNANLANDS 500 mínútur í aðra heimasíma eru innifaldar í mánaðargjaldi. Flestir tala minna en í 500 mínútur á mánuði á milli heimasíma og greiða því ekkert mínútugjald. 0 KR. Í VIN Í ÚTLÖNDUM Hver Heimasími fær 120 mínútur á mánuði í heimasíma í einu af þeim 30 löndum sem Íslendingar eiga mest samskipti við. Mánaðargjald fyrir Heimasíma er 1.340 kr. MEIRI HRAÐI, FRJÁLST NIÐURHAL OG VERÐÞAK Þú átt þess kost að fá 6Mb/s ADSL og ótakmarkað niðurhal á 4.990 kr. á mánuði eða 4Mb/s ADSL og 1GB niðurhal fyrir 3.990 kr. á mánuði. ADSL hraði miðast við þjónustusvæði Og Vodafone. Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM áskrift, Heimasíma og Internet, geta skráð sig í Og1. Þeir sem eru með síma eða nettengingu frá vinnuveitanda ættu einnig að kynna sér Og1. Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 2 81 26 04 /2 00 5 BÆNIR Ég sá athyglisverða frétt í blaði ívikunni um nýlegar rannsóknir á bænum. Þar komu fram ótvíræð tengsl á milli bænar og betri vellíð- unar. Fólk sem biður reglulega líður betur en þeim sem biðja ekki. Þessi niðurstaða gengur þvert á skoðanir margra lækna og vísindamanna, sem eru oftast fólk sem því miður hefur oft litla reynslu af bænum og heldur að gáfur og vísindi séu lausn- in á lífsgátunni. Það er sama hversu góður maður er, maður getur aldrei allt. Enginn lækn- ir getur læknað alla. Allir boxarar, hversu góðir sem þeir eru, verða rot- aðir fyrr eða síðar. Það er sama hversu klár maður er að leysa vanda- mál, einn daginn mun maður standa frammi fyrir vandamáli sem maður getur ekki leyst. Og gáfumenn munu standa á gati og ekki vita hvað þeir eiga að gera. ÉG FÓR að biðja reglulega fyrir um tveimur árum. Það hafði undraverð áhrif á líf mitt og líðan. Ég nota bæn- ina við lausn vandamála, andlegra jafnt sem veraldlegra. Ég bið fyrir öllu. Ég hef losnað við ótta og öðlast áður óþekktan frið. Ég hef betri ein- beitingu, betra minni og meiri hæfni til samskipta. Bænin hefur líka gert mig gáfaðari. Mér var einu sinni kennt að ég ætti alltaf að snúa mér til hæstráðanda en ekki tala við undir- tyllur. Það er kjarni minnar bænar. ÞAÐ ER til annað vitundarstig en það sem við þekkjum í hinum áþreif- anlega efnisheimi. Það er þaðan sem við komum og þangað förum við aftur. Þar er okkar raunverulega heimili. Þar býr okkar innsti kjarni. Hluti af okkur er alltaf þar. Og þar eru allar manneskjur samtengdar og jafnar. Þar er enginn tími. ÉG GET beðið fyrir einhverjum sem er langt í burtu. Bænin er hafin yfir fjarlægðir. Í heimi bænarinnar eru engar fjarlægðir, enginn tími. Ég get beðið fyrir þeim sem eru látnir eða jafnvel ekki ennþá fæddir. Í bæninni tala ég við minn innsta kjarna. BÆNIN ER auðveld. Hún er ekki hugmynd eða orð heldur afstaða. Hún er ekki sefjandi blekkingartæki fyrir kjána. Máttur bænarinnar er máttur auðmýktarinnar. Hann er leyndar- dómur. Bænin er án takmarka. Ég skil ekki hvernig bænin virkar, ég veit bara að hún gerir það. Bænin er vatn sálarinnar. Sá sem treystir á bænina stendur aldrei á gati. jongnarr@frettabladid.is JÓNS GNARR BAKÞANKAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.