Fréttablaðið - 14.05.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
STJÓRNSÝSLA Stéttarfélagið Efling
hefur um alllangt skeið sent með
leigubíl öll gögn sem það þarf að
senda Útlendingastofnun vegna
atvinnuleyfa útlendinga. Það
gerir félagið vegna þess að stofn-
unin staðhæfði iðulega að gögnin
hefðu ekki borist.
Í síðasta fréttablaði Eflingar er
harðorð grein um samskipti
félagsins við Útlendingastofnun
þar sem kvartað er undan virðing-
arleysi stofnunarinnar gagnvart
því fólki sem hún á að þjónusta.
Þar kemur fram að lögum sam-
kvæmt á Efling að skila umsögn til
Útlendingastofnunar um atvinnu-
leyfi innan tveggja vikna og segir
Tryggvi Marteinsson þjónustufull-
trúi að við það sé ávallt staðið.
„Engu að síður hefur fólk
komið hingað árum saman til að
leita að þessum pappírum vegna
þess að starfsfólk Útlendinga-
stofnunar fullyrðir að gögnin hafi
ekki borist,“ segir Tryggvi. Hann
segir þetta óþolandi framkomu
gagnvart þeim útlendingum sem í
hlut eigi því iðulega sé fólkið
undir miklu álagi vegna þessara
umsókna og ekki á það bætandi
með áhyggjum af því að gögnin
séu týnd.
Ragnheiður Ólöf Böðvars-
dóttir, forstöðumaður stjórnsýslu-
sviðs hjá Útlendingastofnun,
segir þessa gagnrýni koma sér
mjög á óvart og vísar henni al-
gjörlega á bug. „Við höfum alltaf
reynt að eiga gott samstarf við
verkalýðsfélögin og okkur finnst
þetta mjög ómálefnaleg gagn-
rýni“, segir hún. Mikið álag er á
Útlendingastofnun að sögn Ragn-
heiðar og berast tugir umsókna til
stofnunarinnar daglega. „Það
segir sig sjálft að við verðum að
hafa tíma til að skrá þessar um-
sóknir áður en við getum gefið
fólki upplýsingar um það hvar
þær eru staddar,“ segir hún.
Hún fullyrðir að sá vandi sem
lýst er í grein Eflingar sé stórlega
orðum aukinn. „Auðvitað geta
komið upp einhver vandamál í
þessu eins og öðru en þau á auð-
vitað bara að leysa og betra væri
að slíkt væri gert með samvinnu,“
segir Ragnheiður Ólöf.
ssal@frettabladid.is
Útlendingastofnun
söku› um hir›uleysi
Stéttarfélagi› Efling sakar Útlendingastofnun um órei›u í me›fer› gagna.
Félagi› sendir allar umsóknir um atvinnuleyfi me› leigubílum til öryggis.
Útlendingastofnun segir gagnr‡nina ómálefnalega og koma á óvart.
BÓKMENNTIR Hinn heimskunni
tékknesk-franski rithöfundur Mil-
an Kundera fer fögrum orðum um
íslenska sagnaarfinn í bók sem
nýverið kom út í Frakklandi.
Bókin, sem heitir Tjaldið, er
safn óbirtra ritgerða skáldsins.
„Hann fjallar þarna um skáldsög-
una, veltir fyrir sér hlutverki
hennar í samtímanum og sömu-
leiðis evrópska menningararfin-
um. Og það er í því samhengi sem
sagnaarfur Íslendinga kemur við
sögu,“ segir Friðrik Rafnsson,
sem þýtt hefur mörg verk Kund-
era á íslensku.
Á einum stað í bókinni segir:
„Mér verður hugsað til Íslands. Á
13. og 14. öld urðu þar til fagur-
bókmenntir upp á mörg þúsund
blaðsíður: Íslendingasögurnar.
Hvorki Frakkar né Englendingar
sköpuðu slík lausamálsverk á eig-
in þjóðtungum á þessum tíma!
Vinsamlegast hugsið þetta allt til
enda: fyrsti mikli lausamálsfjár-
sjóðurinn í Evrópu varð til í
minnsta landi álfunnar, landi sem
jafnvel enn þann dag í dag telur
innan við þrjú hundruð þúsund
íbúa.“
Tjaldið hefur verið í efstu sæt-
um metsölulista í Frakklandi
undanfarnar vikur en Friðrik
Rafnsson gerir ekki ráð fyrir að
bókin verði þýdd á íslensku fyrr
en á næsta ári.
- ssal
VINDUR FREMUR HÆGUR OG
YFIRLEITT ÞURRT Kólnar nokkuð í
veðri, sérstaklega noðaustanlands.
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
Spilar til úrslita
Róbert Gunn-
arsson og félag-
ar í Århus leika til
úrslita um danska
meistaratitilinn.
ÍÞRÓTTIR 38
14. maí 2005 - 128. tölublað – 5. árgangur
Spenntur að sjá
viðbrögðin
Stór sýning á
verkum Diet-
ers Roth verð-
ur þungamiðj-
an á Listahátíð. LISTAHÁTÍÐ 32
VEÐRIÐ Í DAG
Læti í Keflavík:
Gu›jón er
hættur
ÓRÓI Í ÚSBEKISTAN Þessi kona lét sér lítt bregða þótt hermaður beindi riffli að tveimur samborgurum hennar. Í odda skarst í gær milli
hermanna og mótmælenda í Andijan í Úsbekistan. Mótmælendurnir ruddust inn í fangelsi til að frelsa 23 fanga sem yfirvöld sögðu
íslamska öfgamenn. Þrír létust og tugir særðust þegar hermenn skutu á fólkið. Fyrr um daginn höfðu þúsundir mótmælenda átt í götu-
bardögum við hermenn og létust að minnsta kosti níu mótmælendur í þeim.
Rithöfundurinn Milan Kundera sendir frá sér nýja bók:
Íslendingasögur koma vi› sögu
Duglegur tækifærissinni
Vinir Gunnars Örlygssonar lýsa
honum sem harð-
duglegum og
hugmyndaríkum
manni en and-
stæðingar segja
hann tvöfaldan í
roðinu.
MAÐUR VIKUNNAR 18 Hvítasunnuveðrið:
Vi›rar til
útivistar
VEÐURFAR „Nú er það bara að drífa
sig út fyrir borgarmörkin og njóta
náttúrunnar og konunnar,“ segir
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur. „Það er útlit fyrir gott
útivistarveður um allt land og í
raun betri helgarveðurspá en
maður leyfði sér að dreyma um á
þessum árstíma.“
Það er von að Siggi sé kátur því
það verður hægviðri um allt land
og víða fer hitinn í tveggja stafa
tölu. Það verður þó frekar skýjað
fram á sunnudag og hætta á súld,
aðallega vestan til á landinnu.
Á sunnudag er svo von á norð-
anátt sem mun draga úr hita sér-
staklega norðaustan til. Þeir sem
gista í tjaldi verða þá að vera
varir um sig. -jse
N‡tt kort
atímabil
11-18 í dag.
OPI‹
A‹DÁENDURNIR HÉLDU
SVEITINNI SAMAN
TALA‹I ENSKU VI‹
ÍSLENDINGA
HELGARVIÐTAL
Simon Le Bon söngvari Duran Duran ræ›ir um
fyrirhuga›a tónleika sveitarinnar í Egilshöll. TÓNLIST 34
Mugison er nýkominn heim eftir tólf tónleika
í jafn mörgum borgum. Leikur á tónleikahátíð
með Badly Drawn Boy. FÓLK 50
Þarf að breyta dansinum
Selma Björnsdóttir
vinnur nú hörðum
höndum við að
breyta dansinum
fyrir Eurovision-
keppnina.
FÓLK 50
MILAN KUNDERA Mærir Íslendingasögurn-
ar í nýju ritgerðasafni.
BÚIÐ SPIL Guðjón Þórðarson sagði upp
sem þjálfari Keflavíkur í gær.
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Keflavík-
ur munu ekki sjá Guðjón Þórðar-
son stýra bikarmeisturunum í
Landsbankadeildinni í sumar því
hann sagði starfi sínu lausu í gær.
Ástæða uppsagnarinnar er van-
efndir á samningnum, bæði fjár-
hagslegar og faglegar, en Guðjón
sakar Keflavík um vafasöm
vinnubrögð.
Formaður knattspyrnudeildar
Keflavíkur, Rúnar Arnarsson, er
harðorður í garð Guðjóns og segir
hann ljúga í fjölmiðlum. Guðjón
kemur sterklega til greina sem
næsta þjálfari enska liðsins Notts
County. - hbg / Sjá síðu 38